Læknaneminn - 01.04.2018, Blaðsíða 20
R
itr
ýn
t e
fn
i
20
síður á glúkósabirgðir. AsetýlCóA örvar
einnig nýmyndun glúkósa (e. gluconeogenesis)
í lifur. Ef βoxun fitusýra er mistæk eða gölluð
er ekki hægt að nýta fitu sem orkuafurð,
nýmyndun glúkósa minnkar, glúkósabirgðir
klárast og blóðsykur fellur. Það veldur skertri
með vitund. Engu að síður losnar fita úr fituvef
og safnast fyrir í lifur, hjarta og rákóttum
vöðvum sem veldur minnkaðri getu lifrar
til framleiðslu ketóna, hjartsláttaróreglu
(e. arrhythmia) og vöðvakvilla (e. myopathy).5
Gallar í flutningi karnítíns
Flutningsferjur karnítíns og önnur hjálpar
prótín eru einnig mikilvæg. Flutningsferja
karní tíns, ferja lífrænna katjóna af nýrri
tegund 2 (e. Organic Cation Transporter
Novel Type 2, OCTN2), skráð af SLC22A5
geni (berafjölskylda uppleystra efna númer
22 meðlimur 25, e. Solute Carrier Family 22
Member 25), hefur mikla sækni (e. affinity)
í fkarnítín og flytur það inn í hjarta, nýrna og
rákóttar vöðvafrumur. OCTN2karnítínferjan
er nauðsynleg fyrir náttúrulega birgðasöfnun
karnítíns í frumum. Lifrarfrumur hafa
sambærilegar flutningsferjur með minni sækni
í fkarnítín.
Karnítín palmítóýltransferasi1 (e. Carnitine
palmitoyltransferase 1, CPT1) á innra borði
ytri himnu hvatbera tengir fitusýru við
fkarnítín og myndar asýlkarnítín. Karnítín
asýlkarnítín translókasi (e. Carnitine-acyl-
carnitine translocase, CACT) flytur asýl
karnítín yfir innri himnu hvatbera þar sem
karnítín palmítóýltransferasi2 (e. Carnitine
palmitoyltransferase 2, CPT2) klýfur asýl
karnítín, fitu sýran fer rakleiðis í βoxun og
fkarnítín flyst aftur út í umfrymið þar sem
hring rásin endurtekur sig (sjá Mynd 2).5
Karnítín úr fæðu er frásogað í smáþörmum
og flutt yfir í blóðrásina. Sá hluti sem ekki er
frásogaður er brotinn niður af bakteríum í ristli.
Fkarnítín og asýlkarnítín er að mestu skilið út
um nýru en við eðlileg blóðgildi er aðeins um
5% af síuðu karnítíni útskilið. Fæðuinntaka
stýrir endurupptöku OCTN2ferjunnar
í nýrum, eftir því sem fæðuinntakan minnkar
verður endur upptakan skilvirkari. Að sama
skapi eykst út skilnaður í nýrum ef blóðgildin
hækka til dæmis við aukna inntöku.6
OCTN2-skortur
Skortur á OCTN2 skerðir endurupptöku
karnítíns í nýrum, lækkar styrk í blóði og
innan frumu. Sjúklingar með OCTN2
ferjugalla og frumkominn karnítínskort
tapa um 9095% af síuðu karnítíni í þvag og
mælast því með afar lágt karnítín í plasma og
í frumum. Arfblendnir foreldrar þeirra tapa
um tvö til þrefalt meira af síuðu karnítíni en
þeir sem eru með eðlilega arfgerð. Arfblendnir
einstaklingar mælast því iðulega með nokkuð
lækkað karnítín í plasma.5,7 Afleiðingin kemur
fram í föstu en þá er of lítið karnítín til að flytja
fitusýrur inn í hvatbera til βoxunar (sjá Mynd
2). Líkaminn gengur á glúkósabirgðir án
nýmyndunar og fita sem ekki er brotin niður
safnast upp í lifur, hjarta og rákóttum vöðvum.
Nýgengi OCTN2skorts en talin vera á bilinu
ein af hverjum 37.000100.000 fæðingum.
Í Færeyjum hefur algengi sjúk dómsins reynst
vera ein af hverjum 300 fæð ingum. Hátt
nýgengi í Færeyjum er rakið til landnemaáhrifa
stökkbreytingar (e. founder effect). Á Íslandi
hafa fimm einstaklingar greinst frá upphafi
skimunar 2008 (Leifur Franzson, tölvupóst
samskipti, 15. maí 2018).5,8–10
Alitningsvíkjandi erfðagalli í SLC22A-geni
sem skráir fyrir OCTN2flutningsferjunni
veldur frumkomnum karnítínskorti (e.
primary carnitine deficiency) og veldur rófi ein
kenna. Klínísk einkenni fara eftir aldri, alvar
leika og hvaða líffæri verða fyrir skaða. Fram
á fullorðinsár geta einkennin verið ósértæk,
engin eða almennt orkuleysi. Stundum grein
ast einkennalausar mæður fyrst eftir að börn
þeirra greinast í nýburaskimun.5,7 Einkenna
lausir hafa síður markleysubreytingu (e. non-
sense mutation) í SLC22A5geni. Þetta er þó
OCTN2
OCTN2-skortur
Fitusýra Karnítín
Asetýl-CóA
Asýlkarnítín
Karnítín
Karnítín
Karnítín
Asýlkarnítín
Karnítín
CPT1
CPT2
CACT
CACT
β-oxun
asetýl-CóA
FRUMUHIMNA
UMFRYMI
HVATBERI
Myndun
ketónkroppa
1
2
4
3
CPT1-skortur2
CPT2-skortur3
CACT-skortur4
1
Asetýl-CóA
Mynd 2. Hlutverk karnítíns. Karnítín er nauðsynlegt skref fyrir β-oxun fitusýra. OCTN2, flutningsferja karnítíns úr blóðrás yfir í umfrymi, hefur mikla sækni
(e. affinity) í f-karnítín og flytur það inn í hjartavöðvafrumur, rákóttar vöðvafrumur og nýru. Lifrarfrumur hafa lágsæknari ferjur sem flytja f-karnítín úr blóðrás
inn í lifrarfrumur. Fitusýrur í umfrymi eru tengdar (e. conjugated) kóensími A (CóA). Karnítín palmítóýltransferasi-1 (CPT1) á innra borði ytri himnu hvatbera
tengir fitusýruna við f-karnítín og myndar asýlkarnítín (e. acylcarnitine). Karnitínasýlkarnítín translókasi (CACT) flytur asýlkarnítín inn í hvatbera. Þar klýfur
karnítín palmítóýltransferasi-2 (CPT2) f-karnítin af fitusýrunni sem er brotin niður í β-oxun. Frítt karnítín flyst síðan aftur í umfrymi þar sem hringrásin
endurtekur sig.5 Mynd teiknuð af Brynjari Örnu- og Guðnasyni og Aðalheiði Elínu Lárusdóttur. Mynd er lauslega byggð á Figure 1 í grein Longo 2006:
Disorder of Carnitine Transport and the Carnitine Cycle.5