Mímir - 01.06.1996, Page 50

Mímir - 01.06.1996, Page 50
stíl guðspjallanna og þó sérstaklega Opinberunar- bókarinnar, (sjá t.d. 16. k. hennar). Söknuður eftir hverju? Söknuður á meðal annars sammerkt mörgum öðr- um expressjónískum ljóðum að bera heiti sem er eitt merkingarhlaðið nafnorð. Heitið hjá Jóhanni vísar hins vegar í allt aðra átt en hjá expressjónist- um, sem sé til fortíðarinnar, meðan meginein- kenni á expressjónískum ljóðum er að horfa fram til komandi tíma. Petta frávik stendur í svo afger- andi andstöðu við expressjónismann að einmitt þess vegna er freistandi að líta á það sem undan- tekninguna sem sannar regluna. I ljóði Bechers, „Maður rís upp“, er fyrsta línan eins konar stökkpallur frá ógeðfelldri nútíð til aðlaðandi framtíðar. Ljóðið felur í sér von um betri tíma, það er dæmigert fyrir expressjóníska hvatningu til náungans, til manna og kvenna að takast á við óbærilegan heim og skapa nýjan. I Söknuði er fyrsta línan („Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað,“) stökkpallur til fortíðar. Ljóðið er um árangurslausa leit sundraðra manna að ástæðum fyrir þjakandi nútíð. Nútíðarlýsing í Söknuði fellur mæta vel að lýs- ingu ýmissa expressjónista á áttlausum og glötuð- um borgarbörnum. Skynjunin er „óviss“, skiln- ingurinn er hálfur. Hugurinn er „úrvinda", menn eigra eins og milli svefns og vöku („Svefngangar vanans“, eitthvað sem líkist ,,svefnrofum“). Þeir eru þolendur einhvers sem eitt sinn má hafa verið mönnum kunnugt (Guð?) en er það ekki lengur. Vitundin verður fyrst allsgáð í óvissu en ekki vissu, spurn en ekki fullyrðingu: „Hvar!“ Hið ein- staka, hið heila, sem á örskotsstund leiftrar af er samstundis „drukknað í æði múgsins og glaums- ins“. Og áfram er haldið, „hver sína villigötu“. Allt ljóðið er vondauf tilraun til að svara spurning- unni sem borin er fram í fyrstu ljóðlínunni. Sökn- uður, andstætt expressjónískum ljóðum, er þrung- inn fortíðarþrá en ekki fortíðaruppgjöri. „Annars þekki ég nú víst manna best heim- þrána til íslands. En ég veit jafnframt, að það Island sem ég þrái, býr aðeins í sjálfum mér — er fantóm, sem hvergi á sér neitt realítet nema í minni eigin sköpunarþrá og aldrei verður að virki- leik nema í gegn um minn sköpunarvilja. Já, ef til vill erum við hvergi meir í framandi landi en þar heima á íslandi, eins og það nú er orðið. Ég veit að ótti minn við lífið þar er borinn af réttu in- stinkti, — íslenska þjóðin, eins og ég þarfnast hennar, er hvergi til, nema í minni eigin ósk. Ég hef í seinni tíð náð í nóg af representöntum hennar til þess að fá vissu mína í þessu efni, og lendi ég heima úr þessu, skeður það eingöngu af neyð.“ En fortíðarþráin í Söknuði hverfist ekki einung- is um sjálfa sig heldur fleygir hún meginhugsun ljóðsins beint inn í nútímann hverju sinni. Söknuður býður upp á fjölbreytilega túlkun. Eitt sem mér finnst að við, sem lifum á hundrað- asta aldursári skáldsins, getum lesið úr ljóðinu er hverfulleikinn. Það Þýskaland sem Jóhann bjó í er horfið, Þýskaland fasismans er einnig horfið, sömuleiðis er hið tvíklofna Þýskaland kaldastríðs- áranna horfið. Einhvern veginn virðist það ekki vera nein tilviljun að Söknuður, þetta ljóð um hverfulleikann, sé ortur í landi hverfulleikans. Þótt ljóðið beri heiti sem vísar til fortíðarinnar bendir það á þverstæðukenndan hátt beint til nú- tíðarinnar hverju sinni. Með tímanum leitar sú hugsun æ meira á mann að Söknuður sé ekki einungis söknuður eftir liðnum athöfnum og gleymdum stundum heldur felist miklu fremur í ljóðinu eftirsjá eftir vannýttum tækifærum, eftir því sem hefði getað orðið — hefði átt að verða — en varð aldrei. 48

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.