Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 101
MENNTAMÁL
91
ir fulltrúar á þing B. S. R. B. Kosnir tveir endurskoðend-
ur og tveir til vara. Skulu þeir endurskoða reikninga
sambandsins í lok hvers reikningsárs. Fulltrúaþing getur
kjörið heiðursfélaga eftir tillögu sambandsstjórnar.
10. grein. Skipta skal landinu í eftirtalin kjörsvæði:
1. Reykjavík.
2. Miðvesturland: Borgarfjarðar- og Mýrasýsla, Snæ-
fellsnes- og Hnappadalssýsla, Dalasýsla, Austur-
Barðastrandarsýsla og Akraneskaupstaður.
3. Vestfirðir: Strandasýsla, Isafjarðarsýslur, Vestur-
Barðastrandarsýsla og ísafjarðarkaupstaður.
4. Norðurland vestra: Húnavatnssýslur, Skagafjarðar-
sýsla, Sauðárkrókur og Siglufjörður.
5. Norðurland eystra: Eyjafjarðarsýsla, Þingeyjarsýsl-
ur, Ólafsfjörður, Akureyri og Húsavík.
6. Austurland: Múlasýslur, Austur-Skaftafellssýsla,
Seyðisfjörður og Neskaupstaður.
7. Suðurland: Vestur-Skaftafellssýsla, Rangárvalla-
sýsla og Árnessýsla.
8. Vestmannaeyjar.
9. Reykjanes: Gullbringusýsla, Hafnarfjörður og Kefla-
vík.
10. Kjósarsýsla og Kópavogur.
11. grein. Stjórn sambands eða félags (sjá 5. gr.) á
hverju kjörsvæði lætur fara fram á fundi leynilega kosn-
ingu fulltrúa til fulltrúaþinga S. í. B. Þó skal stjórnum
strjálbýlustu kjörsvæðanna heimilt, ef sérstakar ástæður
eru fyrir hendi, að ákveða bréflega kosningu innan síns
kjörsvæðis, enda komi til samþykki stjórnar S. I. B.
Fyrir 1. marz það ár, sem kosning fer fram, skal stjórn
S. I. B. senda stjórn viðkomandi svæðissambands skrá
yfir alla þá félaga, sem kosningarétt hafa.
Kjörinn skal einn fulltrúi fyrir hvern tug félags-
manna og brot úr tug þeirra, er kosningarétt hafa.