Læknaneminn - 01.04.2018, Síða 64
Fr
óð
le
ik
ur
64
Innri þreifing
Þreifing á milli tveggja handa er gerð til frekara
mats á legi og eggjastokkum. Gel eða sleipiefni
er sett á vísifingur og löngutöng ráðandi
handar og þeir settir varlega inn í leggöngin
í sömu stefnu og andarnefjan var sett inn (sjá
Mynd 8). Bæði er mögulegt að sitja og standa
við þessa skoðun. Hjálplegt er að styðja þumli
við ytri skapabarma. Legháls er þreifaður.
Staðsetning hans er metin, áferð, hreyfanleiki
og eymsli. Ef eymsli eru þegar legháls er
hreyfður (e. cervical motion tenderness) getur
það verið merki um sýkingu í grindarholi
(e. pelvic inflammatory disease, PID). Þreifað
skal varlega í kringum leghálsinn. Því næst er
leg metið með því að leggja lausu höndina á
kvið, mitt á milli nafla og lífbeins í miðlínu, á
meðan leghálsi og legi er ýtt innan frá upp á
við í átt að hönd á kviði og leg þannig þreifað
milli tveggja handa. Meta skal stærð, þéttleika
og hreyfanleika og leita að fyrirferðum eða
eymslum. Hægt er að setja fingur ofan við
legháls (e. anterior fornix) og þreifa framvegg
legs ef það er framsveigt með ráðandi hendi og
afturvegg með hendinni ofan á kviðnum. Ef
leg er aftursveigt er leghálsinn oft framstæðari
og legbolur þreifanlegur neðan við legháls (e.
posterior fornix).
Með því að færa fingur í leggöngum yfir í
dældir við hliðina á leghálsi (e. lateral fornices)
og hönd á kvið í sömu átt er hægt að klemma
eggjastokka á milli tveggja handa. Hjá
grönnum, ungum konum sem slaka vel á eru
þeir oft vel þreifanlegir. Leitað er eftir eymslum
og fyrirferðum. Þreifing á milli tveggja handa
getur verið gagnleg til að meta uppruna neðri
kviðverkja og ef fyrirferðir í kvið eru til staðar.
Ef klínískur grunur er um utanlegsþykkt þarf
að gera innri þreifingu varlega þar sem hún
getur valdið rofi á utanlegsþykkt og blæðingu
í kviðarholi.
Ómskoðun
Ómun er myndgreiningarrannsókn sem er
oft framkvæmd eftir innri þreifingu til frekara
mats á kvenlíffærum (sjá Mynd 9). Ómskoðun
af kvenlíffærum ætti einungis að vera gerð
af aðilum sem hafa fullnægjandi kunnáttu í
framkvæmd ómskoðana og þekkingu til að
meta og túlka niðurstöður skoðunarinnar.
Algengast er að gera ómskoðun um leggöng
með sérstöku ómhöfði sem hefur verið klætt í
smokk en einnig er hægt að meta kvenlíffæri,
að minnsta kosti að hluta til, með ómskoðun
um kvið. Með leggangaómun er unnt að meta
leg með tilliti til sveigju, stærðar, fyrirferða og
jafnframt meta hvort legslímhúð er eðlileg að
þykkt. Frír vökvi í kviðarholi safnast oftast
fyrir í endaþarms og legkvos (e. pouch of
Douglas) og sést vel við ómun. Eggjastokka má
einnig skoða með ómun og er meðal annars
hægt að meta stærð þeirra, fyrirferðir, blöðrur
og í sumum tilvikum blóðflæði. Ómskoðun er
nauðsynleg til að staðfesta að snemmþungun
sé í legi og getur gefið mikilvægar upplýs ingar
um blöðrur, vöðvahnúta og aðrar fyrirferðir
á kvenlíffærum.
Ómskoðun af kvenlíffærum telst ekki vera
hluti af hefðbundinni kvenskoðun og verður
því ekki fjallað ítarlegar um hana hér.
Að lokum
Kvenskoðun er ekki flókin í framkvæmd en
mikilvægt að hún sé unnin á nærgætinn hátt
við góðar og kyrrlátar aðstæður. Læknirinn þarf
að vera öruggur og fumlaus í þeim handtökum
sem beitt er. Góður undirbúningur, æfing
og reynsla eru grundvöllurinn að faglegri
og góðri skoðun og auka stórlega líkur á að
upplifun konunnar (og læknisins) sé jákvæð.
Allir læknar ættu að námi loknu að þekkja
helstu áherslur við sögutöku í tengslum við
kvensjúkdóma og vera færir um að framkvæma
gróft mat á ytri og innri kynfærum kvenna
þegar ábending er fyrir skoðun.
Á kvennadeildinni gefast mörg tækifæri til
að fylgjast með og æfa handbrögð í skoðun
og læknanemar ættu að leggja allt kapp á að
framkvæma sem flestar kvenskoðanir og öðlast
þannig færni, öryggi og reynslu!
Þakkir
Arnfríður Henrysdóttir, Dögg Hauksdóttir
og Eva Jónasdóttir, sérfræðingar í fæðinga og
kvensjúkdómalækningum, fá kærar þakkir fyrir
yfirlestur greinarinnar og góðar ábendingar.
Mynd 9. Ómskoðun um leggöng
Legháls
Leg
Eggjastokkur
Ómhaus
Leggöng