Mímir - 01.06.1996, Page 53

Mímir - 01.06.1996, Page 53
lokin í stuttum kafla. Stríðskveðskapur, ferða- kveðskapur og ástarkveðskapur fær svo sinn skerf þar inni á milli. Kveðið fyrir konung í heiðni voru goðsöguleg efni mjög áberandi í kvæðum hirðskálda og liggur við að það gildi einu um hvað verið var að yrkja, alltaf voru hæstvirt goðin innan seilingar. Oft virðist skipting Robertu Frank, sem minnst var á hér áðan, ekki fá nægan stuðning sé miðað við mörg þekkt kvæði: sem sagt á þann hátt að ef ort er t.d. beint til konungs er hann samofinn goðunum í kenningum o.þ.h. I Hákonardrápu Hallfreðar vandræðaskálds er Há- kon settur í hlutverk Óðins. „Hér er um að ræða eina samfellda myndhverfingu þar sem talað er um það hvernig Hákon vann Noreg eins og karl sé að vinna ástir konu og ganga að eiga hana. Þessi mynd hverfist öll um þá goðafræði að Jörð var kona Óðins og sú sem hann átti Þór með.“5 AIl- mörg dæmi eru um slíka notkun goðafræðinnar í dróttkvæðum og þá að sjálfsögðu helst í heiðni. Skáldin voru ekki alltaf í þeirri þægilegu að- stöðu að þurfa bara að mæra konunginn til að hafa vinnu hjá honum. Menn eins og Egill Skallagríms- son lentu í því að þurfa hreinlega að yrkja sér til lífs. Við slíkt tækifæri kvað hann Höfuðlausn sem seint verður þó talið til hans persónulegri kvæða, eins og áðan var gefið í skyn að væri að finna í hans kveðskap. Ástæðan fyrir því hlýtur að vera sú að fáurn væri það væntanlega auðvelt að yrkja lof um mann sem rétt í þessu hefði hótað manni lífláti eins og Eiríkur konungur blóðöx hafði gert í þessu tilfelli. Vellekla (gullskortur) er drápa eftir Einar skálaglamm þar sem jarlinn er ávarpaður svo og hirðin. Skáldið telur ástæðu til að fólk hlusti vel því kvæðið magnist smátt og smátt og greinanlegt er að skáldið fer ekki varhluta af því að hann muni gott skáld vera. Konungi er líkt við Þór ásamt því að minnst er á framgöngu Hákons í varðveislu heiðins siðar. Kvæðið mun hafa þjónað marg- þættu hlutverki en ekki verið aðeins til afþreying- ar. Það átti stóran hlut í að festa konung í sessi en til þess var leikurinn oft gerður. Skáldin höfðu þó ekki aðeins það markmið að festa konung í sessi meðal þjóðarinnar, einnig var þeim annt um að festa sjálf sig í sessi hjá konungi. Roberta Frank er þessarar skoðunar. Hún telur að þeim hafi einnig verið hugleikið að sannfæra konunginn fyllilega um að hann þyrfti á sér að halda. Hver konungur var jafnframt varla mjög merkur nema hann hefði fleiri en eitt skáld við hirð sína. Verksvið skáldanna var heldur ekki ein- þætt. Ekki voru þau aðeins skáld heldur oft á tíðum sendiherrar, ráðgjafar, hermenn og jafnvel þjónar eða lífverðir. Kvæðagerð þeirra virðist hafa útlagst sem iðja einhversstaðar á milli þess að vera starf og tómstundaiðja. Roberta líkir þessu við það að hafa gráðu í íslensku þar sem hún gæti veitt einstaklingi atvinnu sem ekki hefði alltaf að gera með sérgrein þess sem gráðuna hefur/' Þegar kristni kemur til sögunnar verða skáldin oftar en ekki að kasta trú í kjölfar yfirmanna sinna. í kveðskap sem þá fylgdi voru hinar heiðnu kenningar ekki lengur við lýði en það aftraði mönnum eins og Hallfreði vandræðaskáldi ekki frá því að yrkja hina merku Erfidrápu um Ólaf Tryggvason konung. Stíll Hallfreðar í drápunni svipar nokkuð til klassísks stíls latínuskálda og notkun ríms og hrynjandi ber vott um mikla hæfi- leika. Hetjusagnaminni ber fyrir í kvæðinu en slíkt mun ekki hafa talist til brots á hinni nýju trú; kvæðið ber ekki hinn skrauthlaðna stíl heiðnu kvæðanna en í staðinn er um meiri tjáningu til- finninga að ræða. Mikill flokkur manna fylgdi í kjölfar Hallfreðar og ekki rúm til að telja þá alla upp hér en þó skal minnst á Sighvat Þórðarson og lausavísu hans sem er ort eftir dauða Ólafs konungs en endursögn vísunnar hljóðar svo hjá Vésteini Ólasyni: 51

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.