Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Page 90

Læknaneminn - 01.04.1999, Page 90
Það er til lausn Gódkynja blöðruhálskirtilsstækkun getur verió harðsnúin. Nú leysir lyfjameðferð hnútinn. Finol (Omega Farma), 960199 TÖFLUR; G 04 B X 04 R E. Hver tafla inniheldur: Finasteridum INN 5 mg. Eiginleikar: Fínasteríð er 4-azasteróíð, sem keppir við 5-alfa-redúktasa, en það enzym breytir testósteróni í virkara form, díhydrótestósterón (DHT). Vöxtur blöðruhálskirtilsvefs er háður þessu formi hormónsins. Lyfið hefur enga sækni í andrógenviðtæki. Eftir gjöf á einum skammti verður hröð lækkun á DHT í blóði. Þótt blóðgildi fínasteríðs séu breytileg í 24 klst., helst DHT lágt þennan tíma. Við lengri gjöf (12 mánuði) lækkuðu DHT-gildi um ca. 70% og rúmmál blöðruhálskirtilsins dróst saman um 20% á þessum tíma. Aðgengi er u.þ.b. 80%. Hámarksblóðþéttni næst að meðaltali eftir 6 klst. (4-12 klst.), en 8 klst. hjá körlum eldri en 70 ára. Próteinbinding er um 93%. Dreifingarrúmmál er 76 litrar. Lyfið er umbrotið í lifur, en hefur ekki marktæk áhrif á cytókróm P-450 kerfið. U.þ.b. 40% útskiljast í þvagi sem umbrotsefni en um 60% í saur. Abendingar: Til meðhöndlunar á góðkynja blöðruhálskirtilsstækkun með þvagtregðu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir fínasteríði eða öðrum innihaldsefnum. Varúð: Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með mikla þvagtregðu. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru minnkuð kyngeta og kynhvöt (3-4%). Algengar (>!%): Almennar: Minnkuð kyngeta. Annað: Minnkuð kynhvöt og minnkuð sæðismyndun. Rannsóknaniðurstöður: PSA (prostata sérhæft antigen) - gildi í blóði lækkar. Sjaldgæfar (0,1-1%): Eymsli í brjóstum, brjóstastækkun. Húð: Útbrot og ofnæmisbjúgur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Húð: Hárvöxtur á höfði getur S aukist, en skeggvöxtur minnkað. Athugið: Meðhöndlun með lyfinu skal stjórnað af þvagfæraskurðlækni. Fylgjast þarf með blöðruhálskirtlinum reglulega á meðan 'I á meðferð stendur. Skammtastærðir handa fullorðnum: 5 mg daglega og á að gleypa töflurnar heilar. Meðferðarlengd a.m.k. 6 mánuðir. .a Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Útlit: Bláar, kringlóttar og kúptar, 8 mm. Pakkningar og verð: Töflur 5 mg: 28 stk. 4.491 kr., 98 stk. 13.128 kr. FINOL (Finasteríð) - nýtt, áhrifarfkt (slenskt þvagfæralyf Q Omega Farma

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.