Goðasteinn - 01.09.1967, Side 17

Goðasteinn - 01.09.1967, Side 17
Þórarinn Helgason í Þykkvabœ: Jón Ásmundsson á Lyngum Jón Ásmundsson var um margt sérstæður maður og minnisstæður. Hann var um sjötugsaldur, þegar ég fyrst sá hann. Var þá orðinn lotinn nokkuð en mikill þó á velli og svipurinn stór og greindarleg- ur. Þótti mér sem barni, að hann mundi vera eftirmynd þeirra kappa, margra, er frá segir í Islendingasögunum. Jón á Lyngum var fæddur á Steinsmýri 27. janúar 1841, sonur Ásmundar bónda á Steinsmýri, Jónssonar bónda s. st., Guðmunds- sonar bónda s. st., Erlendssonar á Grímsstöðum í Meðallandi. Móðir Jóns Ásmundssonar var Guðrún Sveinsdóttir, Steingríms- sonar á Heiði á Síðu, en móðir Guðrúnar var Ragnhiidur Odds- dóttir frá Seglbúðum. Frá Oddi er mikil ætt, sem flestir Skaftfell- ingar eru af komnir. Eyjólfur Eyjólfsson hreppstjóri á Hnausum lýsir Jóni :á þessa leið: Stór vexti, mikill um herðar, frekar mittismjór, hánefjaður, með bogið nef, bláeygur og vel farinn í andliti, hafði netta hönd, bar sig vel á velli, hægur í fasi, en ef mikið reyndi á, manna snar- astur, og var sem hann tæki snöggum hamskiptum, greindur vel og skáldmæltur, prúðmenni en skapmaður og afburða kraftamaður. Það orð fór af Jóni, að hann væri seinn til vinnu á morgnana en drjúgur í verki á kvöldum. Smiður var hann og sérlega vandvirkur Goðasteinn 15

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.