Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 58
En önnur hugsun, þessari langtum háleitari að eðli og uppruna,
hreyfði sér alloft hjá mér og vann hún allt það er hún mátti á móti
Illfýsni. Þessa hugsun nefni ég Aðvörun. Hún sagði mér að vara mig
á víninu og að ég væri alls ekki meiri maður fyrir það þó ég drykki
mig fullan og léti öllum þeim hroða- og heimskulátum sem Illfýsni
ráðlegði ntér, heidur skyldi ég líkjast mínum frægu forfeðrum í því,
að stunda stillingu og dugnað í öllu því sem gagnstætt væri þeirri
fíflsku sem Illfýsni vildi telja mér trú um að gengi næst fornaldar-
frægðinni.
Svona bitust þessar hugsanir smátt og smátt og vildu hvorug
undan annari láta. Þó var Aðvörun orðin til muna yfirsterkari er ég
13—14 ára lagði út í mína fyrstu drykkjuferð með systkinum
mínum, kunningjum og báðum þessum lagskonum mínum. En
hvernig skyldi nú fara? Var nú ekki óskaráð fyrir Illfýsni að reyna
til að ginna mig til að drekka og ná sér þannig upp á Aðvörun? Jú,
sjálfsagt. Hún mundi líka eftir því.
Fyrsta daginn gekk vel og skikkanlega og lentum við á Heiði um
kvöldið. Héldum við svo þaðan um morguninn og var þá ferðinni
heitið austur að Prestsbakkakirkju. Allstaðar þar sem við komum
var okkur tekið með velvild og gestrisni og viðast hvar var vínið
talið bæta góðgjörðir. Sumsstaðar var á boðstólum brennivín,
sumsstaðar romm.
Ég var ungur og óvanur áfengi en þótti bragðið gott. Fór ég nú
að finna dálitla breytingu á mér, ég varð fríari í mér og fannst mér,
að ég væri færari í flest en áður. En Aðvörun kom til mín og sagði
á þessa leið: „Varaðu þig á þessari hughvöt, ég segi þér það satt að
þú ert alls ekki meiri maður heldur en þú átt að þér, þó þér finnist
það, og ábyrgstu nú að drekka ekki meira, því gerirðu það, verðurðu
þér til skammarl’
Ég tók þessari bendingu vel og lofaði að passa mig. En hvernig
fór? Illfýsni garminum þótti nú illa vera á sig leikið og lagði nú allt
kapp á að hefna sín á Aðvörun ef færi gæfist. Færið kom strax,
víninu var haldið að mér og hafði ég ekki fullkominn kjark í mér
að neita því, þó ég myndi eftir heilræðum Aðvörunar. Til dæmis
sagði einn maður við mig: „Þú mátt til að fá í staupið aftur, því þú
ert svo lítill og ert víst settur hjá þar sem þeir stærri geta fengið eins
56
Goðasteinn