Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 100
90
MENNTAMÁL
Hann annast þau störf í þágu sambandsins, er full-
trúaþing eða sambandsstjórn felur honum. Hann greiðir
árgjald til sambandssjóðs, sem fulltrúaþing ákveður fyrir
tvö ár í senn. I árgjaldinu er innifalin greiðsla fyrir
Menntamál og skattur fyrir alla aðalfélaga til Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja. Aukafélagar greiði ekki annað
árgjald en verð Menntamála, eins og það er ákveðið á
hverjum tíma.
Árgjöld skulu greiðast fyrir 1. ágúst ár hvert, og er
sambandsstjórn heimilt að taka gjöldin af launahluta
kennara úr ríkissjóði í samráði við ríkisféhirði.
Sambandsmenn tilkynna stjórn S. í. B., ef breyting
verður á heimilisfangi þeirra eða starfi.
7. grein. Félagar S. í. B. hafa rétt til að leita aðstoð-
ar og ráða stjórnar S. I. B. um öll þau mál, er snerta
kennarastarf þeirra. Má þar tilnefna að útvega lögfræði-
leg ráð, málastuðning, upplýsingar um erlenda skóla og
menntastofnanir, leiðbeiningar um hentuga dvalarstaði
handa íslenzkum kennurum, sem utan fara, ferðakostn-
að þeirra, erlendar bækur um uppeldismál og kennslu-
aðferðir eða annað, sem sambandsstjórn getur látið í té.
8. grein. Fulltrúaþing skal haldið annað hvert ár, og
ákveður sambandsstjórn þingstað og þingtíma, nema
samþykkt liggi fyrir um það frá síðasta fulltrúaþingi.
Allir sambandsfélagar hafa rétt til þingsetu. Sambands-
stjórn hefur málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt hafa
aðeins löglega kjörnir fulltrúar. Heimilt er þeim að hafa
einstaka þingfundi lokaða, ef sérstakar ástæður eru fyrir
hendi.
9. grein. Störf fulltrúaþings eru þessi: Sambands-
stjórn gerir grein fyrir störfum sínum. Úrskurður er
lagður á reikninga sambandsins. Teknar ákvarðanir um
fjármál sambandsins. Þau mál eru rædd, er varða hag
og tilgang sambandsins, og gerðar ályktanir um þau.
Kosin stjórn og varastjórn S. í. B. til tveggja ára. Kosn-