Mímir - 01.06.2005, Side 52
í vondum amerískum samsæris trylli" (NÞA, bls.
154). Samsæri er engu að síður staðreynd og smátt
og smátt sannfærist Einar um að fylking Ólafs
Hinrikssonar fjármálaráðherra tengist dauða Abel
Goodman á einhvern hátt. í Reyðagerðismálinu
verður Einar viss um að fjármálaráðherra sé sekur
um misnotkun á almannafé. Ólafur hafði ausið
fjármunum ótæpilega til atvinnuuppbyggingar í
eigin kjördæmi en hér glittir þó aðeins í toppinn
á ísjakanum. Ábendinguna hafði Einarfengið frá
stjórnarandstöðunni sem einnig tekur þátt í þeim
leik að reyna að hafa áhrif á hvaða fréttir birtast í
fjölmiðlum.
í Ijós kemur að Abel Goodman framdi sjálfsmorð
þegar hann tók of stóran skammt af eiturlyfjum
og gömul kærasta Einars kroppaði úr honum
augun eftir að hann var látinn, vegna þeirrar
misnotkunar sem hún þurfti að þola af hans
hendi. Þrátt fyrir þessar uppljóstranir er sú gáta
enn óráðin í bókarlok hvernig valdhafar landsins
tengjast málinu. í Hvítu kanínunni skýrist mynd
hinna raunverulegu glæpamanna sem reynast
vera tengdir kynlífsglæpahring sem stendur
m.a. fyrir kynferðisiegri misnotkun á börnum og
unglingum. Hér er ekki um glæpamenn af lágum
stigum að ræða heldur berast böndin smátt
og smátt að valdablokk fjármálaráðherra. Þeir
Alfreð Hauksson, Snorri útgerðarmaður í Keflavík
og Eiríkur í Viðskiptaþjónustunni tengjast allir
skipulagðri glæpastarfsemi á einn eða annan hátt.
Einar blaðamaður dregst inn í atburðarásina miðja
eftir að Gunnsu dóttur hans er rænt. Án þess að
vita það býr Einar yfir upplýsingum sem geta komið
upp um starfsemi hringsins í formi dagbókar Abel
Goodman. Ekki næst til raunverulegra glæpamanna
en peðum erfórnað og glæpurinn telst því
upplýstur. Spænski lögreglumaðurinn Carvalho
sendir Einari bangsa sem tákn fyrir glæpamanninn
sem tekinn var fastur:
Á korti sem bundið er um háls hans með vír
stendur:
„Við náðum þó stóra bróður hans. C.“
Það heldur þú, hugsa ég. Það heldur þú (HK,
bls. 207).
Einar kemst í návígi við Eirík hjá
Viðskiptaþjónustunni á flugstöð eftir að hann hefur
gert sér grein fyrir tengslum Eiríks við mannránið.
Tii marks um ósnertanleika hinna háttsettu
glæpamanna skilur gler þá Einar og Eirík að, ekki
reynist unnt að koma lögum yfir Eirík.
í þriðju bókinni um Einar blaðamann,
Bláu tungli, tekst loks að knésetja höfuð
valdaklíkunnar Ólaf Hinriksson fjármálaráðherra.
Fiughótelstarfsmaðurinn Eyrún gerir játningar hjá
geðlækninum Ástu sem hún neyðist til þess að
opinbera fyrir Hannesi ritstjóra á Síðdegisblaðinu.
Ekki er þó hægt að segja að réttlætinu sé fullnægt
þar sem refsing Ólafs fjármálaráðherra, sem tekur
þátt í kynferðislegri misnotkun, hæfir engan veginn
glæpnum. Ólafi er gert að segja af sér embætti en
raunverulegir glæpir hans eru ekki gerðir opinberir
á síðum dagblaðanna, fremur en hjá öðrum
hvítflibbagiæpamönnum. Þannig bregst fjölmiðillinn
hlutverki sínu sem málsvari sannieikans. Á ný eru
það þeir lægra settu sem taka út fulla refsingu líkt
og Ásta Björg geðlæknir. Spillingin er þannig enn
við lýði í lok bókarinnar þó svo að málamyndasigur
hafi unnist með afsögn Ólafs.
Raunverulegir glæpamenn bókarinnar eru ekki
ógæfumenn af iægstu stigum samfélagsins, eins og
fjölmiðlar halda á iofti, heldur voldugir og siðblindir
yfirstéttarmenn. Glæpirnir eiga sér dýpri rætur en
finna má í afbrotum einstakra persóna. Orsaka
þeirra er að leita í sjálfri samfélagsgerðinni. Hér
er gripið niður í samtal Einars við hinn frelsaða
Hermann Guðfinnsson hagfræðing:
„Hver er antikristur núna?“ spyr ég og berst við
að halda raunveruleikaskyninu.
„Vinur, hann er kallaður Markaður. Dýrkun
antikrists á okkar tímum felst í dýrkun á
markaðnum. Ef spurn er eftir einhverju á
markaði, sama hversu óguðlegt og hræðilegt
það er, þá er í góðu lagi að dýrka það. Og það
50