Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Page 23

Læknaneminn - 01.04.1999, Page 23
Ar í Kaupmannahöfn Lena Rós Ásmundsdóttir í rigningarsudda í lok júlímánaðar lagði ég af stað ásamt kærasta mínum í ársferðalag til Kaupmannahafnar. Eg hafði tekið þá ákvörðun að taka þriðja árið í læknisfræðinni við Kaupmannahafnarháskóla á vegum Nordplus stúdentaskiptanna. Bíllinn var troðfullur af alls konar dóti er við töldum okkur þurfa þetta árið. Tölvan fékk sitt pláss, ferðatöskur fullar af fötum, ásamt ógrynni af bókum frá fyrsta og öðru ári. Það var því ansi þungur Polo er silaðist upp Ártúns- höfðann. Leiðin lá til Seyðisfjarðar, í hina víðfrægu ferju Norrænu, með stuttri viðkomu á Akureyri. Loksins var ég lögð af stað eftir nokkurra mánaða baráttu fyrir því að komast inn í háskólann í Köben. Hugmyndin kviknaði í próflestri á öðru ári. Það væri nú örugglega gaman að taka næsta ár erlendis! Já, hvernig væri það nú. Það má alla vega reyna. Leiðin lá því á alþjóðaskrifstofu Háskóla ís- lands. Eg grúskaði í bókum og bæklingum, kynnti mér þá skóla er höfðu stúdentaskiptasamning við HÍ og spurði ýmissa spurninga. Einhvern veginn æxlað- ist það svo að hugurinn leitaði til Kaupmannahafnar. Ekki var það vegna mikils lesturs ritverka Jónasar Hallgrímssonar, frægasta Kaupmannahafnarfara ís- lendinga, því að ritsafn hans hafði legið óhreyft í bókahillunum heima frá útskrift úr MR. Ég tel það frekar hafa verið þann rómaða blæ er virtist vera yfir borginni. Þeir Islendingar er þangað höfðu farið og ég hafði talað við, höfðu ekkert nema gott af Dönum að segja. Afslappaðir, frjálslegir og miklir húmoristar. Það var þó hægara sagt en gert að komast til Köben. Eini skólinn er hafði Nordplussamning í Dan- mörku var í Árósum. Ég vildi þó ekki gefast upp og gerðist óþolandi spurul og ágeng við starfsfólk alþjóða- skrifstofunnar, en allt kom fyrir ekki; það var einungis hægt að fara til Árósa. Ég vildi nú ekki gefast upp svo auðveldlega og lagðist því í skriftir. Skrifaði bréf á íslensku og lét síðan þýða það yfir á dönsku. Gerði hosur mínar grænar fyrir skólanum og sagði hvers vegna mig langaði að fara til Kaupmannahafnar. Einnig lét ég einkunnir og með- mæli fylgja upp á von og óvon. Það skrýtna gerðist að ég fékk svar frá skólanum þess efnis að ég væri velkomin næsta skólaár. Með það bréf í farteskinu fór ég enn einu sinni á alþjóðaskrif- stofuna og sagði mig hafa feng- ið inngöngu og hvort ég fengi ekki örugglega styrk frá Nordplus. Eftir miklar rökræður og mörg samtöl við Björgu Eysteinsdóttur á alþjóðaskrifstofunni, er átti eftir að reynast stoð mín og stytta í kóngsins Köben, fékk ég loksins styrkinn. Þegar þessum áfanga var náð lá fyrir mér að safna upplýsingum um kúrsana í Kaupmannahöfn og sýna fram á að þeir væru sambærilegir við þau fög sem kennd eru á þriðja árinu hér heima. Kennslustjóri læknadeildar tók við öllum gögnum og kom þeim til viðkomandi kennara. Þeir samþykktu þetta allir sem einn og ég gat andað léttar. Langri þrautagöngu var lokið og ég á leiðinni til Danmerkur. Eftir tveggja daga siglingu á Norrænu, vænan skammt af sjóveikistöflum og olíubaðaðan mat, lögð- um við að nyrst á Jótlandi. Með tuttugu ára gamalt Höfundur er lœknanemi á 4.ári. LÆKNANEMINN • 1. tb! 1999, 52. érg. 19

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.