Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Side 48

Læknaneminn - 01.04.1999, Side 48
Igrædd hjartarafstuðstæki - valkostur við meðferð sleglatakttruflana Davíð O. Arnar Segja má að á undanförnum 1-2 áratugum hafi orð- ið bylting í meðferð hjartsláttartruflana. Við höfum, að við höldum, öðlast betri skilning á notagildi og takmörkunum lyfja við hjartsláttartruflunum. Leiðslubandabrennsla (ablation) hefur gjörbreytt því hvernig við meðhöndlum sjúklinga með ofanslegla takttruflanir (supraventricular tachycardia) og miklar framfarir hafa orðið í gangráðstækni. Igrædd hjart- arafstuðstæki (implantable cardioverter defibrilla- tors) eru nýr valkostur við lyfjameðferð þegar með- höndla á hraðatakta í sleglum. Þessi tæki hafa það hlutverk að greina og meðhöndla hjartsláttartruflanir í sleglum. Abendingum fyrir ígræddum hjartarafstuðstækjum hefur fjölgað á undanförnum árum og því líklegt að notkun slíkra tækja muni aukast í framtíðinni. Með það í huga er sennilegt að læknar muni í vaxandi mæli fást við sjúklinga sent hafa ígrædd hjartaraf- stuðstæki og þar af leiðandi nauðsynlegt fyrir aðra en hjartalækna að kunna á þeim einhver skil. SÖGULEGT YFIRLIT Hugntyndin að ígræddum hjartarafstuðstækjum kviknaði fyrst árið 1966 hjá vinnuhópi undir stjórn Michel Mirowski við Johns Hopkins háskólann í Baltimore. Þróun þessa tækis tók langan tíma og var það ekki fyrr en 1980 að fyrsti sjúklingurinn fékk ígrætt hjartarafstuðstæki (1). í upphafi voru tækin nokkuð frumstæð og þurfti opna hjartaaðgerð til að koma rafskautsspöðunum fyrir á yfirborði hjartans. Síðan hafa tækniframfarir í þessum ígræddu hjart- arafstuðstækjum verið örar og árið 1988 var svo komið að mögulegt var að forrita tækin eftir ígræðslu í sjúklinga og breyta þannig meðferðarprógramminu Höfundur er sérfrœðingur í lyflcekningum og hjarta- sjúkdómum á Landspítalanum í samræmi við breytingar á hjartsláttartruflunum sjúklinganna. Árið 1990 var farið að nota leiðslur sem lagðar voru inn í neðanviðbeinsbláæð (v. subclaVia) í brjóstholi og þeim beint þaðan niður til hjartans. Var það mikilvægur áfangi þar sem þetta auðveldaði skurðaðgerðir til muna, enda þurfti ekki að opna brjóstholið sem dró úr tíðni fylgikvilla af að- gerðinni. Rafstuðstækinu sjálfu var komið fyrir undir húð í kviðnum og leiðslur leiddar undir húð að neð- anviðbeinsbláæð. Frá 1995 hefur ígræðslan farið þannig fram að hjartarafstuðstækið er sett undir húð á brjóstsvæði (regio pectoralis), líkt og gert er með gangráði. Nálgast tíðni fylgikvilla af ígræðslu hjart- arafstuðstækja núna þá lágu tíðni sem er af fylgikvill- um gangráðsígræðslu. STARFSEMI ÍGRÆDDS GANGRÁÐSTÆKIS ígrætt hjartarafstuðstæki samanstendur af málm- boxi (generator) og leiðslu. I málmboxinu, sem er úr títan, er tölva sem stýrir starfsemi tækisins. Þar er ein- nig að finna rafhlöðuna sem knýr tölvuna. Að auki eru í tækinu þéttar (capacitors) sem hlaðnir eru upp í 750 volt og eru orkugjafi fyrir rafstuð. Við ígræðsl- una á hjartarafstuðstækinu er sett ein eða fleiri leiðsl- ur niður til hjartans. Þær hafa það hlutverk að hlera takt hjartans og jafnframt gefa rafstuð reynist þess þörf. Auk þess geta þær gangstillt (pacing) hjartað. Rafhlaðan endist gjarnan í u.þ.b. 4-7 ár, þó fer það eftir því hversu oft rafstuðum er beitt. Að loknum endingartíma rafhlöðunnar þarf að skipta um box. en leiðslan dugar oftast mun lengur. Nú eru yfir 95% af hjartarafstuðstækjum ígrædd í einfaldri skurðaðgerð þar sem skorið er ofarlega á brjóstsvæðinu, tækið sett undir húð og leiðslan leidd í gegnurn bláæð niður til hjartans. I aðgerðinni verð- ur að kanna hvort rafstuðstækið er í stakk búið til að venda sjúklingi yfir í sínustakt ef með þarf. í þeim til- 44 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.