Mímir - 01.06.1996, Síða 21

Mímir - 01.06.1996, Síða 21
nautnir hans. Hann var feykilega hræddur við djöfulinn en hneigðist þó að honum í frygðugum hryllingi, hann stundaði svartagaldur og djöfla- særingar en ímyndaði sér samt framá síðustu stund að hann kæmist undan kvalaeldi helvítis. Þegar hann fáeinum mánuðum fyrir dauða sinn gekk til altaris auðmjúkur í anda og blóðugur uppfyrir axlir bað hann almúgafólk um að krjúpa með sér við gráturnar jafnframt því sem hann einsetti sér að halda uppí pílagrímsferð til Jórsala. Svo hélt hann áfram að skera börn. Aftökustund- in sjálf einkenndist af himinhrópandi fyrirgefning- arbón og fáránlegri vissu um líknandi guðdóm og eilífa sæluvist í paradís. Hugur Gilles de Rais er okkur ólæsilegur en kannski hefur mannkynið verið hlutkenndur massi í hans augum, efnislegur glundroði; í org- íunni öðlast hann fullt vald yfir þessu efni um stund, og það hefur enga merkingu fyrir utan þessa brjáluðu nautn sem veittist honum einum. Þetta er utanvið alla skynsemi enda var ekkert skynsamlegt við Gilles, hann lifði í einhverskonar vitstola óráði sem um síðir steypti honum í glötun af einum hæsta tindi samfélagsins. Hann var skrímsli hvernig sem á málið er litið enda var honum blandað saman við Bláskegg, skuggalega ófreskju, í þjóðtrúnni; maður af þessu tagi gat ekki verið einn af okkur, hann hlaut að tilheyra öðru kyni, annarri náttúru. Gilles sjálfur var sér vitandi um ferlegan ljótleika sinn því hann kvaðst fyrir rétti hafa fæðst undir alveg sérstöku stjörnu- merki og við félaga sinn sagði hann: Enginn mað- ur fær nokkurntíma skilið það sem ég hefi gert! Hann ímyndaði sér að hann stæði nálægt máttar- völdum annars heims enda var honum hugfast allt til loka að djöfullinn kæmi honum til bjargar. Þetta sjálfsmat endurspeglast í sögninni sem um hann var sköpuð líktog ýmsa aðra stórglæpa- menn, en samkvæmt henni hafa þeir sérstök tengsl við hið yfirnáttúrulega svo sem sjá má af þjóðsögu um íslenskan fjöldamorðingja, Björn á Öxl. Þetta voru helgir menn líktog dýrlingar kirkj- unnar þótt á annan hátt væri, helgi þeirra var ekki guðdómleg og hrein heldur óhrein og djöfulleg. Þá er það með undarlegri tilviljunum sögunnar að Gilles var höfuðstoð dýrlingsins Jóhönnu af Örk í hernaði hennar gegn Englendingum; þau mynda sérkennilega samstæðu innan sögulegs tíma líktog Kristur og djöfullinn á sviði hins yfirnáttúrulega. Mannlegt rökvit leysist uppí reyk frammi fyrir athæfi svarta barónsins eins og Gilles var kallaður því það getur ekkert frekar skýrt hið illa núna en á tímum rannsóknardómarans; illskan heldur áfram að vera óleyst vandamál, leyndardómur, hvað sem sálarfræði og sálgreiningu líður. Þessi vangeta vitsins kemur skýrt fram í áðurnefndri skáldsögu Illuga Jökulssonar þarsem spurt er hvort mann- helgin sé náttúrulögmál og ef svo sé hvað hafi þá farið úrskeiðis: Hvers virði er lífið í raun og veru, er það jafnmikils virði allsstaðar eða er hitt satt að lífið sé fremur munaður en réttur? Hvað gefur tveggja ára gönrlu soltnu og skítugu smábarni sem skilið hefur verið eftir úti á götu í borg heilagan rétt til að lifa; er eitthvað athugavert við að bjarga slíku barni frá örlögum sem eru sýnu verri en dauðinn með því að skjóta það? Eru hugmyndir okkar um rétt og rangt, um eðli mannsins og algilt siðferði nokkuð annað en reglusmíð sem klambr- að hefur verið saman af fólki sem hefur nóg að éta og tíma til að grufla? Uppgjörið á síðustu síðum skáldsögunnar leysir þetta vandamál ekki, heldur er breitt yfir það með skáldlegu málæði í anda nytsemishyggju: við skulum trúa á lífið og hið góða af því það er hagkvæmt og okkur fyrir bestu. Sagt er að tómhyggja morðingjans sé lygi, að him- inninn sé blár þótt geimurinn sé svartur, að ljósið bliki fagurlega á leið sinni að tómi sem einnig sé hvítt. Illugi er hér einsog útsprunginn Einar H. 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.