Mímir - 01.07.1987, Page 87

Mímir - 01.07.1987, Page 87
lyfti upp hendinni og sagði: Afstyrmið þitt, þjófurinn þinn, og sló mig fast í andlitið. Ég heyri að útihurðin lokast niðri. Benni var alltaf svo líkur pabba. Það sáu allir um leið og hann fæddist. Ég heyri raddir þeirra niðri og ég veit að hún er að segja honum frá því. Blóð- lausar hendur mínar kreppast enn fastar um haldið á töskunni. Bráðum heyrist þungt fóta- tak í stiganum, svo opnast hurðin, vinnuskórn- ir hans Benna birtast í gættinni og hann segir: Mamma, mamma, ekki einu sinni enn. Hann er svo líkur pabba. Ég þrýsti mér þéttar að stól- bakinu og dreg fæturna eins vel undir stólinn og ég get. Pabbi þrífur í handlegginn á mér og rykkir mér á fætur. Ég finn að blóðið byrjar að renna. Hann togar mig upp tröppurnar af stað heim. Hvernig gastu gert okkur þetta, segir hann aftur og aftur. Ég reyni að halda blóðinu í mér, en það rennur. Mamma þín fékk svo mikið áfall þegar stúlkan í búðinni hringdi að hún lagðist í rúmið, segir pabbi. Þú skalt fá hirtingu sem þú gleymir aldrei. Svoleiðis að þú látir þig aldrei dreyma um að stela aftur. Hann heldur fast í höndina á mér og stikar stórstígur áfram. Ég streitist á móti. Hvað ætlar hann að gera? Skelfingin grípur um mig ná- köldum fingrum. Ég streitist á móti blóð- straumnum en það er ekki hægt þegar maður neyðist til að hlaupa. Hebbi, Nonni og ég eigurn öll heima í sömu raðhúsalengjunni. Ég veit að þeir munu sjá okkur pabba þegar við förum framhjá. Mamma hans Hebba verður í eldhúsgluggan- um eins og venjulega. Og líka hinar konurnar, en ekki mamma mín því hún er í rúminu að skammast sín fyrir mig. En blóðið mun renna. Hurðin opnast. Vinnuskórnir hans Benna stíga á rauðu rósina í teppinu. Hvítar blóðlaus- ar hendur mínar eru þurrar og kaldar. Súkku- laðið er enn í veskinu. Þeir brosa brúnum tönnum með súkkulaði- tauma í munnvikjunum. Mamma, ætlarðu aldrei að hætta þessu. Það þýðir ekki að reyna að fela sig bak við skáp eins og smábarn. Guð minn góður hvað ég blygðast mín fyrir þig mamma, og Þorbjörg líka. Hvernig heldurðu að þetta sé fyrir okkur? Hvernig heldurðu að það sé fyrir Þorbjörgu að svara í símann og hlusta á kaupmanninn segja að tengdamóðir hennar sé búðarþjófur? Ha, mamma? Hann þrífur í höndina á mér og rykkir mér upp úr stólnum. Benni hefur alltaf svarið sig í mína ætt. Hann er svo líkur pabba. Þú ert með þetta í veskinu þínu er það ekki, segir hann. Ég þrýsti veskinu að brjóstinu. Hann togar mig fram á ganginn. Nú ferð þú og skilar því sem þú tókst. Nei, Benni, ekki. Ég get það ekki. Ekki pabbi, ekki. Ég reyni að losa höndina úr greip hans. Það heyrist hátt í mölinni í inn- keyrslunni þegar hann dregur nrig áfram. Ég finn augun stara á mig úr öllum gluggum, og nú rennur óstöðvandi blóðtaumur niður eftir lærinu og kálfanum. Ég streitist á móti. Hvað ætlar hann að gera? Ég spyrni hælunum niður og mölin ryðst upp í hrúgu á undan mér þar til hún verður svo stór að ég hrasa. Pabbi dregur mig áfram, en hann opnar ekki hliðið heldur hendir mér upp að girðingunni. Ég veit að öll eyrun í gluggunum hlusta og hann öskrar: Nú skaltu fá það sem þú átt skilið, þjófurinn þinn. Ég þrýsti andlitinu upp að kaldri girðingunni. Nei Benni, ekki það. Ég gríp dauðahaldi í stigahandriðið og spyrni við báðum fótum. Ég grét ekki þá en ég græt núna. I raun og veru var heldur ekki æsandi að stela þessu súkkulaði. Og ég veit ekki hvort Hebbi og Nonni eru lif- andi eða dauðir. Benni er orðinn rauður í framan. Hann hefur alltaf verið svo líkur pabba. Nei Benni, ekki það. Ég græt án tára. Hann réttir úr blóðlausum, krepptum fingrum mín- 87

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.