Mímir - 01.07.1987, Qupperneq 17

Mímir - 01.07.1987, Qupperneq 17
Steinunn Stefánsdóttir: Gm mun á orðavali kvenna og karla Að stofni til er þessi grein lokaritgerð í námsskeiðinu Islenskar mállýskur, sem þœr Sigrún Þorgeirsdóttir og Þóra Björk Hjartar- dóttir kenndu á haustönn 1986. Þær /ásu greinina aftur yftr í handriti og þakka ég þeim góð ráð og athugasemdir. 1. Inngangur 1.1 Er munur á máli kvenna og karla? Ekki hefur mikið verið ritað um málfarsmun kvenna og karla, ef miðað er við það hversu mikið hefur verið ritað um tungumál, talað mál og mállýskur. Þó hefur þessu atriði verið nokkur gaumur gefinn á allra síðustu árum. Það hafa þá einkum verið kven-málfræðingar eða málvísindakonur og femínistar, sem um þessi mál hafa fjallað. Einnig hefur verið fjallað um þennan þátt sérstaklega í umfjöllun um mállýskurannsóknir. Framburðarmunur og munur á orðavali eða orðanotkun eru þau svið málfarsmunar kynjanna sem helst hefur verið farið inn á. Enda eru flestir sammála um að í þessum þáttum felist munurinn á máli kynj- anna, en ekki í málfræðilegum þáttum. 1.2 Efni þessarar ritgerðar í þessari ritgerð er ætlunin að fjalla um það hvort munur sé á orðanotkun kvenna og karla, og ef svo er, í hverju hann felist þá. í öðrum kafla er lauslega drepið á hugmyndir um mun- inn á kvenna- og karlamáli. Þriðji kafli fjallar um litaheiti. Fyrst er sagt frá flokkun litaheita í mismunandi afmarkaða flokka, síðan minnst á rannsókn á notkun litaheita sem gerð hefur verið hérlendis og loks er sagt frá erlendum rannsóknum á mun á notkun litaheita milli kynja. Fjórði kafli fjallar um könnun á mun á notkun litaheita milli kynjanna, sem ég gerði í október síðastliðnum. Fimmti kafli segir frá könnun sem ég gerði samhliða hinni um mun á notkun lýsingarorða milli kynja, þær niður- stöður eru bornar saman við erlendar hug- myndir. Síðan er sagt frá mun á lýsingarorða- notkun milli aldurshópa en hann reyndist heldur meiri en milli kynja. í sjötta kafla eru örfá lokaorð. 1.3 Um framkvæmd könnunarinnar Þátttakendur voru fjórtán, sjö karlar og sjö konur. Þetta fólk var á aldrinum 14 til 69 ára og reynt var eftir megni að prófa alltaf bæði karl og konu í sama aldursflokki. Þátttakendunum var sagt að verið væri að athuga orðamun eftir aldri. Það er ástæðan fyr- ir því að í lýsingarorðalistanum eru bæði gömul og ný slangurorð. Flest lýsingarorðin voru tekin upp úr Slang- urorðabókinni, en litalistinn var unninn af málningarlitaspjöldum. Einungis tveir þátttakendur, karl og kona, höfðu orð á því að munur væri á orðanotkun kvenna og karla. Karlinn talaði um að sum orðin (lekkert, gasalegt) notaði hann ekki í samtölum við karlmenn heldur aðeins „þegar ég er að tala við stelpurnar hér heima”, eins og hann sagði. 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.