Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 95
MENNTAMAL
85
Frá fræðslumálaskrifstofunni.
Lagafrumvarp um Kennaraskóla Islands.
Með bréfi, clags. 29. febrúar 1960, skipaði menntamálaráðherra
nefnd til þess að endurskoða gildandi löggjiif unt Kennaraskóla
íslands og semja frumvarp til laga um skólann.
Formaður nefndarinnar var Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri, en
aðrir nefndarmcnn voru: Ágúst Sigurðsson, kennari, dr. Brocldi Jó-
hannesson, kennari, Guðjón Jónsson, eftirlitsmaður með sparifjár-
söfnun skólabarna, Gunnar Guðmundsson, yfirkennari, Helgi Flías-
son, fræðslumálastjóri, Símon Jóh. Ágústsson,' prófessor, og Sveinbjörn
Sigurjónsson, skólastjóri.
Nefndin lauk störfum í lok septembermánaðar s.l. og sendi þá
ráðuneytinu frumvarp til laga um Kennaraskóla íslands ásamt grein-
argerð og athugasemdum.
Erindisbréf fyrir skólastjóra, kennara, skólanefndir
og jrœðsluráð barna- og gagnfrœðastigs.
í desember 1960 fól Menntamálaráðuneytið fræðslumálastjóra að
enclurskoða erindisbréf fyrir skólastjóra og kennara í barna- og gagn-
fræðastigsskólum, enn fremur erindisbréf fyrir skólanefndir og fræðslu-
ráð siimu skólastiga.
Það varð að ráði, að stjórnir Sambands íslenzkra barnakennara og
Landssambands framhaldsskólakennara, hvort samband um sig, til-
nefndi einn mann til þess að vinna að þessu með fræðslumálastjóra.
Stjórn S.Í.B. tilnefndi Skúla Þorsteinsson, formann sambandsins, en
stjórn L.S.F.K. tilnefndi Kristin Gíslason, ritara sambandsins. Auk
áðurnefndra unnu lulltrúar fræðslumálastjóra með nefndinni.
Nefndin lauk stiirfum í lok desember s.l. og sendi })á ráðuneytinu
tillögur að áðurgreindum erindisbréfum.