Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 47

Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 47
Friðriks A. Friðrikssonar sem gefin voru út fyrir nokkrum árum. Þar sjáum við Jóhann gjarnan standa álengdar eins og barn sem virðir fyrir sér furður veraldarinnar. Jóhann umgekkst skáld og listamenn í Leipzig. Ætla má að seinni kona hans, Elisabeth Goehls- dorf sem sjálf var listhneigð, hafi kynnt hann fyrir mörgum kunningjum sínum og vinum. Heimildir eru um að Jóhann hafi fallið vel inn í hóp þýskra listamanna og að hann hafi eignast trausta vini meðal þeirra. M.a. er frægt hve góður upplesari hann þótti, bæði á þýsku og íslensku. Af þessu má ætla að Jóhann hafi bæði beint og óbeint orðið fyrir áhrifum af listrænu andrúmslofti samtímans, ekki síst af expressjónismanum sem þá hafði náð hátindi í Þýskalandi. Freistandi er að spyrja hvort expressjónískra áhrifa gæti t.d. í Söknuði. Expressjónísk orðanotkun í Söknuði Segja má að Jóhann hafi allan tíma sinn í Þýska- landi verið að leita sátta milli hugmyndaheims æskulandsins og landsins sem fóstraði hann. Eins og áður er komið fram er leitin á heildina litið árangurslaus; undantekning er þó ljóðið Söknuð- ur. í ljósi þess hve ljóðið er frumlegt er freistandi að spyrja um expressjónískar rætur þess. Sérstak- lega er í þessu tilliti aðlaðandi að skoða ljóðstfl- inn, notkun einstakra orða. í Söknuði er tekist á við lífslygi og leiðindi eins og í mörgum expressjónískum ljóðum og Jóhann er ekki síður miskunnarlaus í greiningu á samtím- anum en expressjónistar. Hann lýsir sljóleika, fá- breytni og eintóna tilveru með orðum sem rífa í hlustir, stinga í augu. í Söknuði er fjallað um hálfa skynjun, hugsanir og tilfinningar eru sundraðar, („leiðindin virðast ... sefast“, „vér áttum oss ... til hálfs“, „svefnrofum líkist“). Þrátt fyrir sundur- virkni í aðstæðum ljóðsins beinast orðfæri og stfll að því að skilja eftir heila og gagntakandi skynjun í huga lesandans. Ymis sagnorð Saknaðar eru dýnamísk, en hreyfing og kraftur eru einmitt einkenni á ex- pressjónískum Ijóðum. („þutu“, „falla“, „blæs“, „höldum áfram“). Og seinasta orð ljóðsins kallar á áframhaldandi hreyfingu og átök, meginvið- fangsefninu er fleygt út í tómið. Spurningin hlýtur ekki endanlegt svar, miklu frekar felur hún í sér endalaust bergmál. Til þess að vekja lesandann beitir Jóhann tung- unni líkt og expressjónistar. Hann slítur orð úr venjulegu samhengi, raðar þeim saman á nýstár- legan hátt, ljær þeim frumleg merkingarbrigði, og smíðar jafnvel ný. Þessi aðferð er vel þekkt meðal expressjónista og minnir hér að ýmsu leyti á hið fræga ljóð Freudenhaus eftir Stramm. Söknuður birtist fyrst í Vöku árið 1928. Þótt fátt segi af almennum viðbrögðum við kvæðinu vakti það a.m.k. athygli hjá bókmenntamönnum. Að- spurður um það hvort ritstjórn Varðar hefði þótt Söknuður nýstárlegt hefur Kristján Albertsson sagt: „Jú, algjörlega, algjörlega. Algjört nýja- bragð. Það hafði ekkert birst sem var neitt líkt þessu áður. Enda hristu sumir höfuðið, sko — vantaði þetta hefðbundna form á kvæði, þetta var í lausara formi.“ Líklegt má telja að frumleikinn í Söknuði sé ekki jafnaugljós lesendum tíunda áratugarins og lesendum ársins 1928. Tungumálið hefur breyst og skilningur á frumlegri orðnotkun í ljóðinu dofnað. Færa má rök fyrir því að sumt af því upprunaleg- asta í orðalagi kvæðisins sé nú orðið að hvers- dagstuggu, hálfdauðu myndmáli. 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.