Mímir - 01.07.1987, Síða 60

Mímir - 01.07.1987, Síða 60
líkelgt að orðalag af þessu tagi (þriðjungi hærri o.s.frv.) væri að finna. En bæði fyrir það að orðalag af þessum toga er ekki ýkja algengt og án efa meira bundið við talmál en ritmál varð mér ekki mikið ágengt. Þegar ég var svo heppin að rekast á dæmi þá var það iðulega svo að einhverja stærðina vantaði og því ekki hægt að vita fyrir víst hvað það merkti. Seðlasafn Orða- bókar Háskólans kom mér heldur ekki að gagni og fannst forsvarsmönnum Orðabókarinnar ekki trúlegt að ég fyndi þar nothæf dæmi þar sem þetta fyrirbæri hefði sjálfsagt ekki verið haft í huga við söfnun dæma. Því varð að grípa til annarra ráða hvað það snerti og skoða það út frá samtímalegu sjónarmiði (sjá 4. kafla). En dæmi um helmingi meira voru svo að segja á hverju strái og framan af í merkingunni tvö- földun. í Konráðsorðabók (1851), hjá Eiríki Jónssyni (1863), í orðabók Fritzners (1867), hjá Blöndal (1920 — 1924), í Ensk-íslenskri orða- bók Arnar og Örlygs (1984) og í Islensku samheitaorðabókinni (1985) er orðasamband- inu helmingi meira og/eða hálfu meira gefin merkingin tvcföldun. Merkingin miklu meira fyrir þessi orðasambönd er að sjálfsögðu líka til en hún kemur þessum hugleiðingum ekki beint við. Fleiri taka undir þessa merkingu orða- sambandsins helmingi meira: í Nýjum félags- ritum (1854:184) segir: ...: sauðakjöt er rúmlega 5 sinnum dýrara í Lundúnum en á Islandi, því að 3 pd. í Lundún- um eru eins dýr og stundum dýrari en 16 pd. á íslandi; nú getur hver kaupmaður gefið helm- ingi meira fyrir kjötið á íslandi, eða eins mikið fyrir 16 pd. eins og 6 pd. kosta í Lundúnum,... í kennslubókum sínum í þykkvamálsfræði (1912) og flatarmálsfræði (1915) notar Halldór Briem sambandið einnig í merkingunni tvö- földun. Dæmi: 11. dæmi. Hve breiður og langur er hektari, sem er rjetthyrningur, þegar lengdin er helm- ingi meira en breiddin? Svar: 70,71 m og 141,42 m. (K. í f. bls. 65). í orðabók Menningarsjóðs (útg. 1963) ber aftur á móti svo við að ein sú skýring sem gefin er á sambandinu helmingi stœrri er: 100% (50%) stærri, og er einnig svo í aukinni útgáfu bókar- innar 1983. Þarna er sem sé kominn til (að vísu innan sviga) sá skilningur eða merking að helmingi meira geti merkt 50% meira og þá ætti samkvæmt því 15 að vera helmingi hærri tala en 10. Sagan segir að einhverjum reikn- ingsmönnum hafi dottið í hug að gamli skiln- ingurinn (þ.e. tvöföldunin) væri ekki rökréttur; fyrst helmingur af 10 er 5 þá eru það 15 sem eru helmingi hærri en 10 í stað 20 hjá okkur hinum. Þó svo að þessi skilningur kæmi sér ágætlega fyrir mig sem miða alltaf að öðru leyti við lægri töluna þegar farið er svona upp á við, og þannig búið að bjarga mínu kerfi og gera það rökrétt, er ég þó engan veginn sátt við þau málalok. Hjá mér þýðir það að hafa helmingi meira af einhverju að hafa tvöfalt það sem var. Og því verður ekki breytt (a.m.k. hvað mig snertir) þó svo að einhverjum finnist það ekki rökrétt. En ekki duga fyrir nrig rökin að segja að ég miði við hærri töluna. Svo mikið er víst að það geri ég ekki nema þá í helmingstilvik- inu en þá ekki meðvitað. Mér finnst einhvern veginn eins og þessi helmingur í helmingi meira hafi ekkert með hálfan að gera; þetta orðasamband að eitt sé helmingi meira en annað hafi bara þessa merkingu (þ.e. tvöföld- un) burtséð frá öllum reikningskúnstum og rökréttu samhengi. Það er a.m.k. eina skýring- in sem ég get fundið á þessum viðmiðunarmun mínum (ég er ekki ein um þennan mun sbr. 4. kafla); helmingurinn margumræddi er bara orðinn nokkurs konar atviksorð í þessu sam- bandi sem fær bara merkingu út frá orðasam- bandinu í heild. En hitt er annað mál að hjá sama einstaklingi getur helmingi meira bæði merkt 50% meira og 100% meira (sjá 4. kafla). Þeir sem vildu breyta málvenjunni og gera hana rökrétta (!) vildu lýsa sambandi talnanna tíu og tuttugu með því að segja að 20 væri tvisvar hærri eða tvisvar sinnum hærri tala en 10. En eins og Helgi bendir á í grein sinni má ýmislegt að því finna. 60
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.