Mímir - 01.06.2005, Page 142
Sigurjónsdóttir sem fór á kostum í ræðu sinni
með hjálp Bjarka Más sem skyndilega yngdist
um nokkur ár og missti svo til málið. Áhorfendur
misstu líka málið og áttu erfitt með að halda
sér á stólunum í verstu hláturköstunum. Að
borðhaldi og skemmtiatriðum loknum var
haldið í Þjóleikhúskjallarann en þar var haldið
sameiginlegt árshátíðarball nokkurra skora innan
Hugvísindadeildar. DJ Amma hélt uppi fjörinu og
dansinn dunaði langt fram á nótt.
Vísindaferðir eru alltaf vinsælar og þær voru
nokkrar þennan veturinn. Fyrsta vísindaferðin
var á menningarlegum nótum, þá bauð
Hafnarfjarðarbær okkur í heimsókn og við
fengum að skoða listasafnið, byggðasafnið og
bókasafnið. Landsbankinn tók á móti okkur í byrjun
nóvember með líflegri vísindaferð og síðasta ferð
haustannar var heimsókn í bandaríska sendiráðið
sem var afar áhugaverð þótt langan tíma tæki
að komast í gegnum stranga öryggisgæslu. Eftir
áramót hrönnuðust vísindaferðirnar upp svo
áhugasamir nemendur höfðu vart undan. í janúar
var farið í skemmtilega vísindaferð í Landsvirkjun.
Febrúarmánuður byrjaði með vísindaferð í
Kópavogsbæ, svo tók auglýsingastofan Hvíta
húsið á móti okkur með afar áhugaverðri kynningu
og í kennsluhléinu í lok mánaðarins fórum við
í bókaútgáfuna Eddu sem er alltaf með góðar
vísindaferðir. í mars bauð MasterCard okkur í
heimsókn og síðasta vísindaferð vetrarins var farin
þann 8. apríl í Vífilfell. Þar sem íslenskunemar vita
að vísindaferðir snúast ekki bara um veitingarnar
höfum við einnig farið í nokkrar fróðlegar hádegis-
heimsóknir. Okkur var til að mynda boðið í
menntamálaráðuneytið á haustdögum og skömmu
eftir að Þjóðminjasafnið opnaði, nýtt og endurbætt,
skunduðum við þangað og fengum leiðsögn um
safnið og söguna.
Með hækkandi sól áttaði stjórnin sig á því að
hennar tími væri brátt á enda og kominn tími til
að halda kosningar. Aðalfundur var því haldinn í
Árnagarði þann 15. apríl og bjuggust stjórnarstýrur
við miklum mannfjölda og fjörugri kosningabaráttu.
Fjórir félagsmenn mættu á fundinn (sem er
ágætis mæting miðað við þá þrjá sem komu á
ræðukeppnina) og ómögulegt reyndist að mynda
nýja stjórn eða kjósa nokkurn mann í embætti.
Fundurinn var því dálítið snubbóttur en þó tókst
að keyra í gegn nokkrar lagabreytingar og fara á
formlegan hátt yfir starf vetrarins. Eftir fundinn
var haldið heim til Láru formanns og þar bættust
einhverjir íslenskunemar í hópinn. Eftir nokkra
bjóra fór eitthvað að bera á framboðum og þegar
samdrykkju lauk var kominn formaður og einn
maður í stjórn sem átti reyndar í mestu vandræðum
með að velja sér embætti. Þegar þetta er ritað
er ekki vitað hvort umrædda aðila reki minni til
framboðs síns og eins er óljóst hvort tekist hafi að
manna önnur embætti. Ekki er þó öll von úti enn því
vorferðin er á næsta leiti og von er til að einhverjir
bjóði sig fram þar um leið og brennivínsflaskan fer
að ganga.
Stjórn Mímis veturinn 2004-2005 kveður nú að
sinni. Um leið og við þökkum félagsmönnum fyrir
skemmtiiegan og líflegan vetur óskum við nýrri
stjórn (hver sem hún verður) velfarnaðar í starfi og
vonum að félagslífið haldi áfram að blómstra. Takk
fyrir okkur.
Fyrir hönd stjórnarinnar,
Þórgunnur Oddsdóttir (annála)ritari
140