Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 66

Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 66
Efasemda- og nemaspj all Aður flutt í lítt breyttu formi í Isleudingaútvarp- inu í Uppsölum 28. apríl 1991 undir heitinu efa- semdaspjall og s.hl. árs 1997 í Jóni Rúgmanni, blaði Islendingafélagsins í Uppsölum, undir heitinu nema- og efasemdaspjall. Fyrir nokkrum árum þegar ég las sálfræði við Há- skóla Islands gerðist það stundum að fólk á förnum vegi sagði við mig hálf óttaslegið í spurnartóni - „já, og þú getur þá lesið persónuleikann, séð bara alveg í gegnum mann!?“. Ég vissi aldrei hverju ég átti að svara. Ef ég neitaði kallaði það á útskýringar sem hvorki var vænst né tími vannst til að gefa. Ef ég á hinn bóginn samþykkti átti ég á hættu að einangrast félagslega. Erfið staða fyrir ungan háskólastúdent. Enda fór það svo að ég hætti í sálfræði og fór í lækn- isfræði. Mun öruggari grein, eða svo hélt ég a.m.k. Brátt fór ég að efast því nú tóku við allskonar spurn- ingar um heilsuleysi og sjúkdóma. I byrjun svaraði ég því til að ég væri nú svo stutt kominn í námi að viss- ara væri að fara til læknis. Seinna þegar almennu læknanámi var lokið sagðist ég vera svo óreyndur að vænlegra væri að tala við einhvern reyndari lækni. Loksins þegar út í framhaldsnám var komið svaraði ég oft að vandinn væri eiginlega ekki á mínu sérsviði og því öruggara að spyrja einhvern sem væri yngri og hefði nýlega lært um þetta eða þá bara að fara til sér- fræðings. Áður en lengra er haldið er rétt að benda á að sál- fræðingar og geðlæknar eru ekki eitt og hið sama. Geðlæknir er læknir sem hefur sérmenntað sig í geð- læknisfræði en sálfræðingur lærir sína sálfræði án þess að verða fyrst læknir. Sálgreinir eða sálgreinandi er svo sérstakt fyrirbæri, þann titill fá menn eða taka sér eftir að hafa farið sjálfir í gegnum sálgreiningu og numið fræði þar að lútandi, sem í flestum tilvikum Höfundur er sérfrœðingur í taugalœkningum á Landspítalanum. Haukur Hjaltason eru djúpsálarfræðikenningar Freuds, stundum með tilbrigðum lærisveina hans eða annarra fylgisveina. Oftast eru sálgreinendur geðlæknar, sjaldan sálfræð- ingar. Ef einhverja er að óttast varðandi það að við- komandi verði sálgreindur og persónuleikinn lesinn sundur og saman eru það geðlæknar. Miklu síður að sálfræðinemar eins og ég var f „den“ séu skeinuhætt- ir í þessu tillliti. Auk þess hreifst ég aldrei sérstaklega af kenningu Freuds, fannst hún loðin, og ómarkviss sem leiðarstjarna í klínísku starfi en kannski þó skemmtileg sem vangaveltuspeki um lífið í einhverri almennri merkingu, kannski meira bókmenntir en vísindi. Eða eins og Borges, argentíska skáldið, komst að orði „...kenning Freuds væri klámfengið tilbrigði við hugarburðarskáldsögu.“. Önnur spruning sem oft var beint til mín sem sál- fræðinema var sú hvort sálfræðinemar væru ekki all- ir skrýtnir. Ég vissi aldrei almennilega hverju ég átti að svara. Af ótta við svar fólks hætti ég ekki á að spyrja hvort það teldi mig undarlegan, reyndi þess í stað að flækja málið med þeirri spurningu hvort nám- ið gerði sálfræðinema skrýtna eða hvort þeir hefðu verið skrýtnir áður og þess vegna hafið þetta nám. Ég veit ekki hverju það sætir en eftir að ég byrjaði í læknisfræðinni hætti fólk svo alveg að spyrja hvort við skólasystkinin værum skrýtin. Kannski var ég þá ekki lengur skrýtinn eða að það var bara öllum aug- ljóst og því óþarft að spyrja. Ég held reyndar að ég hafi alltaf verið jafn skringilega eðlilegur burt séð frá því í hvaða námi ég hef verið. Það er bara svo að fólk er dregið í dilka sem vissir fordómar loða við. Sál- fræðinemar eru taldir skrýtnir, en læknastúdentar ekki. Á sama hátt er læknastúdentinn í hugum margra virðulegur karlmaður. I náminu gátu aðstæður stund- um orðið skondnar þegar sjúklingurinn ávarpaði mig, nemann, sem lækni, en konuna, lækninn mér við hlið, sem hjúkrunarkonu. Sérstaklega gat orðið erfitt að koma rosknum sjúklingum í skilning um hið rétta. 62 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.