Læknaneminn - 01.04.2018, Page 115

Læknaneminn - 01.04.2018, Page 115
Sk em m tie fn i o g pi st la r 11 5 Hvers vegna ákvaðstu fara í læknisfræði á sínum tíma? Eftir framhaldsskóla var ég engan veginn viss um hvað mig langaði að gera. Læknisfræði fannst mér spennandi námsleið frá því að ég var krakki og til dagsins í dag þó ég hafi snúið mér að öðru. Um er að ræða fræðigrein sem hefur snertifleti við helstu vísindagreinarnar, efnafræði og eðlisfræði, en þó eru innsæi og rökhugsun jafnframt mikilvæg. Þetta nám heillaði því það var stór áskorun og ég hafði umgengist lækna mikið síðan ég var lítill vegna sjúkrasögu minnar. Hluti af því sem fékk mig til þess að ákveða að fara í námið var að mig langaði að spreyta mig á inntökuprófinu, langaði að taka það einu sinni og sanna fyrir sjálfum mér að ég væri nógu góður til þess að komast inn. Hvað er það sem heillaði þig í þínu starfi og hvað varð til þess að þú fórst þá leið umfram þá fjölförnu að fara í klíník? Hugbúnaðarþróun og forritun yfir höfuð fylgir mikið frelsi. Hægt er að starfa hvar sem er í heiminum í rauninni og vinna að eigin verkefnum gefi maður sér tíma í slíkt. Ég fór að miklu leyti til í forritun umfram klíník og frekar en aðrar leiðir einmitt vegna frelsis og til þess að nálgast drauma mína enn frekar sem snúa að tölvuleikjagerð. Ég sá einnig fyrir mér að starfa sem forritari myndi síðan auðvelda mér að ferðast og skoða heiminn. Kúltúrinn sem er í hugbúnaðargeiranum heillaði auðvitað einnig og almennt er minna í húfi að sjálfsögðu í þeim bransa heldur en þegar það kemur að læknisfræðinni. Auðveldara er að nálgast vandamálin frá mörgum hliðum, prófa sig áfram og endurtaka tilraunir nánast samstundis án þess að í það fari mikill tími, kostnaður eða áhætta. Hefur læknisfræðimenntun þín nýst þér í starfi og/eða daglegu lífi? Já, hún hefur tvímælalaust nýst mér í daglegu lífi. Erfiðara að segja til um í starfi þó þar sem starfsgreinarnar eru svo ólíkar. Mín upplifun er sú að það hjálpi rosalega mikið þegar maður leitar sér læknisaðstoðar sjálfur að hafa örlítinn bakgrunn, þekkja ákveðin einkenni og hvernig eðlilegt ástand á að vera sem og vita aðeins um virkni algengra lyfja. Það er á vissan hátt fáránlegt að tala um það en fyrir vikið er maður kannski ábyrgari sjúklingur, skráir hluti hjá sér þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera og gefst heldur aldrei upp í því að minna fólk í kringum sig á að klára sýklalyfjaskammtana sína og þess háttar. Eitt af því sem farið var inn á í samskipta­ fræðinni á öðru ári var hugræn atferlismeðferð. Sú kunnátta hefur hjálpað sjálfum mér og hef ég náð að aðstoða vini, ættingja og starfsfélaga með því að beita grunnþáttunum sem er að finna þar. Algjör hliðarafurð við kennslustundirnar og heimalesturinn í læknisfræðinni reynist þó kannski hvað mest vera orðsifjafræðin sem ómeðvitað síast inn og hjálpar mikið þegar kemur að erlendum tungumálum. Orðsifja­ fræði er einfaldlega stórkostlegt fyrirbæri. Námið dýpkaði vissulega forvitni mína og ýtti undir þessa greiningarhugsun sem þarf að vera til staðar þegar það kemur að taka eftir sjúkdómseinkennum en líka auðvitað þegar verið er að „díbögga“ (e. debugging) í kóða, það er að segja finna villur og vitlausa hegðun í kerfum og kóða og leiðrétta. Eitthvað sem þú vilt bæta við eða koma á framfæri? Ég get sko sagt þeim sem eru að læra læknisfræði í dag að þó þið mynduð hætta þá munu vinir og ættingjar ekkert hætta að spyrja ykkur hvað amar að þeim. Ég vil síðan nota tækifærið til þess að koma því á framfæri að ég sé ekki eftir tíma mínum í læknisfræðinni og sé heldur ekki eftir að hafa hætt og snúið mér að öðru. Þessi tvö ár skiluðu mér svo mörgu, skilningi á flóknu efni, innsýn inn í dularfullan heim læknastéttarinnar, betri sjálfsvitund, tólum til þess að takast á við dag­ legt líf á flókinni tækniöld og síðast en ekki síst eignaðist ég nýja vini og styrkti vinasambönd sem ég átti fyrir. Berglind Hermannsdóttir lögfræðingur Hversu langt fórstu í læknisfræðinámi og hvað gerir þú í dag? Ég kláraði fyrstu önnina í læknisfræðinni. Í lok október fór ég að átta mig á því að læknastarfið væri líklega ekki fyrir mig en ég ákvað samt sem áður að sjá aðeins til, hugsa málið nægilega og klára í það minnsta önnina enda gekk námið vel. Í dag hef ég lokið meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og starfa sem lögfræðingur í stjórnsýslunni, hjá Útlendingastofnun nánar tiltekið. Hvers vegna ákvaðstu fara í læknisfræði á sínum tíma? Ég hef alltaf haft gríðarlega mikinn áhuga á mannslíkamanum og líffræði fannst mér langtum skemmtilegasta fagið í skóla og framhaldsskóla. Ég hafði einhvern veginn alltaf stefnt á læknisfræði og eftir að hafa lokið stúdentsprófi þurfti ég ekki einu sinni að hugsa mig um ­ ég ætlaði í læknisfræði. Hvað er það sem heillaði þig í þínu starfi og hvað varð til þess að þú fórst þá leið umfram þá fjölförnu að fara í klíník? Eftir að hafa hætt í læknisfræðinni var ég svolítið ráðvillt. Ég hafði, eins og áður sagði, alltaf stefnt á læknisfræðina og þegar ég hafði áttað mig á að læknastarfið væri ekki fyrir mig hafði ég í raun ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera. Ég skoðaði ýmsar leiðir innan háskólans og eftir töluverðar vangaveltur ákvað ég að fara í lögfræðina. Mér fannst það geta átt vel við mig enda mjög hagnýtt nám sem kemur inn á öll svið samfélagsins. Áhugi minn liggur helst á sviði þjóðaréttar og mannréttinda og ég hef verið svo heppin að hafa haft tækifæri til að starfa á því sviði. Hvað varðar síðari spurninguna, þá rann það í raun bara upp fyrir mér að læknastarfið væri ekki fyrir mig. Mig langaði ekki að starfa sem læknir þrátt fyrir að hafa gríðarlegan áhuga á náminu sjálfu. Hefur læknisfræðimenntun þín nýst þér í starfi og/eða daglegu lífi? Þar sem ég lauk bara einni önn, það er efnafræði, eðlisfræði og líffærafræði, get ég í raun ekki sagt að læknisfræðimenntunin hafi nýst mér að neinu ráði umfram það sem ég hafði lært áður. Eitthvað sem þú vilt bæta við eða koma á framfæri? Ég var mjög efins þegar kom að því að taka lokaákvörðun um að hætta í læknis­ fræðinni og ég hugsa stundum enn: „hvað ef ?“ Þegar ég lít til baka er ég þó ánægð með að hafa þreytt inntökuprófið, komist inn og lokið fyrstu önninni. Öðruvísi hefði ég ekki komist að því að læknastarfið væri ekki fyrir mig og líklega velt mér enn meira upp úr því „hvað ef ?“ Svo vil ég líka bæta því við að ég dáist mikið að öllum þeim sem velja að starfa á sviði læknavísindanna. „...þó þið mynduð hætta þá munu vinir og ættingjar ekkert hætta að spyrja ykkur hvað amar að þeim.“ „...ánægð með að hafa þreytt inntökuprófið, komist inn og lokið fyrstu önninni.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.