Goðasteinn - 01.09.1967, Side 39
um þetta og fékk þau svör, að Stóruvallalækur hefði verið skorinn
fram og veitt vestur í Vindásós. Þetta sögðu þau hafa verið fyrir
sitt minni. Þeim og fleirum bar saman um, að yfirmaður verksins
hefði verið Sæmundur Guðbrandsson á Lækjarbotnum, sem þá var
hreppstjóri með Jóni Þorsteinssyni á Vindási. Aldrei hef ég heyrt
talað um, hver átti hugmyndina að þessu. Verkið tók tvo daga.
Lagði hver bóndi í Landsveit til þess einn mann, en bændur voru
þá 56. Meira fékk ég þá ekki að vita.
Svo liðu mörg ár, og ég átti að heita uppkominn maður. Var ég
þá einu sinni saman með Kristófer Jónssyni á Vindási. Hann gat
verið ræðinn og fræðandi væri maður með honum einum. Datt mér
nú í hug að spyrja Kristófer, hvenær hann myndi fyrst eftir sér og
hvað hann hefði þá verið gamall. Kristófer sagði þá, að hann
myndi fyrst, þegar Stóruvallalæk var veitt vestur í Vindásós. Hann
kvaðst hafa setið á stéttinni hjá smiðjudyrunum og séð mann koma
.austan með læk og bera eitthvað, sem glampaði óvenju mikið á
í kvöldsólinni. Þetta var þá Stefán Eiríksson vinnumaður á Vind-
ási að koma frá vatnsveitingunni og var skóflan svona fögur eftir
sandmoksturinn. Kristófer endaði frásögn sína með þessum orð-
um: „Þá var ég fjögra ára, þegar þetta var, og mér ætíð minnis-
•stætt síðan.“ Hann var fæddur 1847.
Nú vaknaði forvitni mín verulega og spurði því Kristófer: „Ætli
Stefán sé einn á lífi af þeim, sem unnu þetta þarfaverk?" Það taldi
Kristófer líklegt, því Stefán var 18 ára 1851. Von bráðar bar fund-
um okkar Stefáns saman, og fór ég þá að fikra að þessu við hann,
'hvort hann hefði unnið að því að búa til skurð fyrir Stóruvalla-
læk og veita honum vestur í Ósbotn. Kvað Stefán svo vera. „Það
var reynt að nota mig til þess, en ég var nú ekki beysinn bógur,
■ég var ekki nema 18 ára, þegar þetta var.“ „Voruð þið margir, sem
-unnuð að þessu?“ „Já, við vorum víst yfir 50 hvorn dag, því það
var öll sveitin.“ „Hvernig var verkinu hagað?“ „Það voru stungnir
kekkir og sniddur, borið í hrúgur og látið þar sem sást að þurfti
,-að nota það. Sæmundur á Lækjarbotnum sagði til þess, því hann
var yfirmaður.“ „Það hefir verið nokkur vinna að stjórna þessu?“
„Já, hann var svo duglegur, og svo var hann vel ríðandi, enda veitti
-ekki af, þetta var hátt í klukkutíma gangur á milli endanna. Hann
Goðasteinn
37