Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 59
menntamál
49
Fylgnitölur hinna tveggja prófa sýna samsvörun þeirra.
Þær reyndust þessar:
Milli prófs M. J. og munnlegs hluta prófs Wechslers 0,72
— — ---------verklegs — — — 0,65
— — ------prófs Wechslers í heild........ 0,76
Ef litið er á það, að um tiltölulega ung börn var að
ræða við fyrri prófun, eða 6—7 ára, og langur tími, hér
um bil 10 ár, leið milli prófana, verða þetta að teljast
háar fylgnitölur. Virðist a. m. k. óhætt að álykta, að báð-
ar aðferðirnar mæli að mestu leyti það sama og mæli
eiginleika, sem taka ekki mjög skjótum breytingum hjá
flestum einstaklingum.
Fylgnitala gefur ekki beint til kynna, hverjar breyt-
ingar hafi orðið á greindarvísitölum einstaklinga, en
þetta er fróðlegt að athuga. Af slíkri athugun má ráða,
hversu miklar líkur eru til að sami eða nálega sami
árangur náist með þessum prófum að löngum tíma liðn-
um. Eftirfarandi yfirlit sýnir þessar breytingar:
Breyt. var 0—5 greindarvísit. stig hjá 37 einst.
- - 6-10
- 11-15
_ _ 16-20
- 21-24
- - 22 -
- - 11 -
- - 3 -
eða 46% tilr.hópsins
- 27%
- H% -
- 9%
- 4% -
Af þessu yfirliti sést, að breyting greindarvísitölu er
oftast lítil. Hún er t. d. minni en 6 stig hjá h. u. b.
helming tilraunarhópsins og fer aðeins fram úr einu
dreifibili (15 stigium) hjá 13% hans. Mesta breyting
var 24 greindarvísitölustig.
Þessi samanburður sýnir, að stöðugleiki greindarvísi-
tölunnar er mikill, þegar notuð eru vönduð einstaklings-
próf. Samt sem áður koma fram töluverðar breytingar
hjá fáum einstaklingum. Gefur það til kynna, að óvar-
legt sé að treysta í hverju stöku tilfelli prófun, sem fram-