Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 17
MENNTAMÁL
7
á Flateyri. Þrátt fyrir fundarboð með stuttum fyrirvara
komu saman um 20 kennarar utan af landi og álíka hónur
úr Reykjavík.
Ríkisstjórnin hafði þá á prjónunum frumvarp til laga
um launakjör kennara.
Fundurinn ritaði Alþingi einarðlegt ávarp um launa-
mál barnakennara og aðra hagsmuni þeirra. Þá var rætt
um að stofna til allsherjar samtaka brnakennara. Kosin
var nefnd til þess að undirbúa það málefni. í desember-
mánuði árið eftir vakti Helgi Hjörvar máls á því í félagi
sínu að hrinda bæri þegar í framkvæmd stofnun félags
með öllum barnakennurum landsins. Stjórn félagsins var
falið að boða til slíks fundar á næsta vori. í apríl 1921
var auglýstur fundur og boðað til hans 15. júní það vor.
Kennarar voru mjög hvattir til að sækja fundinn, hann
yrði haldinn í Reykjavík. Fundur þessi hófst á tilsettum
tíma og var haldinn í Góðtemplarahúsinu. Eftir nafna-
skrám að dæma hafa sótt fundinn um 30 kennarar úr
Reykjavík og 50 utan úr landsbyggðinni, auk nokkurra
gesta. Ég verð að segja það eins og er, að fundur þessi
varð næsta sögulegur og að sama skapi heilladrjúgur.
Undirbúningsnefndin hafði samið frumvarp til sam-
þykktar fyrir væntanlegt félag. Hallgrímur Jónsson,
kennari í Reykjavík, setti fundinn og skýrði frá tildrög-
um hans. Sigurður Jónsson, kennari í Reykjavík, var kos-
inn fundarstjóri. Helgi Hjörvar var framsögumaður
frumvarps þess, sem fyrir fundinn var lagt og hlaut að
verða aðalmálið.
Fundurinn kaus sjö manna nefnd til að fjalla um frum-
varpið, með ákvæðum þess skyldi að sjálfsögðu móta
hinn nýja félagsskap.
Hófst nú orrahríð mikil. Nefndin varð strax mjög
ósammála og þar af leiðandi fundurinn í heild. Deilt var
bæði hart og lengi. Aðal ágreiningurinn var um það,
hvort samtökin ættu að ná til allra kennara, sem vildu