Mímir - 01.06.2005, Page 107
sem fljúga um allan heim að leita honum frétta eru
táknmyndir fyrir huga sjamans, sem ferðast langar
leiðir utan líkamans. Þessi hæfileiki Óðins til þess
að ferðast til hinna dauðu og geta aflað sér frétta
hvaðanæva að virðist hafa átt vel saman við það
hlutverk hans, að vera hernaðarguð.38
Sjamanisma fylgir óhjákvæmilega sú
ókarlmannlega iðja að fremja seið. í Ynglinga sögu,
þegar sagt hefur verið frá hæfileikum Óðins til þess
að skipta hömum, er Óðni ennfremur lýst á þennan
hátt:
„Óðinn kunni þá íþrótt, svá at mestr máttr fylgði,
ok framði sjálfr, er seiðr heitir, en af því mátti
hann vita orlgg manna ok óorðna hluti, svá
ok at gera mgnnum bana eða óhamingju eða
vanheilendi, svá ok at taka frá mgnnum vit eða
afl ok gefa gðrum. En þessi fjglkynngi, er framið
er, fylgir svá mikil ergi, at eigi þótti karlmgnnum
skammlaust við at fara, ok var gyðjunum kennd
sú íþrótt."39
Dag Strömbáck hefur skoðað völvur og seið þeirra
í nokkrum forníslenskum ritum og borið saman
við samíska sjamana og síberíska sjamanahefð.
Margt er líkt með athöfnum völva í íslenskum
heimildum og sjamana í þeim samísku, en
grundvallarmunurinn er sá að íslensku völvurnar
voru allar kvenkyns á meðan samísku sjamanarnir
voru allir karlkyns. í síberískri hefð eru sjamanar
bæði karlkyns og kvenkyns en víða eru konurnar
álitnar öflugri en karlarnir. Þannig að verið gæti
að eitthvað sé sérstaklega kvenlegt við seið í
norðurevrópskri og norðurasískri hefð og vegna
þess hafi hann verið tengdur ergi á norrænu
svæði.40 Auk þess taka karlsjamanar í Síberíu
oft upp kvenlega siði, flétta hár sitt og ganga í
kvenfötum. Víða bera öflugustu karlsjamanarnir
kvenmannsnöfn. Þótt þetta sé freistandi skýring á
ergi seiðsins er ekki að sjá að kvengerving sjamana
ríki á samískum svæðum, sem gæti skýrst af því að
Samarnir frömdu sína seiða naktir.4'
Mjög fáar sögur segja frá seiðum Óðins, sú
athyglisverðasta í þessu Ijósi er sagan um Rindi.
Þegar Óðinn vissi að Baldur yrði drepinn af bróður
sínum Heði, vantaði hann hefnanda, því ekki gat
hann drepið son sinn til að hefna fyrir annan son.
Hann fékk fyrirspá um að eina konan sem gæti
borið honum son til hefndar, væri jötunkvinnan
Rindur. Hann reyndi því að komast yfir hana, en
sama hve mörg dulargervi hann reyndi og hve
38 Ellis Davidson 1964, bls. 142-147.
39 íslenzkfornrit XXV11979, bls. 19.
40 Strömback 1935, bls. 149-150.
41 Strömbáck 1935, bls. 195-196.
margar gjafir hann færði henni, vildi hún ekki þýðast
hann. Að lokum notaði hann rúnagaldur til að gera
hana vitstola og óða, bjó sig svo sem læknisfróða
konu og fékk að sinna sjúklingnum. Með seiðum og
klækjum tókst Óðni svo að geta Vála við Rindi.
Þessi saga minnir um margt á kvennafarssögur
Seifs, en í þessari sögu fer Óðinn í kvengervi og
fremur seið. Við þá iðju hlýtur honum að hafa
svipað til hinna síberisku sjamana. En kvengervið
og seiðurinn verða til þess að hann getur son, son
sem er hefnandi og mun lifa Ragnarök. Upp úr
erkierginni verður því til mikil karlmennska.
Þór
Öfugt við þá Loka og Óðinn leikur enginn vafi á
karlmennsku Þórs. Hann er þrumuguðinn, verndari
manna og ása og fer reglulega í austurveg að
berja á jötnum. Samt lendir hann nokkrum sinnum
í niðurlægjandi aðstæðum sem hann hefur ekki
stjórn á. Útgarða-Loki beitti Þór og förunauta hans
sjónhverfingum, fyrst í gervi risans Skrýmis, sem
batt hnúta sem Þór gat ekki leyst og virtist varla
finnafyrir hamarshöggum Þórs. Síðan þegar Þór
og hans fólk atti kappi við menn Útgarða-Loka í
ýmsum íþróttum og höfðu alltaf verr, en þar endaði
Þór á að glíma við Elli kerlingu og beið lægri hlut.42
Loki notarfyrri hluta sögunnar í Lokasennu, það
hvernig Þór skalf af hræðslu í hanska Skrýmis og
gat ekki leyst hnúta hans.43
En það er einmitt í Lokasennu sem Þór lendir
aftur í vandræðum sem karlmennska hans
getur ekki leyst. Þór kemur á elleftu stundu inn í
Lokasennu og flytur fjórar andlausar vísur gegn
Loka, sem allar hefjast á sama fyrri helmingi
og samanstanda af lofi um Þór sjálfan og verk
hans og hótunum um hvernig hann ætli að drepa
Loka. í fimm svarvísum tekst Loka að koma inn
örlögum Þórs við Ragnarök, svívirðingum um
vanmátt Þórs gegn Skrými, kaldhæðni um að
ætla að lifa af og bölvun til allra guðanna í lokin.
Orðaskipti Loka og Þórs endurspegla orðaskipti
Hárbarðs og Þórs í Hárbarðsljóðum. Þór er fastur
í formgerð senna og hreykir sér og hótar hinum
á meðan Loki og Hárbarður leika sér með formið
og beita ýmiskonar stílbrögðum. Vísur Loka eru
sveigjanlegar og margbreytilegar og innihalda
svívirðingar, bölvanir og kaldhæðni og sigrar hann
hiklaust Þór í sennu þeirra. Þór er ekki sá eini sem
var sigraður j sennunni, á undan honum senntu
fimmtán goð við Loka og báru lægri hlut en Þór
hagar sér heimskulegar en þau, hann reynir að
42 Snorri Sturluson 1949, bls. 65-74.
43 Eddukvæði 1949, bls. 160-161.
105