Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 84
74
MENNTAMÁL
Stutt skýrsla frá þingi O.E.E.C.,
Kungálv, 11.—16. júní 1961.
Undirritaðir sóttu þingið að tilhlutan menntamála-
ráðherra.
Hæfileikar og þroskaskilyrði þeirra í efnahagsþróun
nútímans — Ability and Educational Opportunity in a
Modern Economy — var viðfangsefni þings, sem háð var
dagana 11.—16. júní í Kungalv á vegum Efnahagssam-
vinnustofnunar Evrópu. Sextíu fulltrúar frá 16 Evrópu-
löndum auk Bandaríkjanna tóku þátt í mótinu, flestir
leiðandi menn í skólamálum þjóða sinna.
Sænski menntamálaráðherrann, Ragnar Edenman, setti
þingið. Ræddi hann um hinn dýrmæta fjársjóð, sem hver
þjóð ætti í gáfum og hæfileikum uppvaxandi kynslóðar.
Ávallt hefði verið nauðsynlegt að hagnýta þennan fjár-
sjóð sem bezt, en á okkar tímum mætti það teljast lífs-
nauðsyn. Benti hann m. a. á, að þrátt fyrir mikinn fjölda
stúdenta í Svíþjóð, væri fyrirsjáanlegur tilfinnanlegur
skortur alls konar tæknifræðinga þar í landi á næstu ár-
um. Hins vegar yrði ofgnægð húmanista. Taldi hann, að
eitt aðal-uppeldisvandamál Svía næsta áratug yrði það,
hversu beina skyldi straumi nemenda í þá farvegi, sem
þjóðfélagið þarfnaðist, — án þess að skertur yrði réttur
nokkurs manns til þess að velja sér nám í samræmi við
eigin hneigðir. Engin þjóð gæti staðizt hina hörðu sam-
keppni, sem nú ríkir í framleiðslu og viðskiptum, nema
hæfileikar æskunnar fengju að þroskast við beztu mennt-
unarskilyrði. Orðrétt sagði ráðherrann: ,,Sem stjórnmála-