Úrval - 01.12.1964, Qupperneq 105
HIN FXJRÐULEGA BYGGING FRUMANNA
103
beinu sambandi við umhverfið.
Pípur þess liggja beint út að
frumuhýðinu og út úr því. Bil-
in á milli ER-ganganna eru hið
eiginlega innra rúm frumuhnar.
Það er heljarmikið geymslurúm,
sem einkum er notað sem forða-
búr, en gegnir auk þess ótal
mðrgum öðrum hlutverkum.
Þetta geymslurými er geysi-
lega margbrotið, enda er það
millibilin á milli völundarhúss
ER-sins. Mikið af rými þess er
fyllt af örsmáum blöðrum
(vacuoles) — sem hafa að
geyma vatn, oliu eða fljótandi
næringu. Inn á milli liggja svo
á við og dreif fjöldi af dökkum
þráðum og kornum, sem nefnd
eru mitochondria eða „þráð-
korn“. Nvlega hefur tekizt að
brjótast inn í þau, og fundust
þá innan i þeim kraftmiklar afl-
vélar (generators), sem fram-
leiða efnafræðilegt orkuelds-
neyti, sem nefnt er adenosine
triphosphat, skammstafað ATP.
Frá þessu ATP fær fruman orku
til allrar sinnar starfsemi, svo
sem samdráttar vöðvafrumanna
og til hinnar stöðugu uppbygg-
ingar og endurbyggingar, sem
heldur hinni starfandi frumu við
liði.
í þessu víðáttumikla geymslu-
rúmi frumunnar eru líka aðal-
stöðvar efnakljúfanna, sem að-
stoða við uppbyggingarstarfið.
Sum þeirra eru til heimanotkun-
ar frumunnar sjálfrar, og eru
stöðugt á ferð og flugi frá
geymslustöðvum sínum, sam-
kvæmt sérstökum fyrirmælum,
út um alla frumuna, og flytja
boð um hvernig starfsemi frum-
unnar skuli hagað. Sumir vís-
indamenn telja, að aðrir efna-
kljúfar séu til útflutnings frá
frumunni. Þeir berist um ER-
pípurnar beina leið út úr frum-
unni. Þetta séu boðberar, sem
flytji boð til annarra fruma.
Dulmál lífsins (Code of life).
Hvaðan koma efnakljúfunum
fyrirskipanir þeirra? Svo virðist
sem til efnakljúfanna liggi einn
af fjölmörgum leiðsluþráðum,
sem flytja fyrirskipanir frá ein-
hverju Ieyndardómsfullu „dul-
máli Iífsins“, sem býr í hverjum
frumukjarna.
Fyrir um það bil tiu árum
tókst visindamönnum að brjóta
sér leið inn í frumukjarnann,
og höfðu þaðan á brott með sér
stórkostlega merkilegt herfang,
sem þeir nefndu deoxyribonuc-
leidacid, eða DNA (kjarnasvru).
f sérhverjum frumukjarna fannst
uppvafin löng keðja af DNA-
sameindum, sem likjast mjög
kaðalstiga, og á þær er fest dul-
mál lífsins, líkt og tónlist á seg-
ulband.
DNA er einræðisherra frum-
unnar. Það stjórnar öllum öðr-