Mímir - 01.06.2005, Side 141
í vetur bryddaði stjórn Mímis upp á þeirri nýjung
að heiðra dag íslenskrar tungu með því að standa
fyrir dagskrá í Stúdentakjallaranum. Uppátækið
mældist vel fyrir og verður vonandi að föstum
viðburði í félagslífi Háskólans hér eftir. Fjöldi skálda
og rithöfunda kom og las upp úr verkum sínum
og stjórnin sýndi heimatilbúið myndband þar sem
skoðunum íslendinga um íslenskt mál var komið á
framfæri. Þar komu í Ijós einstakir kvikmyndagerða-
hæfileikar stjórnarmeðlima sem áttu eftir að nýtast
betur síðar.
Kraptakvöldið var haldið með pompi og prakt
þann 26. október í safnaðarheimili Fríkirkjunnar.
Mæting var góð og kvöldið vel heppnað í alla
staði. Boðið var upp á gotterí og gríðarlega
vel valin skemmtiatriði þar sem fyrsti hlutinn af
Mímismafíumyndbandinu var frumsýndur við mikinn
fögnuð viðstaddra. Karlakór Mímis kom einnig
fram og stóð sig afar vel og ekki var kvennakórinn
síðri. Þegar íslenskunemar skemmta sér saman
er venjan að bjóða upp á ýmsa námstengda leiki
og skemmtiatriði. Látbragðsleikur þar sem leika á
málfræðihugtök og bókatitla er alltaf vinsæll og að
þessu sinni var látbragðsleikari kvöldsins án efa
heiðursgesturinn Jóhannes Gísli sem fór á kostum
þegar hann lék á afar sannfærandi hátt titilinn
Furðulegt háttalag hunds um nótt. Andvarpið var að
sjálfsögðu á sínum stað og að þessu sinni varpaði
Jóhannes Gísli öndinni til Ármanns Jakobssonar
sem því miður sá sér ekki fært að mæta og varð því
að grípa gæsina - nei öndina- seinna.
Það er gömul hefð að islenskunemar blóti þorra.
Hér áður fyrr var þorrablótið í raun árshátið og
haldið á góu en hin síðari ár hefur verið venja
að halda bæði þorrablót og árshátíð enda aldrei
hægt að skemmta sér of oft. Þorrablótið var haldið
heima hjá Maríu meðstjórnanda þann 11. febrúar.
Þangað mættu svangir íslenskunemar og tróðu
í sig hrútspungum, sviðasultu, hákarli og öðru
góðgæti. Þjóðlegar hefðir voru í hávegum hafðar
þetta kvöld og hápunktur kvöldsins var glímukeppni
Mímis þar sem keppt var um Mímisbeltið í karla-
og kvennaflokki. Það var Þóra Atladóttir sem
varð hlutskörpust stúlknanna en Jón Gestur
Björgvinsson varð glímukóngur. Antísportistarnir
sem ekkert geta í glímu leiddu saman hesta
sína í spurningakeppni og öllum að óvörum varð
bráðgáfað lið fyrsta árs nema hlutskarpast.
í vetur var farið af stað með ræðukeppni milli deilda
innan Háskólans og að sjálfsögðu skráði Mímir
lið til keppni. Það skipuðu: Bjarki Már Karlsson
frummælandi, Tinna Sigurðardóttir meðmælandi,
Þórgunnur Oddsdóttir stuðningsmaður og Sigurrós
Eiðsdóttir liðstjóri. Þann 2. mars mætti þetta
sköruglega lið liði stjórnmálafræðinema í spennandi
keppni þar sem umræðuefnið var: „Á að gelda
kynferðisafbrotamenn?". (slenskunemar mæltu
með tillögunni en urðu þó að láta í minni pokann
fyrir kjaftforum stjórnmálafræðinemum sem fóru
með sigur af hólmi. Einhverra hluta vegna var ekki
mikil stemning fyrir keppninni meðal íslenskunema
en þrir áhorfendur mættu þó á staðinn til að hvetja
sitt lið.
Árshátíð Mímis sem haldin var þann 4. mars var
glæsileg og afar vel heppnuð. Kvöldið byrjaði
snemma með fordrykk í heimahúsi en svo var
hópurinn fluttur með rútu á árshátíðina sjálfa
sem haldin var á veitingahúsinu Lækjarbrekku,
nánar tiltekið í Kornhlöðunni. Þar var vel tekið á
móti okkur, stemningin var notaleg og maturinn
góður. Veislustjórinn, Ólafur Sólimann, stýrði
dagskránni með prýði og skemmtiatriðin féllu
í góðan jarðveg. Víturnar voru að sjálfsögðu á
sínum stað og óþekkir íslenskunemar voru víttir
fyrir vítavert athæfi. Tinna Sigurðardóttir flutti
minni karla og Atli Freyr Steinþórsson svaraði
fyrir hönd karlpeningsins. Karla- og kvennakórar
Mímis komu fram, Færeyjafarar sýndu færeyskan
hringdans og stjórnin sló enn einu sinni í gegn
með heimagerðu myndbandi sem eflaust verður
tilnefnt til Edduverðlaunanna komist það í réttar
hendur. Heiðursgestur hátíðarinnar var Sigríður
139