Úrval - 01.02.1975, Side 99

Úrval - 01.02.1975, Side 99
KOMDU MEÐ I MINA BIÐROÐ sömu andrá heyrði ég hvískurhljóð. Það leit út fyrir, að ég hefði fært mig heldur langt, því maðurinn fyrir framan mig leit á mig hneyksl- aður á svip. Hálf sleginn bakkaði ég nokkra sentimetra, en rétt í því fluttist röðin fram á við, svo ég fékk aftur ómjúklega potið í bakið. Þá rann skyndilega upp fyrir mér af hverju það voru ekki fleiri, sem lásu dag- blöðin sín í röðinni. Til að halda sínu plássi, varð maður að hafa at- hyglina vakandi. Með þessa reynslu að baki var ég fullkomlega vakandi, þegar ég þurfti í fyrsta sinn að standa í bið- röð í Róm til að fá nokkra stimpla hjá því opinbera á pappíra, sem heyrðu blaðamennskunni til. Röð- in var löng og það var enginn efi, að biðtíminn yrði langur. Það var augljóst mál, að enginn átti að leggja það á sig að standa í biðröð, án þess að hafa ættingja og vini í kringum sig. Og árangurinn varð sá, að hér ríkti sumarleyfisstemn- ing á meðan matur og drykkur gekk fúslega úr hönd í hendi. Þeg- ar ég smeygði mér inn í röðina eins og einmana kleina, störðu margir úr fjölskyldunni fyrir framan á mig. Lítil stúlka spurði: „Hvað er að hjá þessum herra? Af hverju er hann ALEINN?" Foreldrar hennar klöppuðu henni á kollinn og á tóninum í orðum þeirra skildist mér, að þeir væru að hugga hana — leiða huga henn- ar frá því mótlæti eða leynda harmi. sem maðurinn byggi yfir. Auðvitað reyndi ég að láta á mér skilja, að þessi beisku örlög hefðu ekki dreg- Öí ið úr mér allan mátt, svo ég spurði: „Hve lengi haldið þið að við þurf- um að bíða hérna?“ Börnin flissuðu: „Við höfum ver- ið hérna í tvo daga,“ sagði svo litla stúlkan. „í gær gekk röðin aftur á bak.“ „Aftur á bak?“ Það hljómaði ólík- lega. En nú birtist ungur embættis- maður. Með miklum kurteisistil- burðum leiddi hann virðulegan, ævagamlan herramann fram fyrir röðina og sagði: „Ecco, Commen- datore." Svo ýtti hann honum fremst inn í röðina, og við fluttum okkur aftur á bak um eitt set. „Skilurðu nú “ spurði litla stúlk- an. Ég horfði á ungan pilt, sem leit út fyrir að vera bróðir hennar. Hann yppti öxlum og brosti um leið og hann sló saman höndunum: „MAMA, gefðu vini okkar dálítið vín. Það erfiðasta, herra minn, er að vera einmana.“ Ég var hrærður — já og ham- ingjusamur. Ég fékk ekki pappír- ana mína stimplaða þann daginn. En hvað hafði ég annað að gera í Róm heldur en að drekka vín með rómarbúum og kynnast siðum þeirra? Þetta staðfesti það, sem ég áður hafði lifað. Það er hægt að þekkja þjóð af list hennar og smekk á mat og fötum. Það er hægt að setja hana á bás þjóðfélagsfræðilega. En fljótlegasti og ódýrasti mátinn er að bíða með henni í biðröð. Það hefur kennt mér margt og marg- víslegt og meðal annars að þekkja minn stað. ☆
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.