Mímir - 01.06.2005, Side 33
súrrealískrar skopmyndar. Mælendur Megasar eru
sjálfum sér samkvæmir, yfirleitt harðir og grófir
í tali, lausir við alla rómantík og væmni. Málfar
textanna virðist þannig vera í eðlilegu samhengi við
umhverfið, sem oftast er köld og regnvot Reykjavík,
þar sem vindurinn er einatt í fangið.
Helstu andstæður í kvæðaheimi Megasar eru
sveitin og borgin annars vegar og hins vegar
utangarðsmenn og innangarðsmenn. Hann
deilir hart á samtíð sína og háðið er hans helsta
verkfæri. Með háðinu skerpir hann andstæðurnar
og flettir um leið ofan af þeim kaunum sem hann
finnur í samfélaginu. Hann lagar hefðirnar að eigin
hugmyndum og reynir að færa þjóðmenninguna
í nútímalegra horf, úrsveitinni og inn í borgina,
rétt eins og þjóðin sjálf hefur að mestu yfirgefið
strjálbýlið.
Megas syngur þvert gegn allri pólitískri
rétthugsun. í höfundarverki hans er t.a.m. hvergi
að finna hamingjusamar vísitölufjölskyldur. Karlar
eru ósjaldan pervertar eða fyllibyttur og konurnar
mellur eða í leit að pilluboxinu á meðan börnin
ganga sjálfala um göturnar. Það sem brýtur í bága
við hefðbundnar stofnanir verður eðlilegt í textum
hans. Þeir sem íhaldssamir borgarfulltrúar vilja
færa frá Austurvelli í úthverfin eru miðja skáldheims
hans.
Hugmyndir eins og þær sem Megas bar á borð
um íslensku þjóðina höfðu ekki verið viðraðar
hér á landi áður. Hann er óháður hefðbundnum
söguskoðunum og hugsar málið allt frá grunni.
Hann gerir uppreisn gegn viðhorfum, rótgrónum og
rígbundnum hefðinni, um leið og hann endurvekur
hana. Hann tjáir hug sinn til samtímans í gegnum
krókaleiðir um gamlan kveðskap og þjóðsögur,
barnagælur og útþvælda náttúrulýrik án þess þó
að verða klisjunni að bráð og kannski gerir einmitt
skeytingarleysi hans um viðjar vanans túlkanir hans
að heiðarlegustu söguskoðuninni.
Heimildaskrá
Árni Óskarsson. 1998. Diktað íþjóðarhag: um söngtexta
Megasar, þriðji þáttur. Ríkísútvarpið, Rás 1.1. nóvember.
Árni Þórarinsson [umsjón með helgarblaðij. 1976.
„Astrónómískar geðflækjur.“ Vísir, 31. okt.
Bergljót Soffía Kristjánsdóttir. 2001. Fyrirlestur í Ijóðagerð 20.
aldar. [Munnleg heimildj.
Draupnir. 1995. „Flökkubjörn í postulínsverksmiðju." [Viðtal
við Megasj [höfundur ónafngreindur]
Eggert Bernharðsson. 2000. Undir Bárujárnsboga. JPV
Forlag. Reykjavík.
Einar Kárason. 1984. „Maður getur alltaf allt.“ [Viðtal við
Megas]. Morgunblaðið, 26. október.
Geir Svansson og Hjálmar Sveinsson (Ritstj.) 2001. Megas.
Mál og menning, Kistan og Nýlistasafnið, Reykjavik.
GunnlaugurClaessen. 1945. „Banalega Jónasar
Hallgrímssonar." Heilbrigt líf 3.-4. hefti.
Hall, Stuart. 1996. „The Global, the Local, and the Return of
Ethicity." Social Theory: The Multicultural & Classic Reader
[1999], bls. 626-633. Ritstj. Lemert, Charles. Westview
Press, Boulder, Colorado.
Halldór Guðmundsson. 1987. „Loksins, loksins". Mál og
menning, Reykjavík.
Hallgrímur Pétursson. 1944. „Um dauðans óvissan tíma.“
Hallgrímsljóð. H.F. Leiftur, Reykjavík.
Hrafn Jökulsson og Bjarni Guðmarsson. 1989. Ástandið. Tákn,
Reykjavík.
Hutcheon, Linda. 1985. A Theory of Parody. Methuen, New
York.
Ingvar Gíslason. 2001. „Lífvænleg skáldlistMorgunblaðið,
6. mars.
Jakob Benediktsson. 1983. „Skopstæling." Hugtök og heiti i
bókmenntafræði, bls. 251-52. Ritstj. Jakob Benediktsson.
Mál og menning, Reykjavík.
Jóhannes Birkiland. 1945-46. Harmsaga æfi minnar 1. - 4.
bindi. Gefið út af höfundi, Reykjavík.
Jónas Jónasson. 1990. Kvöldskuggar. Ríkisútvarpið, Rás 1.
4. maí.
Kristeva, Julia. 1991. „Orð, tvíröddun og skáldsaga." Myndir
á sandi, bls. 93-128. Ritstj. Garðar Baldvinsson, Kristfn
Birgisdóttir og Kristfn Viðarsdóttir. Bókmenntafræðistofnun
Háskóla Islands, Reykjavík.
Kristján Karlsson. 1993. „Um Ijóðagerð Tómasar
Guðmundssonar.“ Ljóð Tómasar Guðmundssonar. Almenna
bókafélagið, Reykjavík.
Laing, R. D. 1967. The Politics of Experience and The Bird of
Paradise. Penguin Books, Middlesex, England.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1972. Megas. [Hljómplata].
Félag íslenskra stúdenta í Osló, Osló.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1975. Millilending. [Hljómplata].
Demant, Reykjavík.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1976. Fram og aftur
blindgötuna. [Hljómplata]. Demant, Reykjavík.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1977. Á bleikum náttkjólum.
[Hljómplata]. Iðunn, Reykjavfk.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1987. Loftmynd. [Hljómplata]
Gramm, Reykjavík.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1991. Textar. Almenna
bókafélagið, Reykjavík.
Megas [Magnús Þór Jónsson]. 1992. Prír blóðdropar.
[Hljómplata] Skífan, Reykjavík.
Negus, Keith. 1996. Popular Music in Theory. Polity Press,
Cambridge, England.
Ómar Valdimarsson. 1977. „Úrskurðaður í geðrannsókn og 60
daga gæsluvarðhald." Dagblaðið, 17. ágúst.
Ragnheiður Davfðsdóttir. 1989. Lifsbók Laufeyjar. Frjálst
framtak, Reykjavik.
Sigurður Snævarr. 1998. „Island og aiþjóðaefnahagsstofnanir
1945-60." íslenska söguþingið 1997, Ráðstefnurit I,
bls. 242-253. Sagnfræðistofnun Háskóla Islands og
Sagnfræðingafélag íslands, Reykjvfk.
Skafti Þ. Halldórsson. 1978. „Kjaftshögg á hversdagsleikann."
Svart á hvítu 3:14-18.
31