Læknaneminn - 01.04.2018, Qupperneq 12
12
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
12
Annáll Hugrúnar
Ágúst Ingi Guðnason
varaformaður Hugrúnar 2017-2018
Hugrún er samstarfsverkefni
nemenda í háskólum á Íslandi
sem hefur það að markmiði að
auka geðvitund og geðheilbrigði
ungmenna.
Það var vorið 2016 sem nemar frá hjúkrunar,
lækna og sálfræðideild Háskóla Íslands hittust
í reykfylltum bakherbergjum háskólans og
lögðu á ráðin. Það var í þessu baktjaldamakki
sem upp reis geðfræðslufélagið Hugrún í öllu
sínu veldi. Stofnfundur félagsins var haldinn
13. apríl 2016. Stofnun félagsins kom í kjölfar
vitundarvakningar innan samfélagsins okkar
gagnvart geðröskunum og geðheilbrigði.
Fyrirkomulagið á fræðslu Hugrúnar er lauslega
byggt á fyrirmynd frá Ástráði og er fræðsla á
jafningjagrundvelli. Á meðan Ástráður ræðir
um píkur, typpi og smokka talar Hugrún
um kvíða, fíkn og hugræna atferlismeðferð.
Hugrún fer með fræðslu sína í framhaldsskóla
land sins og ýmsar félagsmiðstöðvar en stefnan
er einnig sett á grunnskóla. Eins og við vitum
fara ekki allir í framhaldsskóla og því missum
við af stórum hóp ungmenna ef við sleppum
því að fara í grunnskóla.
Eftir farsælt fyrsta starfsár var lítið annað hægt
að gera en að gera enn betur. Þrátt fyrir að vera
ekki hlutlaus vil ég svo sannarlega meina að
það hafi tekist og gott betur.
Annað starfsárið hófst á því að félagið var
opnað fyrir alla nemendur Háskóla Íslands,
bæði til að vera í félaginu og sitja í stjórn.
Fjögur sæti af níu í stjórn félagsins eru þó
eyrna merkt nemum heilbrigðisvísindasviðs.
Eitt af mark miðunum með þessari breytingu
var að undirstrika að andlegt heilbrigði
kemur öllum við, sama hvaða deild nemendur
tilheyra.
Geðveikt Bingó var haldið með pompi og prakt
á Stúdentakjallaranum þann 4. júlí og var fullt
út úr dyrum. Góðu straumarnir hættu þó ekki
þarna. Í Reykjavíkurmaraþoninu þeytt ist fólk
út á götur Reykjavíkur, Hugrúnu til stuðnings.
Fyrir hönd Hugrúnar vil ég þakka öllum þeim
sem mættu á Bingóið og hlupu í maraþoninu
okkur til styrktar.
Í september hófst alvaran. Haldin voru
fræðslu kvöld í Hringsalnum á Land
spítalanum við Hringbraut auk þess sem farið
var í fræðsluferð út á land til þess að undir
búa fræðara Hugrúnar fyrir komandi átök.
Við uppskárum svo sannarlega eins og við
sáðum en vel yfir hundrað manns mættu á
fræðslukvöldin í Hringsalnum. Síðan þá hefur
Hugrún farið í flesta framhaldsskóla landsins
en því starfi er enn ekki lokið þegar þetta er
skrifað. Hugrún byrjaði í ár að taka sín fyrstu
skref í átt að fræðslu í grunnskólum í samstarfi
við þrjár félagsmiðstöðvar í Kópavogi. Þar fer
Hugrún í grunnskóla í Kópavogi og fræðir
nemendur í áttunda til tíunda bekk um kvíða
og leiðir til að takast á við hann.
Styrktartónleikar Hugrúnar voru haldnir
þann 5. apríl þar sem ýmsir listamenn stigu
á svið á Kex Hostel fyrir geðheilbrigði. Þar
fór fremstur í flokki Friðrik Dór sem ásamt
öðrum vægast sagt tryllti lýðinn.
Síðast en ekki síst er það herferðin #huguð sem
var unnin í samstarfi við Stúdíó Holt og fór í
loftið 7. mars. Þar fékk Hugrún sex einstak
linga sem hafa glímt við geðraskanir til þess að
segja sína sögu. Herferðin fór vítt og breitt og
var fjallað um hana í öllum helstu fjölmiðlum.
Í kjölfar herferðarinnar stofnaði Hugrún sinn
eigin Snapchatreikning gedfraedsla, sem ég
mæli með að fylgja.
Þegar allt kemur til alls skiptir þó ekki máli
hversu flott eða falleg hugmyndin á bak við
Hugrúnu var heldur skiptir mestu hvort
jafningjafræðsla um geðheilbrigði skili
einhverju? Erlendar rannsóknir gefa vís
bendingar um að fræðsla um geðraskanir fyrir
ungmenni hafi jákvæð áhrif á viðhorf þeirra til
geðrænna vandamála.Einnig hafa rannsóknir
sýnt að fræðsla getur haft áhrif á ýmislegt, allt
frá aukinni þekkingu yfir í viðleitni ungmenna
til að leita sér hjálpar. Fordómar gagnvart
geð röskunum minnka líkur á að fólk leiti
sér hjálpar, þá sérstaklega karlmenn og ungt
fólk. Eins og við vitum gera fyrstu einkenni
ýmissa geðraskana vart við sig á þessum árum
og snemm íhlutun getur því skipt sköpum.
Því má segja að takist Hugrúnu metnaðarfull
markmið sín munum við öll njóta afraksturs
þess. Ég bíð spenntur eftir því að fylgjast með
Hugrúnu í framtíðinni.
Hugrún lætur
kné fylgja kviði
Heimildir
1. Sakellari E, LeinoKilpi H & KalpkerinouAnagnostopoulou A.
Educational interventions in secondary education aiming to affect
pupils‘ attitudes towards mental illness: a review of the literature. J.
Psychiatr. Ment. Health Nurs. 2011;18:166176.
2. Salerno JP. Effectiveness of Universal SchoolBased Mental Health
Awarness Programs Among Youth in the United States: A Systematic
Review. J. Sch. Health 2016;86:922931.