Mímir - 01.07.1987, Page 13

Mímir - 01.07.1987, Page 13
Höskuldur: Ég veit það nú ekki, en í einni af þessum nefndum sem komið hefur verið upp í Heimspekideild, og ég held að við Eiríkur höf- um báðir verið í, var verið að ræða þetta sem Bjarni var að tala um að við erum með dóm- nefnd og síðan með deildarfund og dómnefndin skilar sínu áliti og deildarfundur skilar sínu, og það kemur kannski ekkert fram sérstaklega í þessu áliti deildarinnar hvað þeir menn telja sem best vit hafa á málinu, þ.e.a.s. kennararnir í viðkomandi grein. Og þess vegna vorum við að velta því fyrir okkur hvort ástæða væri til þess að fá þeirra álit sérstaklega þannig að kennarafundur í greininni, t.d. íslensku eða sagnfræði, væri sá aðili sem léti álit sitt í ljós. En þá kæmi kannski inn þetta kunningja- vandamál. Matthías: Ég fæ ekki annað séð en að hætta á klíkuskap sé nokkuð mikil innan Heimspeki- deildar. Æskilegasta staðan er auðvitað sú að hópur sérfræðinga ráði þessum málum, sér- fræðinga sem eiga engra hagsmuna að gæta, innlendra og erlendra. Höskuldur: Annars hafa menn orðið varir við að það er hœgt að reka opinbera starfsmenn. „Hvar á að hola vesalingnum niður?“ Hvert er álit ykkar á æviráðningu kennara? Matthías: Hún er óæskileg eins og allar ævi- ráðningar embættismanna. Höskuldur: Það eru auðvitað ákveðnir gallar sem fylgja öllum æviráðningum. En það er kannski erfiðara hér en í stærri þjóðfélögum að hafa flestar stöður tímabundnar. Þetta var t.d. prófað þegar lektorar komu fyrst í Heimspeki- deild árið 1965. Upphaflega voru þær stöður ekki fastar. Menn voru ekki æviráðnir strax, heldur bara ráðnir til fimm ára og hugmyndin var að það yrði skipt um í þessum stöðum. Síð- ar var þessu breytt og náttúrulega fyrir þrýsting frá þeim sem fengu þessar stöður því mönnum fannst að þeir hefðu ekkert öryggi. Aðstæðurn- ar eru líka öðruvísi hér en sumstaðar annars staðar þar sem fólk getur ráðið sig til næsta háskóla. En vegna þess hve samfélagið er smátt er ekki um mikið að velja fyrir menn. En það er hins vegar hætta á því að við sem erum bún- ir að fá þessa æviráðningu bara setjumst á rass- inn ósnertanlegir, eins og heilagir menn. Annars hafa menn orðið varir við að það er hægt að reka opinbera starfsmenn. Hvað er hægt að reka ykkur fyrir? Höskuldur: Ég kann nú ekki alveg að hafa það eftir, en það er fyrir meiriháttar afglöp í starfi. Bjarni: Það er alveg ljóst að þetta er eitt af þeim atriðum sem fylgja bæði kostir og gallar. Gallar við æviráðningu eru einkanlega tveir. í fyrsta lagi þá er hætt við að viðkomandi stirðni í starfi bæði fræðilega og kennslulega. I öðru lagi veldur þetta því að ungir menn, karlar og konur, komast ekki að, þ.e.a.s. fá ekki tækifæri. Á móti þessu mælir svo tvennt. Að öllu jöfnu má ætla að eftir því sem menn starfa lengur öðlist þeir meiri reynslu og þekkingu í grein sinni og í öðru lagi, hvar á að hola veslingnum niður? Það þýðir ekki að hafa neina ósk sem ekki er framkvæmanleg. Ef þið vilduð gera Bjarna Guðnason að einhverjum fínum manni hér úti í bæ, þá skal ég athuga málið. En svo ég sleppi allri gamansemi, einhvers staðar verða vondir að vera. Nú og ég vil bæta því við að ég þekki ekki það land þar sem ekki er æviráðn- ing á prófessorum og ég held að stafi fyrst og fremst af því að menn telji að yfirleitt eigi menn að vaxa að þekkingu í fræðum sínum og það eigi að vega á móti íhaldssemi og leiðind- um. Matthías: En er þá ekki rétt að láta 13

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.