Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 34
24
MENNTAMÁL
greind sína og athygli og háð sér orðaforða, sem kemur
því að haldi á síðari stigum námsins.
Þó að hér sé talað um átthagafræði, enda verkefnin
fyrst og fremst miðuð við námsskrá 8 og 9 ára barna,
eru sum verkefnin þannig, að þægilegt er að grípa til
þeirra í sambandi við sögu- og náttúrufræðikennsluna í
eldri bekkjunum.
Um gerð kennslutækjanna vil ég að lokum geta þess,
að veggmyndirnar teiknaði Halldór Pétursson, listmálari,
prentun annaðist Fjölprent h.f. og tréverk Karl Þorvalds-
son, trésmíðameistari.
Um fyrirkomulag myndanna og orðaforðann leitaði ég
álits ýmissa sérfræðinga, m. a. ráðunauta Búnaðarfélags
íslands, náttúrufræðinganna Ingimars Óskarssonar og dr.
Finns Guðmundssonar, dr. Kristjáns Eldjárns, þjóðminja-
varðar, og Jóhanns Kúld, rithöfundar. Starfsmenn Orða-
bókar Háskólans voru svo elskulegir að fara að lokum
yfir orðaforðann með hliðsjón af heitum á myndunum.
Myndirnar í lesæfingarnar teiknuðu teiknikennararnir
Sigrún Ragnarsdóttir og Aslaug á Heygum. Ársæll Sig-
urðsson kennari las yfir æfingarnar í málfræði og staf-
setningu. Öllu þessu fólki og ýmsu ónefndu kann ég hinar
beztu þakkir. — Þá er þess eins ógetið, að verk þetta var
unnið með tilstyrk fræðslustjórans í Reykjavík, Jónasar
B. Jónssonar, og hefði verið ógerlegt án hans ágætu fyrir-
greiðslu, og skulda ég honum miklar þakkir fyrir.