Læknaneminn - 01.04.2018, Side 53

Læknaneminn - 01.04.2018, Side 53
Fr óð le ik ur 53 Upp til hópa eru læknar og læknanemar almennt mjög samviskusamir og sem starfs­ stétt höfum við tileinkað okkur ósérhlífni og eljusemi. Ef þú ert að fara að ráða ein­ hvern í vinnu hljómar þetta kannski eins og draumastarfskrafturinn en hver er fórnar­ kostnaðurinn? Að undanförnu hefur orðið mikil vitundarvakning í samfélaginu þar sem afleiðingar of mikils stress og vinnuálags hafa komið betur í ljós og ekki þykir eins „kúl“ og áður að vinna myrkranna á milli. Farið er að leggja meiri áherslu á að njóta lífsins, verja tímanum með fjölskyldu eða við áhugamál og tómstundir. Segja má að fólk sé búið að innleiða þá hugmyndafræði að við séum að vinna til að lifa en ekki lifa til þess að vinna eins og hugarfarið virtist vera hér á árum áður. Þrátt fyrir þessa vitundarvakningu virðast læknar og læknanemar hafa setið eftir í þessari framþróun. Rannsóknir hafa sýnt fram á að tíðni stress, þunglyndis og kulnunar (e. burnout) meðal læknastéttarinnar er með hæsta móti og hærra en hjá flestum öðrum starfsstéttum. Dæmi eru um að læknanemar flosni úr námi vegna álags og að strax megi finna merki kulnunar á meðal sérsnámslækna sem getur ekki talist vænlegt hjá starfsmanni á upphafsreit starfsferilsins. En hvers vegna er þetta svona? Og hvað er hægt að gera til þess að sporna við þessu? Úti í heimi eru samtök meðal lækna­ stéttarinnar sem hafa verið að rannsaka og taka á vandamálinu, til dæmis eru sterk samtök í Kanada, Noregi og svo EAPH (European Association for Physician Health). Þar hafa komið upp þær vangaveltur að læknar veigri sér við að leita aðstoðar þegar upp koma vandamál hjá þeim; þeir taki vinnu fram yfir eigin heilsu og áhugamál og að langir vinnutímar og óreglulegur svefn séu einhverjar helstu orsakir fyrir hárri tíðni kulnunar meðal læknastéttarinnar. Þá hafa Norðmenn verið með forvarnaverkefni í gangi sem snýst um að mynda minni hópa meðal lækna og læknanema sem hittist reglulega, ræðir vandamál í félagslífi og starfi og brýtur upp rútínu vinnuvikunnar. Þar er hægt að tala í trúnaði en oft getur verið erfitt að ræða við maka eða vin um vandamál í vinnu vegna þagnarskyldu. Þá virðist einnig hjálpa að ræða við aðra sem eru eða hafa gengið í gegnum svipuð vandamál. Síðustu mánuði höfum við, nokkrir læknanemar, undir handleiðslu Haralds Erlendssonar geðlæknis og Benedikt Sveinssonar fæðinga­ og kvensjúkdómalæknis, unnið að því að hrinda af stað svipuðu verkefni hérlendis. Við höfum hist um einu sinni í mánuði og spjallað og gert eitthvað skemmtilegt, farið á kaffihús, sund eða bara hvað sem okkur dettur í hug. Hugmyndin er að prófa þetta verkefni á okkur og reyna svo að fá fleiri læknanema með okkur í lið til þess að þróa og prófa verkefnið áfram. Við yrðum þá handleiðarar fyrir aðra læknanema sem hefðu hug á að taka þátt í verkefninu. Vonir standa til þess að verkefnið verði hluti af námsskrá læknanema í framtíðinni og jafnvel hluti af starfi sérnámslækna á Íslandi. Læknanemar myndu þá skipta sér í hópa eftir svipuðum áhuga á því hvernig þeir vilja takast á við streitu. Þá getur verið einn hópur sem vill hittast og spjalla, annar sem vill stunda líkamsrækt og enn annar sem vill hugleiða eða elda saman. Hugmyndir eru jafnvel uppi um að gera verkefnið að rannsóknarverkefni hjá masters­ eða doktorsnema sem gæti haldið utan um verkefnið og til dæmis borið saman stress, þunglyndi og kulnun meðal læknanema sem taka þátt í verkefninu miðað við þá sem ekki eru í því. Haraldur og Benedikt hafa svo talað um að á Heilsustofnun náttúrulækningafélags Íslands (NLFÍ) í Hvera gerði verði svo hægt að fá pláss fyrir þá lækna og læknanema sem eru það langt leiddir af kulnun að nauðsynlegt sé að grípa inn í til að vinda ofan af vandamálinu en þeir starfa báðir hjá NLFÍ. Það er okkar von að með þessu megi opna augu lækna og læknanema enn frekar fyrir vandamálinu og reyna að sporna við því áður en það er of seint. Áhugasamir mega senda mér fyrirspurnir á net- fangið moh9@hi.is eða hafa samband við mig á Facebook eða í eigin persónu. Forvarnaverkefni gegn streitu lækna og læknanema Matthías Örn Halldórsson læknanemi á fimmta ári 2017-2018
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.