Mímir - 01.07.1987, Síða 19

Mímir - 01.07.1987, Síða 19
3.2 íslenskar athuganir Birgitta Bragadóttir (1986) skrifaði B.A.-rit- gerð í almennum málvísindum sem heitir: Grunnlitarheiti í íslensku. Samkvæmt niður- stöðum Birgittu, sem hún byggir á eigin könn- un að fyrirmynd Berlin og Kay frá 1969, en þeir hafa rannsakað litaheiti í nrörgum tungu- málum, eru grunnlitaheiti í íslensku þau níu sem talin eru upp í fyrsta flokki hér að framan. Samkvæmt Berlin og Kay mega grunnlitaorð ekki vera samsett og ekki tengjast ákveðnum hlutum eða efnum, og þau þurfa að vera öllurn töm. Litaheitin appelsínugulur og Jjólublár eru líklega öllum Islendingum töm, en samkvæmt þeirri skilgreiningu að grunnlitaheiti megi ekki vera samsett, teljast þau ekki vera grunnlita- heiti í íslensku. Þar sem appelsínugulur og jjólublár eiga hvergi heima nema í þriðja flokki hér að framan, hækka þeir einkunnina hjá öll- um og skekkja þar með í raun heildarmynd litaheitanna. í ensku teljast báðir þessir litir til grunnlita, enda bera þeir þar ekki samsett nöfn heldur heita þeir orange og violet. Ritgerð Birgittu ljallar ekki sérstaklega um mun á litaheitum eftir kynjum. Hún víkur þó lítillega að því að sá munur sé fyrir hendi og segir: Karlmennirnir nefna orð eins og jarpur (hestar), antikhvítur og beinhvítur (málningar- litir), silfurlitur, gulllitur og brons (málmar), en konurnar nefna: karrígulur, sægrænn, lillarauð- ur (-bleikur) og fleiri samsetningar sem miðast e.t.v. helst við liti á fatnaði eða vefnaðarvöru. (Birgitta Bragadóttir 1986:30 — 31) 3.3 Um erlendar rannsóknir á litaheitum í tímaritinu Language and Speech hafa ver- ið kynntar rannsóknir á notkun litaheita bæði hjá börnum og fullorðnum. í rannsókn Elaine Ritch (1977) er þátttak- endunum skipt í fimm flokka, konum og körl- um er skipt í tvo flokka hvorum eftir aldri og fimmta flokkinn skipuðu nunnur. Helstu niðurstöður þessarar könnunar voru þær að konur notuðu afmarkaðri litaheiti en karlar, yngri karlar notuðu afmarkaðri lita- heiti en þeir eldri, og nunnur notuðu minna af afmörkuðum litaheitum en aðrar konur (Ritch 1977:404-410). Christine C. Sleight og Philip Prinz birtu í Language and Speech 1982 niðurstöður úr könnun sinni á notkun litaheita hjá börnum. Þessi rannsókn sýndi ekki marktækan mun á notkun Iitaheita milli kynja, aftur á móti leiddi hún í ljós að eldri stelpurnar notuðu af- markaðri litaheiti en þær yngri. (Sleight og Prinz 1982:75-81). í Language and Speech 1982 eru einnig birtar niðurstöður úr könnun Ronald Nowaczyk. Hann fékk engan marktækan mun á notkun litaheita hjá konum og körlum, þeg- ar hann lét þátttakendur sjálfa nefna litaheiti. Hins vegar notuðu karlar frekar grunnliti í þeim hluta könnunarinnar sem fólst í því að þátttakendur voru Iátnir para saman litaheiti og liti. Einnig kom fram í þessum hluta könn- unarinnar að konur notuðu frekar litaheiti úr 3. flokki (sbr. 3.1.) „rétt“ en karlar (Nowaczyk 1982:257—267). Það má svo deila um það hvort rétt sé að halda því fram að eitt og aðeins eitt nafn á ákveðnum lit sé rétt. 4. Könnun á mun á notkun litaorða hjá konum og körlum 4.1 Framkvæmd Litakönnunin var framkvæmd þannig að 28 litir voru valdir nokkurn veginn af handahófi af málningarlitaspjöldum. Reynt var að hafa einn litareit með hverjum dæmigerðum grunnlit og nokkra breidd í þeim litum sem fyrirfram mátti búast við að kynbundin lita- heiti kæmu fram. Litareitirnir voru klipptir út af litaspjöldunum og límdirinn á hvíta teikni- blokk, tveir á hverja blaðsíðu. Teikniblokkinni var svo flett og þátttakend- ur beðnir um að svara því hvað þeir kölluðu hvern lit. Vegna þess að oftast var prófað að kvöldlagi, var ekki hægt að nota dagsbirtuna sem hefði verið ákjósanlegast. Því var reynt að hafa blokkina alltaf undir lampa, þannig að birtuskilyrði væru sem jöfnust. Prófstaðirnir voru fjórir. 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.