Mímir - 01.06.2005, Side 8

Mímir - 01.06.2005, Side 8
Minningarorð Prófessor Hreinn Benediktsson 1928-2004 Hreinn Benediktsson fæddist á Stöð í Stöðvarfirði 10. október 1928. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 7. janúar síðastliðinn. Hreinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1946, 17 ára að aldri. Eftir að hafa kennt einn vetur við skóla sinn að loknu stúdentsprófi hélt hann til náms í samanburðarmálfræði við Óslóarháskóla og þaðan lá leiðin um tíma til Parísar. Hreinn lauk meistaraprófi í samanburðarmálfræði frá Ósló 1954. Eftir það stundaði hann nám í Freiburg í Þýskalandi og síðan í Bandaríkjunum, en hann lauk doktorsprófi frá Harvardháskóla 1958. Sama ár varð hann prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla íslands og gegndi því starfi þar til hann fór á eftirlaun. Þegar Hreinn var við nám í Ósló var þar öflugt vígi málvísinda. Þar störfuðu heimsfrægír málfræðingar á borð við Carl Hjalmar Borgstrom, Knut Bergsland og Hans Vogt, og var þar meðal annars lögð stund á keltnesk málvísindi, finnsk-úgrísk mál, auk germanskrar samanburðarmálfræði; andi formgerðarstefnunnar eða strúktúralismans sveif yfir vötnum. í París mun Hreinn hafa kynnst hugmyndum André Martinet. Við Harvardháskóla varð Hreinn nemandi Romans Jakobsons og varð fyrir sterkum áhrifum frá honum, þótt dvölin við þann skóla hafi ekki verið löng, vart meira en ár samkvæmt tiltækum annálum. En Jakobson var einn af frumhugsuðum Pragarskólans svokallaða í málfræði, ásamt mönnum eins og Nikolai Trúbetskoj. Þetta var hinn evrópski strúktúralismi, sem hugaði mjög að hlutverkum máleininganna. Ég hygg að á þessum árum hafi málfræðihugsun Hreins mótast að fullu þannig að hún stóð óbreytt það sem eftir var starfsævinnar. Hreinn beindi í fyrstu sjónum sínum að hljóðkerfisfræði og því hvernig útskýra megi málþróun á grundvelli hljóðkerfisvensla. Þetta var heimasvæði formgerðarstefnunnar, en mikið af innsæi þeirrar kenningar spratt einmitt af athugun á hljóðafari tungumála. Doktorsritgerð Hreins, sem birtist í styttu formi í tímaritinu Word 1959, kafar djúpt i slík lögmál og Hreinn seturfram sögu íslenska sérhljóðakerfisins með furðu dramatískum hætti sem keppni milli ólíkra hljóðþátta, tónþátta og hljómþátta, um völd í kerfinu. Sú örlagasaga sem þar er rakin lið fyrir lið minnir í byggingu á [slendingasögu þar sem vinir og frændur berjast. Að lokum er það kringingarþátturinn sem sigrar fjarlægðarþáttinn. Þessi átakasaga er eitt af því fyrsta sem undirritaður meðtók af þessum fræðum, og verður aldrei samur eftir. Raunar viðurkennir Hreinn að ytri aðstæður ráði miklu um málþróun hins islenska hljóðkerfis, en innviðirnir ráða úrslitum um það hvernig úr aðstæðunum verður unnið, rétt eins og tilfinningaþræðir og fjölskylduvensl ráða mannlegum örlögum ekki síður en ytri aðstæður. Segja má að Hreinn hafi kynnt formgerðarstefnuna hér á landi einmitt á þeim tíma sem hún var að renna sitt skeið. Noam Chomsky hafði birt hina frægu bók sína Syntactic Structures 1957, en hún olli meiri byltingu í málfræðihugsun en áður hafði þekkst. Þótt Hreinn hafi kynnst þessum kenningum hélt hann sig við strúktúralismann og kenndi samanburðarmálfræði af miklum skýrleik og röggsemi. Á síðari stigum námsins kynnti hann okkur fyrir kenningum Chomskys. Ungar sálir hrifust af þessari hugsun, en Hreinn var efablandinn. Hann beitti hugsun formgerðarstefnunnar á mörg vandamál í íslenskri málsögu, ekki síst hljóðsögu. Minnisstæðar eru útskýringar á tveimur stigum hljóðvarpa. Sú dularfulla staðreynd hljóðvarpanna að eitt hljóð smitaði annað um leið og það hvarf varð fullskiljanleg þegar gerður var greinarmunur á hljóðeðli og hlutverki hljóðamunar. Hin dularfulla sjálfsmorðsárás áherslulítils / í gastiR sem gaf myndina gestr, sem síðar varð okkar gestur, varð skiljanleg þegar formgerðarhugsun var notuð. Hreinn beitti af mikilli íþrótt aðferðum á íslensku sem menn eins og W. Freeman Twaddell höfðu beitt á þýsk hljóðvörp (reyndar þegar árið 1938). Önnur minnisstæð skýring Hreins er sú að breytingar í rithætti áherslulausra sérhljóða í handritum á tilteknu tímabili sýndu sig að stafa ekki af breytingum á áherslulausu hljóðunum 6
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.