Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Page 86

Læknaneminn - 01.04.1999, Page 86
Ársreikningur Ráðningarkerfis Félags Læknanema veturinn 1998 - 1999 Tekjur: Greidd ráðningargjöld =>190.000 kr. Sektir 10.000 kr. Útistandandi ráðningargjöld =112.600 kr. fllls 312.690 kr. Gjöld: Símakostnaður, ritföng, gíróseðlar o.fl. 46.108 kr. Tekjur umfram gjöld =266.500 kr. Að lokum vil ég sérstaklega þakka Steinarri Björnssyni og Þor- varði Jóni Löve fyrir gott samstarf á liðnu skólaári og óska ég Steinarri góðs gengis í starfi ráðningarstjóra. Helgi Þór Hjartarson YFIRLIT YFIR STARFSEMI FULLTRÚARÁÐS September: Farnar voru tvær ferðir. Allir árgangar fóru í Is- landsbanka í byrjun september, það var frekar illa mætt í þessa ferð og ástæðan líklega sú að hluti nemenda var ekki byrjaður að mæta í skólann. Síðar í mánuðnum var hópnum skipt í tvennt og fór ann- ar helmingurinn í VÍS en hinn í Ásgeir Thorarensen. Október: Hin árlega haustferð var að þessu sinni til Stykkis- hólms þar sem spftalinn var skoðaður, einnig voru heilsugæslu- stöðvarnar í Borgarnesi og Olafsvík heimsóttar. Siglt var um Breiðafjörðinn og borðaður skelfiskur o.fl. Nóvember: St. Jósefsspítali í Hafnarfirði heimsóttur. Janúar: 1. og 2. ár skoðuðu aðstöðu Gigtarféiagsins og síðar einnig Heilsuhúsið. Seinna í mánuðnum var svo farið á fjóra staði þar sem fyrirtækin sem tóku á móti okkur gátu ekki tekið við stór- um hópum. Fyrirtækin sem heimsótt voru: Lyfja, Hrafnista Hafnarfirði, það- an sem fólk kom með undirritaða ráðningarsamninga, Flaga og Taugagreining. Á eftir var boðið upp á pizzur á Astró. Febrúar: Árshátíðin var haldin 4. febrúar (fyrsta fimmtudag í feb. að venju) í Þórshöll. Um 245 manns mættu, líklega aldrei ver- ið betri þáttaka. Miðaverði var stillt í hóf, 2500 b'. fyrir félags- menn. Olafur Olafsson fyrrverandi landlæknir var heiðursgestur og Hannesi Petersen voru veitt kennsluverðiaun. Brugðið var út af þeirri venju að láta hljómsveit sjá um tjörið, í staðinn var Páll Osk- ar ráðinn plötusnúður kvöldsins og var fólk almennt mjög ánægt með hvernig til tókst. Feb/mars: Heilsuhælið í Hveragerði skoðað, partý á eftir og boðið upp á bollu. Því miður var mjög dræm mæting. Seinni part- inn í mars var farið í tvískipta vísindaferð. 3.-6. ár fór í Stoð hf. þar sem mjög vel var tekið á móti okkur. 1. og 2. árið heimsótti Skjól. Mæting hjá báðum hópunum var frekar dræm og líklega einhver prófskrekkur kominn í fólk. Það hefur verið stefna fulltrúaráðs í gegnum tíðina að tímasetja vísindaferðir þannig að sem flestir árgangar geti verið með og reynt að hafa þær ekki rétt á undan prófum. Að sjálfsögðu er aldrei hægt að gera öllum til hæfis og hefur sumum þótt ferðirnar heldur fáar. í vetur hefur þegar verið farið í Bláa lónið og heilsugæsluna og sjúkrahúsið í Keflavík. Að þessu sinni var farið til Vestmanna- eyja í hina árlegu haustferð og tókst vel til. Eftir Eyjaferðina hefur verið farin ein ferð. F. hönd fulltrúaráðs Kristín Pálsdóttir. 82 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.