Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Side 82

Læknaneminn - 01.04.1999, Side 82
Skýrsla stjórnar félags læknanema 1998-1999 Aðalfundur félagsins var haldinn vorið 1998. Kosningu til stjórnar lyktaði sem hér segir: Formaður: Þorvarður Jón Löve Ritari: Oddur Steinarsson Gjaldkeri: Bjarni Þór Eyvindsson Meðstjórnandi 2. árs: Arnar Þór Rafnsson Meðstjórnandi 1. árs: Þorgeir Gestsson Formaður kennslumála- og frœðslunefndar: Sigurbjörg J. Skarphéðinsdóttir Starfsemi félagsins var með hefðbundnu sniði og kom stjórn saman tvisvar til þrisvar sinnum í mánuði, eftir því sem efni voru til. Félagsstarfið var blómlegt á árinu og var tekið á ýmsum málum sem snerta félagið og nemendur. Verður hér drepið á þeim atriðum sem hæst bar í starfi félagsins á árinu. Aðalfundur Vegna þeirra miklu breytingartillagna sem lágu fyrir aðalfundi vegna bæði laga félagsins og ráðningarkerfis var fundurinn með nokkuð öðru sniði. Hafist var handa um þremur tímum fyrr en venja hefur verið og ráðist í það mikla verk að kynna ný lög fyrir fundargestum og bera þau upp til samþykktar. Að lagaumræðum loknum var boðlð upp á veitingar svo fundarmenn yrðu hvorki svangir né þyrstir þegar kosningar t' embætti færu fram. Þessu stýrði gjaldkeri félagsins, Bjarni Þór Eyvindsson, af mikilli rögg- semi og áttu fundarmenn honum það að þakka að fundahöld fóru fram samkvæmt áætlun. Lög Félags læknanema Stjórn félagsins tók þá ákvörðun á árinu að endurskoða þyrfti lög félagsins. Voru lögin orðin óskýr á köflum og jafnvel mótsagn- ir í þeim eftir endurteknar breytingar á einstökum greinum þeirra. Einnig taldi stjórn að gera mætti breytingar á stjórn félagsins sem gætu skilað sér f betra samstarfi milli undirnefnda án þess að stjórnin yrði of svifasein vegna stærðar. Akveðið var að skipa nefnd til þess að vinna þessar lagabreytingar og reifaði stjórn fé- lagsins hugmyndir sínar í þessa veru við nefndina. Sæti í nefndinni áttu Bjarni Þór Eyvindsson, fyrir hönd stjórnar, Gunnar Tómasson og Steinarr Björnsson. Nefndin vann starf sitt af mikill nákvæmni og áhuga. Skal þetta tækifæri notað til þess að þakka henni góð störf. Vinnan skilaði sér í viðamiklum breytingartillögum og bar þar eflaust hæst lög sem kveða á um þriggja manna framkvæmdastjórn sem veitir forsæti níu manna stjórn félagsins. Ráðningarkerfið Talsverðar umræður urðu um ráðningarkerfi Félags læknanema síðastliðinn vetur eins og oft áður. Ymsir nemendur töldu að gera þyrfti verulegar breytingar á kerfinu og töldu jafnvel einstaka nem- endur að kerfið væri nemum til trafala og að læknar væru almennt óánægðir með það. Ráðningarstjóri og stjórn félagsins höfðu því samvinnu um að gera könnun á viðhorfum til kerfisins meðal lækna og annarra starfsmanna sem ráða læknanema til afleysinga. Niðurstaða könn- unarinnar sýndi að yfirgnæfandi meirihluti svarenda er ánægður eða mjög ánægður með kerfið. Með þessar upplýsingar að leiðar- ljósi var ákveðið að halda fund þar sem mótaðar yrðu tiilögur að breytingum á kerfinu í takt við þá þróun sem orðið hefur í ráðning- armálum nemenda. Fundur þessi fór vel fram og komu fram ýmsar hugmyndir að endurbótum á kerfinu. Unnið var í þremur hópum sem mótuðu til- lögur að breytingum á kerfinu. Það var einróma niðurstaða fundar- ins að kerfið ætti rétt á sér og bæri að reka áfram, nemendum til hagsbóta. Jafnframt kom í Ijós að allir vinnuhóparnir höfðu komist að sömu niðurstöðu um hvers konar breytingar þyrfti að gera á kerfinu til þess að það þjónaði læknanemum betur. Þar bar hæst breytingar sem gera kleift að bjóða út langtímastöður og að dregið er í ráðningarröð langt fram í tímann, en hvort tveggja ætti að auð- velda læknanemum að skipuleggja nám sitt og starf með fyrirvara. Þessar tillögur voru síðar lagðar fyrir aðalfund og samþykktar þar að mestu óbreyttar. Er það von fráfarandi stjórnar og ráðningar- stjóra að þessar breytingar megi leiða til áframhaldandi sáttar um ráðningarkerfið. Deildarráð Fundir deildarráðs voru fjölmargir og tekið á fjölda málefna, sem sum hver snertu nemendur með beinum hætti. Ber þar eflaust hæst þá hugmynd að skylda læknakandídata til þess að eyða hluta kandídatsárs við störf í heilsugæslu. Það er skemmst frá því að segja að hugmyndin mætti talsverðri andstöðu í deildarráði, bæði meðal nemenda og þeirra deildarráðsmanna sem starfa á sjúkra- húsum. Varð niðurstaða fundarins sú að vfsa bæri málinu til fram- haldsnámsnefndar til frekari umfjöllunnar. Það kom því læknanemum verulega á óvart þegar heilbrigðis- ráðherra breytti reglugerð um kandídatsár á þann veg að kandídöt- um væri skyit að eyða þremur mánuðum kandídatsársins við störf á heilsugæslustöðvum. Þessi reglugerð var sett með vísan í lög, þar sem skýrt er tekið fram að ráðherra skuli fá tillögur frá læknadeild áður en slík reglugerð er sett. Það er því læknanemum hulin ráð- gáta að slíkt skuli vera mögulegt án samráðs við félagið en fulltrú- ar okkar sitja í æðstu stofnunum læknadeildar svo og í framhalds- menntunarráði. Stjórn félagsins og nýstofnað hagsmunaráð eiga því ærinn star- fa fyrir höndum og munu leita skýringa á málinu. Þegar hefur ver- ið fundað með landlækni um málið og fyrirhugað er að vinna í því af krafti á haustmánuðum. 78 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.