Mímir - 01.07.1987, Síða 89
Starfsannáll Mímis
1985-1986
Þeir sem skipuðu stjórn Mímis veturinn
1985 — 1986 voru Aðalsteinn Eyþórsson formaður,
Lára Hreinsdóttir gjaldkeri, Oddný S. Jónsdóttir
ritari og Gunnar Þ. Halldórsson meðstjórnandi.
Fulltrúar ritnefndar í stjórn voru þau Elín Bára
Magnúsdóttir og Kristján Kristjánsson.
Fyrsta hefðbundna uppákoma vetrarins var
Kraftakvöld, sem var haldið í nóvember 1985 í sal
Húnvetningafélagsins í Skeifunni 30. Kvöldið stóð
vel undir nafni, um fjörutíu manns mættu á svæðið
og skemmtu sjálfum sér og öðrum af miklum krafti
fram eftir nóttu. Önnur hefðbundin uppákoma
vetrarins var sjálf Jólarannsóknaræfingin. Hún var
haldin 14. desember 1985 og var undirbúningur að
þessu sinni mestmegnis í höndum sagnfræðinema.
Arni Sigurjónsson var ræðumaður kvöldsins og
nefndist erindi hans „Bjartur og sveitasælan“. Fjör-
ugar umræður spunnust eftir fyrirlestur Árna sem
vænta mátti og eftir þær var dans stiginn fram eftir
nóttu. Þorrablót Mímis var haldið í Stúdentakjall-
aranum 8. mars 1986. Heiðurgestur kvöldsins var
Þuríður Baxter og flutti hún sköruglega ræðu að
borðhaldi loknu. Um 30 manns mættu og var
samkoman vel heppnuð í alla staði.
Þá ber að nefna rannsóknarleiðangra félagsins en
þeir voru tveir í tíð stjórnarinnar. Sá fyrri var vor-
rannsóknarleiðangur er farinn var 19. apríl 1986 í
Borgarfjörð. Sveinn Skorri Höskuldsson var farar-
stjóri og nutu um 20 Mímisliðar öruggrar leiðsagnar
hans þann daginn. Heiðursgestur var Kristján
Árnason.
Síðari rannsóknarleiðangurinn var farinn í fyrra-
haust, nánar tiltekið þann 25. október. Fararstjóri
var Matthías Viðar Sæmundsson og leiddi hann um
50 Mímisliða (sem ég held að sé algjört met!) í allan
sannleika um sögufræga staði í Árnessýslu.
Heiðursgestur var Höskuldur Þráinsson og fór vel á
því að hafa Þingeying og Árnesing í fararbroddi.
Almennir félagsfundir voru tveir á þessu starfsári.
Þann 4. desember 1985 var haldinn fundur til að
kynna hugmyndir um breyttan próftíma. Halldóri
Guðjónssyni prófstjóra var boðið á fundinn og gerði
hann grein fyrir fram komnum tillögum. Ljóst er að
sú breyting kæmi misvel niður á deildunum og var
stjórn Mímis ásamt námsnefnd falið að semja
greinargerð um málið. Þann 9. október s.l. var
haldinn félagsfundur og var umræðuefnið tillaga
dagskrárstjóra RÚV um stutta útvarpsþætti í hönd-
um íslenskunema um bókmenntir. Örfáir mættu^
fundinn en stjórnin fól þeim Gunnhildi Ottósdóttur x
og Soffíu Auði Birgisdótturað annast þessi mál.
Bókmenntakynning var haldin í Skólabæ 11.
desember 1985. Einar Kárason og Sigurður Pálsson
lásu úr verkum sínum auk þess sem Svanhildur
Óskarsdóttir las upp úr ritverki Vigdísar Grímsdótt-
ur, Eldi og regni. Um 30 bókmenntaunnendur
mættu og að upplestri loknum spjölluðu íslensku-
nemar við skáldin og bar margt fróðlegt á góma.
Þann 15. febrúar 1986 gekkst Mímir aftur fyrir bók-
menntakvöldi í Skólabæ. Að þessu sinni var það
haldið í minningu Jóns Helgasonar. Stefán Karlsson
varð við bón íslenskunema að segja frá kynnum sín-
um af Jóni auk þess sem lesið var upp úr ljóðum
hans og sá Védís Skarphéðinsdóttir um þá hlið. Góð
mæting var og stóð samkoman til miðnættis.
Síðastliðið vor skipaði stjórn Mímis nefnd sem
var falið það hlutverk að annast og undirbúa alla
dagskrá sem haldin var í tilefni af 40 ára afmæli
Mímis. Nefndina skipuðu þau Guðrún Ingólfsdótt-
ir, Guðvarður Már Gunnlaugsson og Sigríður
Steinbjörnsdóttir. Afmælisnefndin gekkst m.a. fyrir
röð fyrirlestra og var sá fyrsti í höndum Sverris
Tómassonar. Fyrirlestur hans fjallaði um Fyrstu
málfrœðiritgerðina og menntun á íslandi á 12. öld.
Um 50 manns mættu á fyrirlesturinn og spunnust
umræðurað honum loknum.
í tíð stjórnarinnar komu tveir Ratatoskar út
(ófrjálst og háð málgagn stjórnarinnar) og símaskrá
Mímis kom út snemma á vorönn 1986. Blað
íslenskunema Mimir kom út í apríl s.l. og var það
24. og 25. árgangur.
Að lokum vil ég fyrir hönd stjórnarinnar
1985 — 1986 óska afmælisbarninu alls hins besta í
framtíðinni.
Oddný S. Jónsdóttir, ritari.
89