Mímir - 01.06.2005, Blaðsíða 51

Mímir - 01.06.2005, Blaðsíða 51
óöryggi fólks og þrá þess eftir einfaldari heimi.18 Til þess að auðvelda skilning á þessum breytingum hefur Fornas meðal annars sett fram líkan sem ætlað er að útskýra þá krafta sem eru að verki í nútímasamfélagi. Fornás gerir ráð fyrir að hægt sé að brjóta samfélagið upp í það sem hann nefnir geira (spheres). Innan hvers geira er sjálfstætt skipulag, einhvers konar valdamiðja, sem kemurfram í gildum og óskráðum reglum sem eru við lýði innan þess svæðis. Ólíkir geirar samfélagsins geta skarast og það leitt til átaka um ólík gildi og viðmið sem ríkjandi eru innan geiranna. Þessu til útskýringar má líta á Reykjavík, ísland og Evrópu sem ólíka geira sem mynda eins konar stigveldi sem ekki skarast. Hins vegar geta geirarnir Reykvíkingur, ferðamaður, kristni og rokktónlist verið dæmi um geira sem geta skarast. í daglegu amstri fer einstaklingur á milli ólíkra geira úr skóla, í vinnu, í tómstundir og yfir á spjallþráð á Netinu þar sem ólík viðmið og gildi ríkja. Fróðlegt getur verið að bera umhverfi Einars blaðamanns saman við kenningu Fornás til þess að koma auga á hina ólíku átakaása verksins. Fornás skilgreinir fjóra meginása sem eru að verki í lífi einstaklinga, þ.e. heimilið (intimate sphere), markaðinn (market, economy), stjórnsýsluna (state, administration) og opinbera geirann sem er uppspretta menningaráhrifa og þekkingarmiðlunar. Sérhver geiri er háður hinum þremur á einn eða annan hátt. Ef þess er freistað að brjóta umhverfi Einars niður á þessa fjóra ása má segja að heimilisgeiranum tilheyri Gunnsa dóttir hans og samband hans við barnsmóðurina. Einhvers konar átök eiga sér stað með tilkomu nýs manns í fjölskylduna, svertingjans Ragga, sem í huga Einars tilheyrir ólíku menningarumhverfi. Síðdegisblaðið fellur undir markaðsgeirann; fyrir vinnuframlag sitt fær Einar greidd laun en Síðdegisblaðið er svo háð eigendum sínum og stjórnsýslunni sem í gegnum bandalög reynir að stýra fréttaflutningi. í markaðsgeirann fellur einnig Eiríkur í Viðskiptaþjónustunni sem er heimildarmaður Einars en fær í staðinn að hafa áhrif á fréttaflutning og reynir að hindra birtingu upplýsinga. Eiríkur er einnig háður stjórnsýslunni um fjármagn, aðgang að upplýsingum og völd. í stjórnsýslunni eru þær stofnanir sem Einar þarf að sækja upplýsingar til t.d. lögregla og sendiráð. Innan stjórnsýslu er einnig Ólafur Flinriksson fjármálaráðherra sem getur haft áhrif á birtingu frétta, veitingu fjármagns og starfsmannamál innan Síðdegisblaðsins í gegnum pólitískt vald. Síðdegisblaðið þarf síðan að standa skil á sköttum gagnvart stjórnsýslunni. Innan opinbera geirans eru t.d. fjölmiðlar sem miðla þekkingu, fréttum, gildum 18 Fornás, Johan, Cultural Theory & late Modernity, bls. 57. og táknum til einstaklinga. Stjórnmálamenn innan stjórnsýslunnar þiggja vald sitt í einhverjum skilningi frá einstaklingum í gegnum kosningar og eru því háðir þeim fréttaflutningi sem fjölmiðlar koma á framfæri. í þessu samhengi koma fram átök Ólafs Flinrikssonar fjármálaráðherra við Síðdegisblaðið en hann heldur þeim upplýsingum leyndum sem gætu skaðað pólitíska framtíð hans. Með þessa mynd í huga heldur leitin að hinum raunverulega glæp verksins áfram. Hinn raunverulegi glæpur í samræðum Einars og Flannesar í Nóttin hefur þúsund augu er leitast við að skilgreina hver máttur og megin fjölmiðla er í samfélagi nútímans. Fjölmiðlar eru það eftirlitstæki sem gerir lýðræðinu kleift að lifa af í baráttunni gegn hagsmunabandalögum og valdaklíkum, opinberum sem einkareknum. „Við köllum það fjölmiðil núna Flannes. Upplýsingahraðbraut. Fjórða valdið“ (NÞA, bls. 152). En hlutleysi fjölmiðlanna er síður en svo tryggt eins og fram kemur í bókunum. Mikil átök standa um það frá hverju er sagt og hvernig. Andstæðar fylkingar keppast við að stýra sjónarhorni Síðdegisblaðsins. Einar á starfsheiður sinn og trúverðugleika undir því að þekkja þá refskák sem spiluð er bak við tjöldin. Flér kristallast sú togstreita sem finna má í raunveruleikanum og afbrotafræðin hefur tekið til umfjöllunar. í skrifum William J. Chambliss er tekið dæmi af valdatíð J. Edgar Floover Bandaríkjaforseta en hann náði mikilli leikni í því að mata fjölmiðla á upplýsingum. Skattborgurum var meðal annars talin trú um að rekstur Alríkislögreglunnar FBI væri þeim að kostnaðarlausu þar sem starfsemi stofnunarinnar bjargaði svo miklum verðmætum með upprætingu glæpa.'9 Einar veltir fyrir sér af hverju hann varð fyrstur blaðamanna til þess að segja frá dauða Abel Goodman á Flugvallarhótelinu. Svar Flannesar gefurtil kynna að ástæðan liggi í duldum tengslum framkvæmdastjóra og lögreglunnar: „Ég get haft mínar hugmyndir um það, herra minn. Þú veist það kannski og þú veist það kannski ekki en lögreglustjóri og Guðbrandur eru í sömu frímúrarastúkunni. Milli þeirra er náið samband frá gamalli tíð“20 (NÞA, bls. 153). Einar véfengir orð Hannesar og gerir í leiðinni grín að formúlu glæpasagna: „Hannes, þú talar eins og persóna 19 J. Chambliss, Wílliam. Power, Politics & Crime, bls. 39. 20 Hér kallast saga Einars blaðamanns á við íslenska glæpasagnahefð. i bók Guðbrands Jónssonar, Húsið við Norðurá, er einnig dregin upp spillt mynd af stjórnmálamönnum þessa lands sem halda drykkjuveislur í skjóii félagastarfsemi. Þar er nafnið Goodman einnig notað á eina af aðalsöguhetjum bókarinnar. 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.