Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 43
menntamál
33
og kem ég að því síðar. Ég leyfi mér að halda fram, að
lítið af þessu hefði komizt í framkvæmd, hefði sjóðurinn
ekki verið til. Nú hefur Styrktarfélagið mikinn hug á
að fá þetta svo nefnda tappagjald hækkað og hefur sent
Alþingi erindi þess efnis, hvernig sem því reiðir af. —
Ríkissjóður sjálfur hefur á fjárlögum veitt 460 þús. kr.
styrk til bygginga í Kópavogi undanfarin ár, og er það
eini beini styrkur hans til þessara mála.
Styrktarfélag vangefinna opnaði nokkru eftir stofnun
sína skrifstofu, sem nú er til húsa á Skólavörðustíg 18.
Skrifstofan annast fyrst og fremst umsjón með fjáröfl-
un félagsins, og er happdrætti, sem það hefur hleypt
af stokkunum undanfarin 3 ár, þar langumfangsmest, og
hefur gefið allgóðar tekjur. Merkjasölu hefur félagið haft
árlega, svo og sölu minningarspjalda. öll þessi fjáröflun
hefur reynzt svo tímafrek, að skrifstofan hefur ekki get-
að sinnt til hlítar öðrum megintilgangi sínum, sem átti
að vera sá, að safna sem mestum og beztum upplýsing-
um um vangefna á landinu og koma á spjaldskrá yfir þá,
að veita allar þær upplýsingar sem kostur er á um mál-
efni vangefinna og annast alls konar fyrirgreiðslu, sjá
um útgáfu fræðslu- og upplýsingarita, og þannig mætti
lengi telja. Sú er von okkar, að koma megi þessum mál-
um í betra horf í framtíðinni, en það verður ekki, meðan
félagið hefur ekki aðrar tekjur en af happdrættum,
merkjasölu og þess háttar, auk félagsgjalda, og stendur
þar að auki í fjárfrekum byggingaframkvæmdum, svo
sem síðar mun vikið að.
Ég skýt því hér inn, að félagið hefur frá upphafi veitt
nokkra utanfara- og námsstyrki fólki, sem hefur kynnt
sér sérstaklega mál vangefinna, umönnun þeirra eða
kennslu.
Hálfu öðru ári eftir að Styrktarfélagið var stofnað, eða
fyrir tveimur árum, tóku konurnar í stjórn þess að boða
til sérstakra kvennafunda innan félagsins. Er skemmst
3