Mímir - 01.06.1996, Side 80

Mímir - 01.06.1996, Side 80
Matthías Johannessen Ritstýrð sagnfræði, hetjur og Ijóð 1. Áhugi minn á fornum sögum beinist helzt að þeim sem bók- menntum, ritstýrðri sagnfræði; þ.e. skáld- skap, en ekki miðaldaheimsmynd aftan úr öldum þótt hnýsileg sé; eða dæmisögu (allegóríu) þótt hún sé víða á næstu grösum í góðum skáldskap einsog kunnugt er og má nefna Innansveitarkroniku sem nærtækt dæmi, þ.e. guð byggir kirkju, en slíkur dulbúning- ur þótti höfuðprýði skáldskapar fyrr á öldum og er þónokkuð algengur í nútímaskáldskap, einkum ljóðlist. Yfirburðir íslendinga sagna, ekki sízt Njálu, birtast í listinni. Þær fjalla um manninn og and- stæðurnar í eðli hans einsog við þekkjum þær úr lífinu sjálfu, en ekki t.a.m. grískum leikritum til forna sem lýsa hetjum og guðum í mannlegu sam- félagi og leggja áherzlu á guðleg tengsl mannsins. Þar er andstæðunum í eðli hans að vísu rækilega lýst og oft með drastískari hætti en í fornsögum okkar, enda eru þær fremur sprottnar úr lífinu sjálfu einsog það blasir við venjulegu fólki en ekki goðsögulegu efni sem er forsenda hómerskviða og grískra leikrita, hvort sem þau eru gleði- eða harmleikir. íslendinga sögurnar eru lífið sjálft. Þær fjalla um manninn í allri sinni nekt, ekki endilega and- spænis guðum og goðaheimi heldur umhverfi sínu. Samt fjalla þessi verk fyrst og síðast um hetjur eins og fornar grískar bókmenntir, en það eru hetjur hversdagslífsins sem um er fjallað, þótt yfirburðir þeirra geti á stundum minnt á goðsögu- leg einkenni grískra hetja. En íslenzkar hetjur til forna eru í litlum tengslum við guðina þótt heiðn- ar séu oft og einatt og lifa sig ekki inn í goðsöguna nema í dróttkvæðum vísum eða kvæðum sem sækja dæmisöguna eða tungutakið í goðsagnir ása- trúar. Þær eru að vísu í rækilegum tengslum við drauma og örlög, en þó varla meir en við sem nú lifum eða Sturla Þórðarson sem var sannkristinn maður en draumspakur með afbrigðum og aug- ljóslega örlagatrúar í aðra röndina einsog margir samtímamenn hans. Verk þessara manna bera því að sjálfsögðu vitni en þó ekki úr hófi fram. Sagna- skáldskapur þeirra lýsir ekki sízt hugarfari þeirra og umhverfi, þótt sögurnar eigi að fjalla um fornar hetjur fyrir og um kristnitöku. Halldór Laxness hefur jafnvel kveðið svo fast að orði í samtölum okkar að hann hafi alltaf lesið fornsögurnar „vegna þess að mér finnst þær skemmtilegar og áhugasamlegar, en ekki sagn- fræði“. Og það hefur jafnvel flögrað að honum að „það væri ekki nokkurt sagnfræðilegt orð í Heims- kringlu“. Þessi rit, jafnvel konungasögurnar, séu þannig skáldsagnabókmenntir í eðli sínu og menn verði að leita sagnfræðinnar annars staðar, enda koma frásagnir ritanna síður en svo alltaf heim og saman við gallharðar heimildir. List Halldórs sjálfs er af sömu rótum runnin. Það er því óhætt að skyggnast um í verkum hans með því hugarfari að um sé að ræða svipaðar skáldsagnatæknilegar aðferðir í ýmsum ritum hans og við þekkjum af fornsögunum. Tilgátan stenzt ef farið er í saumana á þessum verkum, t.a.m. Njálu. Sögurnar eru augljóslega skrifaðar út úr arfsögnum og umhverfi með sama hætti og Halldór skrifaði Innansveitarkroniku og Guðs- gjafaþulu, en í þulunni segir að Islandsbersi hafi verið hetja eins og Grettir sterki og því hefur verið ærin ástæða til að skrásetja sögu hans, ekki síður en Grettlu. 78

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.