Læknaneminn - 01.04.2018, Side 11
11
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
11
Alþjóðanefnd
Eggert Ólafur Árnason
formaður Alþjóðanefndar 2017-2018
Alþjóðanefnd læknanema á aðild að Inter-
national Federation of Medical Students’ Associ-
ations (IFMSA) sem eru stærstu og elstu
alþjóðlegu samtök læknanemasamtaka og
samanstanda af 132 aðildarfélögum. Alþjóða
nefnd hefur verið fulltrúi í samtökunum frá
1957 og tilheyrir því undirsviði sem sér um
klínískt skiptinám. Það svið veitir læknanemum
tækifæri á að kynnast heilbrigðisþjónustu og
lifnaðarháttum annarra landa.
Grundvallaratriði þess að geta haldið úti
skiptum sem slíkum er að hafa aðgang að
húsnæði þar sem erlendir nemar geta dvalið.
Það hefur ekki alltaf gengið vel að útvega gott
húsnæði en undanfarin ár höfum við fengið
afnot af húsi hjá Kleppsspítala. Í fyrra var
gerður samningur milli Alþjóðanefndar og
umsjónarmanna Klepps um samstarf þar sem
Alþjóðnefnd fær gistiaðstöðu í fyrr nefndu
húsnæði fyrir erlenda nema gegn vinnu
framlagi hjá Batamiðstöðinni í formi fræðslu.
Sumarið 2017 fóru sjö íslenskir nemar til
Indónesíu, Ítalíu, Marokkó, Portúgal og
Slóveníu. Við tókum svo á móti nemum
frá Úkraínu, Marokkó, Indónesíu, Mexíkó,
Slóveníu, Lettlandi, Póllandi, Svíþjóð,
Rússlandi, Sviss, Japan, Ítalíu, Eistlandi,
Indlandi og Þýskalandi.
Eins og hefðin er þá einkenndist sumarið
hjá okkur í Alþjóðanefnd af öflugu félagslífi
með erlendu skiptinemunum og íslensku
tengiliðunum. Í júlí fórum við í helgarferð
til Snæfellsness og í dagsferð þar sem meðal
annars var gengið í Reykjadal. Í ágúst var farin
helgarferð um Suðurland en ekki var farið
í dagsferð þar sem flestir af erlendu nemunum
fóru saman í ferðalag um landið. Að auki voru
haldin tvö Alþjóðakvöld þar sem allir buðu
upp á mat og drykk frá sínu heimalandi. Þá
voru haldin vikuleg bjórkvöld þar sem erlendu
nemarnir fengu tækifæri að kynnast fleiri
nemum innan læknisfræðinnar.
Í ágúst 2017 sendi Alþjóðanefnd þrjá fulltrúa
á ágústfund (e. August Meeting) IFSMA
í Tansan íu, þau Helgu Þórunni Óttarsdóttur,
Herdísi Hergeirsdóttur og Gústav Arnar
Davíðsson. Með í för var Jóhanna Andrés
dóttir frá Hugrúnu. Á ágústfundi eru gerðir
skiptisamningar fyrir næsta starfsár ásamt því
að mynda ný tengsl og taka þátt í dagskrá sem
þar er í boði.
Í nóvember 2017 sendi Alþjóðanefnd fjóra
fulltrúa, þau Guðrúnu Karlsdóttur, Helgu
Þórunni Óttarsdóttur, Hjördísi Ástu
Guðmunds dóttur og Tryggva Ófeigsson,
á ráð stefnu á vegum Federation of Inter-
national Nordic Students’ Associations (FINO)
í Svíþjóð. Dagskrá ráðstefnunnar snerist um
fólksflutninga og heilbrigði. Við fengum
góðan félagsskap með okkur á FINO þar sem
sex fulltrúar frá FL og aðildarfélögum slógust
í hópinn, þau Krister Blær Jónsson, Sólveig
Bjarnadóttir og Þórdís Þorkelsdóttir frá stjórn
FL, Íris Kristinsdóttir og Kristín Haraldsdóttir
frá Lýðheilsufélaginu og Sigríður Óladóttir
frá Ástráði.
Í mars 2018 sendum við svo út tvo fulltrúa á
marsfund (e. March Meeting) í Egyptalandi,
þau Herdísi Hergeirsdóttur og Tryggva
Ófeigsson. Ásamt þeim fóru Unnur
Mjöll Harðardóttir frá stjórn FL, Kristín
Haraldsdóttir frá Lýðheilsufélaginu og Þórdís
Ylfa Viðarsdóttir frá Ástráði. Undanfarin
ár hefur eitt af markmiðum Alþjóðanefndar
verið að virkja fleiri aðildarfélög FL til
þátttöku í starfsemi IFMSA. Það mætti segja
að það hafi tekist með glæsibrag þar sem mikil
aðsókn var frá aðildarfélögum FL á síðustu
þrjár ráðstefnur og við vonum bara að áhuginn
fari vaxandi.
Ég vil nýta tækifærið til að hrósa öllum
meðlimum Alþjóðanefndar og þakka fyrir
frábært samstarf þetta síðasta ár. Það eru
forréttindi að fá að vera hluti af þessum
glæsilega hópi. Alþjóðanefnd vill einnig þakka
tengiliðum og öllum þeim sem hafa lagt til
hjálparhönd og við hlökkum til næsta sumars.
Stjórn Alþjóðanefndar. Efri röð frá hægri: Jóhann Hauksson, Gústav Arnar Davíðsson, Eggert Ólafur
Árnason. Neðri röð frá hægri: Aníta Rut Kristjánsdóttir, Hjördís Ásta Guðmundsdóttir, Guðrún
Karlsdóttir, Tryggvi Ófeigsson, Helga Þórunn Óttarsdóttir, Herdís Hergeirsdóttir, Jóhannes Davíð Purkhús
á vegum Bjargráðs. Á mynd vantar Önnu Lilju Ægisdóttur.
„Við völdum
JKE eldhús“
-Lilja og Atli
Fannar
Sjá meira
á www.byko.is
KOMDU Í HEIMSÓKN!
BREIDD