Úrval - 01.02.1975, Page 98

Úrval - 01.02.1975, Page 98
96 ÚRVAL svo: „Þessi náungi byrjaði að tala við mig!“ Sá nýkomni mældi mig út nokkra stund, svo staðnæmdust augu hans við hneppta, ameríska skyrtukrag- ann minn: „Það er vonlaust að siða þá,“ sagði hann. „Þeir hafa þetta í blóðinu." Þegar ég kom til Parísar, var ég ákveðinn í að standa kyrr og ró- legur í biðröðinni og lesa blaðið mitt, þar til að mér kæmi. Ég keypti eintak af France-Soir til að láta vanþóknun mína í ljós með, ef einhver sakleysislegur ferðalangur gerði eitthvað, sem mér mislíkaði. En strax á strætisvagnastöðinni tók sjálfsáliti mínu að hraka. Það, sem ég hafði álitið biðröð, líktist miklu fremur afmæliskringlu. Fólkið var á sífelldu iði og alltaf að skipta um staði. Að lokum var röðin orðin svo óregluleg, að tæpast var hægt að spá um upphaf eða endi á henni; hún iðaði eins og blöðruþang á hafsbotni. Einmitt þá birtist ungur námsmaður. „Excusez-moi,“ sagði hann, „en oú est la endir á eette queue?“ Hann svaraði með breiðu glotti og áhrifamiklum ábending- um og handasveiflum og snaraði sér svo inn í röðina fyrir framan mig. Þetta leysti vandamálið, ég hafði þar með fengið svarið sem ég bað um. En það skapaði nýtt, þar sem ég hafði misst stæðið mitt. Ég gekk ákveðinn framfyrir manninn: „Par- don, monsieur," sagði ég, „ég held que vous etes dans mínum stað!“ Maðurinn breiddi út faðminn á áhrifamikinn hátt, til að undir- strika vonlaust hjálparleysi mitt. Eða eins og hann vildi segja: „Hver skilur öll undur heimsins?" Ég leit í kringum mig til að leita ráðs, sem gæti leyst vanda minn, svo sneri ég mér að manni, sem var rétt ný- kominn, og sagði: „Monsieur, cet homme-la nappaði mínum place dans la queue.“ Andlitssvipurinn lýsti mikilli meðaumkun. Á samri stundu hellti hann orðaflaumi yfir unga frakk- ann, sem ég skildi ekki orð í. En einmitt þá kom vagninn. Það urðu miklar stympingar, og áður en ég komst upp í, skaust sá nýkomni upp í fyrir framan mig, rétt í því að hann tók af stað. Auðvitað lærði ég smám saman þennan franska sið og ég hafði ekki gleymt honum, þegar ég kom til Munchen, þar sem ég stóð í minni fyrstu biðröð til að fá miða á Leð- urblökuna. Ég sá fljótt, að franska aðferðin gilti ekki þarna. Röðin var eins og eldflaug í laginu, um það bil tuttugu manneskjur stóðu með jöfnu millibili — passlega þétt til að geta heitið röð, en nógu gisið til að troða ekki næsta manni um tær. Tvær til þrjár manneskjur stóðu þar fyrir aftan og ég stillti mér upp og breiddi úr Munchnen- er Merkur. Ég var að byrja að lesa hugleið- ingar ritstjórans um veðrið um næstu helgi. þegar ég fékk ómjúkt pikk í bakið. Ég leit við og sá hvassnefjaða dömu, sem benti fram- eftir röðinni. Ég leit í sömu átt og sá, að röðin hafði færst um einn frameftir. „Afsakið,“ sagði ég og færði mig fram, um leið og ég kúrði mig aftur ofan í blaðið. f
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.