Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 83
Deiklarf'undir
Reglulegir deildarfundir voru haldnir í vetur. Þar bar ýmiss mál
á góma en fyrirferðarmest voru ráðningarmál kennara líkt og fyrri
daginn. Þó var eitt mál sem barst þangað inn sem snerti nemendur
beint og vakti mikla athygli.
Þrír lögfræðinemar tóku sig nefniiega til og fóru þess á leit við
Læknadeiid að fá afrit af klásusprófum nokkurra síðustu ára. Þessu
neitaði læktiadeild og var málinu þá skotið til Urskurðarnefndar
upplýsingamála af fyrrnefndum laganemum. Eftir að nefndin hafði
kynnt sér gögn í málinu og afstöðu beggja aðila kvað hún upp þann
úrskurð að veita skyldi aðgang að þessum prófum án tafar. Lækna-
deild hafði tiltekinn frest til þess að bregðast við og áfrýja málinu
en aðhafðist ekki.
Læknanemar skiptust nokkuð í tvö horn í málinu. Margir töldu
að þetta væri ágætt mál sem bæri að fagna. Sumir nemendur, þó
sérstaklega af öðru námsári, töldu að þetta gæti skert gæði þeirra
prófa sem þeir þreyta og hvöttu deildina til þess að leita allra leiða
svo ekki þyrfti að birta prófin.
Haldinn var deildarfundur um málið þar sem kennarar lýstu yfir
áhyggjum sínum af málinu og beindu því til Háskólaráðs að leitast
yrði við að fá úrskurðinum hnekkt. Formaður FL tók meðal annarra
til máls á fundinum og hvatti kennara til þess að nota tímann til
þess að undirbúa klásuspróf með það í huga að ekki yrði hægt að
endurnýta eldri próf. Líta mætti á þessi tíðindi sem tækifæri til þess
að endurskoða fyrirkomulag prófa í klásus og auka við þann spurn-
ingabanka sem til ráðstöfunar væri við prófagerð.
Háskólaráð svaraði síðar umleitan deildarinnar um frekari að-
gerðir í málinu á þann veg að ekki yrði aðhafst frekar og afhenda
bæri prófin.
Enn er ekki ljóst hvort prófin munu fást afhent.
Húsnæðismál Læknadeildar
Læknanemar hafa undanfarin tvö ár haft yfir tveimur lesstofum
að ráða, í Læknagarði og í Heilsuverndarstöðinni við Barónstíg.
Nú í haust kom það á daginn að læknanemar yrðu að rýma lesstof-
una í Heilsuverndarstöðinni þann I. desember vegna sýningar sem
halda á þar. Við mótmæltum þessu og var fenginn frestur fram yfir
haustpróf 3. og 6. árs. Vinna er einnig í fullum gangi við að finna
húsnæði undir lesstofu og beinist sú leit helst að leiguhúsnæði.
Umræða hefur einnig verið í deildarráði um húsnæðismál deildar-
innar almennt, því deildin er tvístruð út um allan bæ og ekkert virð-
ist eiga að gera í húsnæðismálum deildarinnnar á næstunni innan
Háskólans. Hyggjumst við ásamt deildarráði vinna að því á næst-
unni að þrýsta á um að gert verði eitthvað í húsnæðisvanda deild-
arinnar innan Háskólans.
Samskipti við önnur félög innan Háskólans
Við vorum síðastliðinn vetur í góðu samstarfi við önnur félög
innan Háskólans. Við héldum tvo dansleiki ásamt hjúkrunarfræði-
, sálfræði- og tölvunarfræðinemum. Fyrri dansleikurinn var á Hót-
el Sögu rétt fyrir jól og tókst mjög vel. Þó hafði áður náðst tíma-
mótasamningur við laga-, verkfræði- og viðskiptafræðinema um
risadansleik í Laugardalshöll, en þrátt fyrir að allt hefði verið
klappað og klárt fékkst ekki vínveitinga- né skemmtanaleyfi frá
Reykjavíkurborg. Við héldum síðan seinni dansleikinn í Þórshöll
rétt fyrir páska. Þá fórum við ásamt hjúkrunarfræðinemum í skíða-
ferð til Akureyrar í byrjun mars sem var mjög vel heppnuð í alla
staði.
Skemmtanir
Eins og svo oft áður gerðu félagsmenn margt sér til skemmtun-
ar á árinu. Ogleymanleg vísindaferð til Stykkishólms, jólaglögg og
-ball og árshátíð voru á meðal fastra liða í skemmtanalífinu. Skfða-
ferð með hjúkrunarfræðinemum var nú farin í annað sinn og eru
líkur á að ferð þessi verði fastur liður í vetrarstarfinu í framtíðinni.
Páskaball var nýjung sem enn á eftir að koma í ljós hvort festir sig
í sessi. Auk áðurnefndra skemmtana var farið í fjölmargar vísinda-
ferðir í ýmis fyrirtæki og stofnanir. Það ætti því engum að hafa
leiðst síðasta vetur.
Tölvumái
Eftir nokkurra ára baráttu geta læknanemar vel við sinn tölvu-
kost unað. Fjöldi tölva sem nemendur hafa aðgang að er á þriðja
tug og þeim býðst aðgangur að prentara og skanner á fjórðu hæð
Læknagarðs án endurgjalds. Tölvumálin eru því í góðu lagi sem
stendur. Hins vegar eru tölvur þess eðlis að fyrr en varir úreldast
þær. Því þurfa komandi stjórnir að fylgjast vel með og sjá til þess
að eðlileg endurnýjun fari fram á þessum búnaði.
Internetið hefur smám saman orðið mikilvægara í starfi félags-
ins. Nú er svo komið að á heimasíðu félagsins er að finna allar hel-
stu upplýsingar varðandi starf félagsins að ógleymdri símaskrá
þess, Símphysis. Einnig hefur tölvupóstur verið óspart nýttur og
hefur póstlisti félagsins, laeknanemar@hi.is, gegnt miklu hlutverki
við kynningu á því sem helst er á döftnni innan félagsins.
Utgáfumál
Meinvörp
Eins og áður komu Meinvörp reglulega út og glöddu hláturtaug-
ar læknanema. Síðasta vetur var skipan ritstjórnar með öðru sniði
en áður til þess að skýra betur hlutverk og ábyrgð einstakra með-
lima ritstjórnarinnar. Tókst þetta nýja fyrirkomulag ágætlega og
þykir ekki ástæða til þess að breyta því frekar. Sem fyrr voru uppi
raddir um að ekki væri þörf á blaði á borð við Meinvörp í félaginu
en á meðan það þjónar enn hlutverki sínu sem upplýsingamiðill um
helstu atburði fá slíkar vangaveltur tæplega almennan hljómgrunn.
Læknaneminn
Utgáfa Læknanemans hefur verið óvanaiega skrykkjótt upp á
síðkastið. Vegna skipulagsbreytinga voru kosnar fleiri en ein rit-
nefnd og leiddi þetta til misskilnings um hver ætti að sjá um útgáfu
blaðsins. Vonir standa til að takist að leysa málin með haustinu.
Málefni síðasta Læknanema, sem út kom haustið 1998, eru enn
nokkuð óijós en víst þykir að tap verði af rekstri þess blaðs. Aðeins
eitt blað af Læknanemanum kom út á nýliðnu starfsári og var það
í raun blað frá árinu áður, en þá kom ekkert blað út. Er þetta mið-
ur og er hvatt til þess hér, að sú ritstjórn sem nú tekur við, komi út
að minnsta kosti einu blaði á starfstíma sínum eins og lög félags-
ins gera ráð fyrir.
Símphysis
Hin sívinsæla vasabók, er Símphysis heitir, kom að vanda ekki
út fyrr en eftir áramót og ýmsar góðar skýringar til á því. Auglýs-
ingasöfnun gekk ekki jafn vel og undanfarin ár og tók því lengri
tíma en ella. Einnig gengur oft hægt að fá til baka útfyllta leiðrétt-
ingarlista og var því útséð í lok nóvember í fyrra að ekki næðist að
gefa bókina út tímanlega. Var hún því gefin út í janúar og fékk góð-
ar viðtökur, enda orðin langþráð meðal nemenda.
Kennsluverðlaun
Eins og undanfarin ár voru kennsluverðlaun FL veitt þeim kenn-
ara sem þótt hefur skara fram úr í kennslu. Þetta árið var það ein-
róma niðurstaða stjórnar að veita Hannesi Petersen, prófessor í
háls- nef- og eyrnalækningum þessa viðurkenningu.
Hannes hefur undanfarin tvö ár unnið að því ötullega að innleiða
nýjar leiðir í kennslu við deildina. Þannig fékk hann nemendur til
samstarfs við sig um að vélrita upp alla fyrirlestra frá orði til orðs
LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.
79