Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 102
92
MENNTAMAL
Jafnmargir varafulltrúar skulu kjörnir eftir sömu
reglum.
Félagatölu skal miða við 1. febr. það ár, sem kosning
fer fram. Fulltrúar eru kosnir til tveggja ára.
I.
12. grein.
Aðalstjórn S. í. B. skipa sjö menn; formaður, varaform.,
ritari, gjaldkeri og 3 meðstjórnendur. Enn fremur skal
kjósa 5 menn í varastjórn.
Stjórnin skal kosin leynilegri kosningu. Formaðurinn
skal kosinn sérstaklega, en að öðru leyti skiptir stjórnin
með sér verkum.
Þeir einir skulu kosnir í stjórn og varastjórn, sem eiga
heima í Reykjavík eða svo nærri Reykjavík, að þeir geti
hæglega sótt stjórnarfundi þangað.
Alla starfsmenn sambandsins má endurkjósa, en þeir,
sem hafa gegnt störfum í stjórn sambandsins í sex ár
samfleytt, eru ekki skyldir að taka kosningu fyrr en eftir
jafnlangan tíma.
II.
1. Sambandsstjórn tekur við störfum af fyrri stjórn
að loknu fulltrúaþingi.
2. Stjórnin annast fjármál sambandsins og ber sam-
eiginlega ábyrgð á sambandssjóði.
3. Stjórnin er málsvari sambandsins milli þinga og
beitir sér fyrir framkvæmdum þess.
4. Stjórnin getur kallað saman aukaþing, þegar henni
þykir nauðsyn krefja.
5. Stjórnin heldur nákvæma skrá yfir félagsmenn
S. í. B.
6. Stjórnin leysir erindi sambandsmanna, þau er
henni berast, samkvæmt 7. gr. þessara laga, og veitir þeim
alla aðstoð, er hún má um það, er viðkemur kennslu-
starfi þeirra.