Læknaneminn - 01.04.2018, Qupperneq 61
Fr
óð
le
ik
ur
61
kviðskoðun áður en konan afklæðist en ekki
verður farið nákvæmlega yfir framkvæmd
hennar hér.
Undirbúningur skoðunar
Góður undirbúningur er forsenda þess að
kvenskoðun takist vel. Áður en hafist er handa
þarf sjúklingurinn að gefa leyfi fyrir skoðuninni.
Bjóða á öllum konum að hafa fylgdarmann að
eigin vali viðstaddan. Fyrir lækna er mælt með
að annar heilbrigðisstarfsmaður sé viðstaddur
skoðun, sérstaklega ef læknir er óreyndur.
Aðstoðarmanneskja getur aðstoðað við
skoðunina en er jafnframt vitni að framkvæmd
hennar.
Sumar konur eru taugaóstyrkar fyrir skoðun og
þá getur hjálpað að útskýra hvernig skoðunin
er framkvæmd, einkum ef um fyrstu skoðun er
að ræða. Hvert skref fyrir sig er útskýrt, sem
og tilgangur þess, og konunni sýnd þau áhöld
sem notuð eru við skoðunina. Einstaka konur
eiga erfitt með að ná slökun á grindarbotni í
skoðun og þá getur verið hjálplegt að varast
skyndilegar og óvæntar hreyfingar til að
forðast vöðvakippi og minna konuna reglulega
á að slaka á („vera þung í rassinum“). Alltaf
skal vara konu við snertingu og líðan konunnar
er yfirleitt betri ef hún fær upplýsingar um það
sem fram fer jafnóðum.
Bjóða ætti konunni að fara á salernið áður
en skoðun hefst þar sem full þvagblaðra
getur þrýst niður á framvegg legganganna
og byrgt sýn á leghálsinn. Þannig gefst
einnig gott tækifæri til að fá þvagsýni og gera
þungunarpróf ef við á.
Tafla I. Helstu áherslur við sögutöku
Kvensjúkdómatengd saga
Tíðahringur
• Hvenær voru síðustu eðlilegu blæðingar?
• Reglulegar/óreglulegar blæðingar?
• Hversu langt er á milli blæðinga?
• Hversu mikið og hve lengi blæðir í senn?
Getnaðarvarnir • Núverandi og fyrri getnaðarvarnir?
• Saga um aukaverkanir?
Kynsjúkdómar
• Fyrri saga um kynsjúkdóma svo sem herpes
simplex veiru, sárasótt, lekanda, klamydíu,
HIV, kynfæravörtur (HPV) eða sýkingu í
grindarholi (e. pelvic inflammatory disease)
• Eru einkenni til staðar?
• Fjöldi bólfélaga eða nýr bólfélagi?
Áhættuhegðun?
• Er saga um frumubreytingar í leghálsi eða
óeðlilegt Papstrok?
Önnur vandamál í
kvenlíffærum
• Legslímuflakk (e. endometriosis), blöðrur á
eggjastokkum (e. polycystic ovary syndrome,
PCOS)
Mynd 2. Skoðun á kvenskoðunarbekk
Fæðingasaga
Fjöldi þungana
(e. gravidity)
Fjöldi fæðinga
eftir 22 vikur
(e. parity)
• Fæðing um leggöng? Áhaldafæðing?
Keisaraskurður?
• Vandamál á meðgöngum?
Er saga um
meðgöngurof eða
fósturlát?
• Þurfti meðferð með lyfjum eða aðgerð?
Þvaglátasaga (sérstaklega hjá eldri konum)
Þvagtregða, þvagleki, verkir við þvaglát? Tæmingarvandamál?
Fyrirferðir sem skaga út úr leggöngum? (Blöðru, leg eða
endaþarmssig?)
Aðgerðasaga
Allar aðgerðir
á kvið og
kvenlíffærum
• Kviðarholsspeglun eða kviðarholsaðgerð?
Ábending aðgerðar? Hvað var gert?