Mímir - 01.07.1987, Qupperneq 8
var í námi hjá Bjarna Guðnasyni, þá eyddum
við hálfum vetri, að mig minnir, í eins konar
málstofu um bók Lars Lönnrot um Njáls sögu
sem þá var nýútkomin. Þannig að ég held að
fagið sé tiltölulega opið fyrir nýjum straumum,
þó alltaf megi gera betur að sjálfsögðu.
„Veröldin er nokkuð stór og ísland er
nokkuð lítið.“
Væri ekki leið til að gera enn betur, að fá oft-
ar erlenda gestakennara hingað í skólann? Þið í
málfræðinni hafið einn slíkan nú; hvernig
reynist það?
Höskuldur: Það hefur náttúrulega mjög góð
áhrif, þegar hægt er að koma því við. Ég sé að
Bjarni er hér með reglugerð um rannsókna-
stofnanirnar í fræðunum en í henni stendur að
hlutverk þeirra sé m.a. að fá hingað erlenda
fræðimenn. í 7. grein um Bókmenntafræði-
stofnun stendur t.d. að starfsiið hennar eigi að
vera m.a. gistiprófessorar, sérfræðingar og
styrkþegar, og þetta er hliðstætt í öðrum stofn-
unum. Þeir menn sem sömdu þessar reglugerð-
ir hafa verið bjartsýnir á að alit yrði fljótandi í
peningum til að koma þessu í framkvæmd. En
það er ekki hlaupið að því að fá peninga í
þetta. Það er undantekningartilfelli núna að
hægt var að nýta þessa Fulbright-kennara í ís-
lenskum fræðum. Auðvitað leggja erlendir
menn stund á þessi fræði og það stendur
þannig á með þennan sem er að kenna mál-
fræði núna. Það væri kannski hægt að fá
hingað einhvern sem leggur stund á íslenskar
bókmenntir.
Hefur það nokkurn tíma verið gert?
Bjarni: Nei, ég man ekki til þess að svo sé, en
ég tek undir að það væri mikill fengur að fá
hingað fræðimenn að utan, þó það væri ekki
nema í stuttan tíma til þess að bera með sér
nýjan anda og nýja strauma. Ég sé ekki betur
en að við bókmenntamennirnir þurfum að fara
að huga að þessu máli. En þetta er vitanlega
ekki aðeins spurning um vilja, þótt hann sé
nauðsynlegur líka, heldur verður að fá fé. Við
þurfum að gera þetta, Matthías.
Matthías: Já, en mér finnst vera dálítil oftrú
á þessu: sendikennarar koma ekki með heim-
inn til okkar, við verðum að skapa hann sjálf.
Það sem vantar kannski heist hjá okkur er
raunveruleg málstofa, akademískt andrúmsioft,
þar sem er unnið saman að því að skoða nýj-
ustu kenningar og rannsóknir, og auðvitað ættu
nýjustu kenningar í íslenskum fræðum að
koma héðan.
Bjarni: Þetta er nú auðveldara sagt en gert.
Veröldin er nokkuð stór og ísland er nokkuð
lítið.
Matthías: En við fáumst við bækur, er ekki
svo Bjarni, og þær er hægt að fá í póstkröfu að
utan á einum mánuði. Að auki talar veröldin
ekki íslensku.
Matthías: Sendikennarar koma ekki með
heiminn til okkar, við verðum að skapa hann
sjálf
Ertu á móti því, Matthías, að fá hingað
sendikennara?
Matthías: Nei, síður en svo og langt í frá. Ég
vildi bara benda á að það verður enginn há-
skóli raunverulega góður nema af eigin afli.
Teljið þið að kennarar og nemendur hafi
alltaf aðgang að nýjustu fræðibókum í hverju
fagi?
Höskuldur: Nei, það eru auðvitað alltaf
8