Mímir - 01.06.1996, Page 39

Mímir - 01.06.1996, Page 39
Kíkt í höfuð konunnar Viðtal við Ingibjörgu Haraldsdóttur Ingibjörg Haraldsdóttir er fædd í Reykjavík 21. októ- ber 1942, dóttir Haraldar Björnssonar verkamanns og Sigríðar Guðmundsdóttur húsmóður. Hún gekk í Austurbæjarskólann þar til hún flutti í Kópavoginn og var þar í fyrsta og öðrum bekk í gagnfræðaskóla. Síð- an lá leiðin í landspróf í Vonarstræti og því næst í Menntaskólann í Reykja- vík. Þaðan lauk hún stúd- entsprófi vorið 1962. Árið eftir útskrift kenndi hún ensku og íslensku í Voga- skóla en söðlaði síðan um og hélt til Moskvu haustið 1963. Þar dvaldi hún í 6 ár, fyrst við rússneskunám en síðan í kvikmyndahá- skóla. Þaðan lá leiðin til Kúbu þar sem hún bjó önnur 6 ár og starfaði við leikhús. Heim sneri hún árið 1975 en árið áður hafði fyrsta ljóðabókin hennar, Þangað vil ég fljúga, komið út. Síðan þá hefur Ingibjörg sinnt ritstörfum og við hafa bæst þrjár ljóðabækur: Orðspor daganna (1983), Nú eru aðrir tímar (1989) og Höfuð konunnar (1995), en einnig hefur heildarsafn ljóða hennar verið gefið út undir heitinu Ljóð (1991). Auk frumsam- inna ljóða liggja eftir Ingibjörgu fjöldi þýðinga, Ijóð, leikrit og skáldsögur, m.a. mörg af leikritum Tsjekhovs og skáldsögur Dostojevskís. Ingibjörg er nú formaður Rithöfundasambands Islands. ÞÁ Þá komu blámenn í strápilsum öskrandi upp barónsstíginn vopnaðir bjúgsverðum úr þúsundogeinninótt og tyrkjagudda starði á mig endalausum svörtum augum utanúr köldum geimi og einhversstaðar í fjarska var ísland að sökkva þá voru nætur langar og slysum ofnar. (Þangað vil ég fljúga) Það er skýr og skemmtileg barnsreynsla sem birtist lesendum Þangað vil égfljúga, er það barn- œska Ingibjargar Haraldsdóttur sem þar er lýst? Já, það held ég, að einhverju leyti að minnsta kosti, annars eru þetta svo gömul ljóð að ég er búin að gleyma því. Jú, í einhverjum þeirra eru minningar sem ég á frá, ja bæði frá dvöl í sveit og eins úr skólanum. Samt eru þau öll ort töluvert seinna. Ég byrjaði eiginlega, æ, ég veit ekki hvenær ég byrjaði að yrkja, bara þegar ég var krakki. En ég birti ljóð í 37

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.