Menntamál - 01.04.1962, Blaðsíða 64
54
MENNTAMAL
Breyting sú, sem orðið hefur undanfarið á þjóðlífshátt-
um víða um heim, hefur valdið því, að heimilið hefur verið
svipt ýmsum tækifærum til þess að rækja sitt gamla og
góða uppeldishlutverk, einkum þó hvað snertir hið félags-
lega uppeldi. Vegna hins fjölbreytta iðnaðar hafa mörg
ævagömul heimilisstörf orðið úrelt og fallið með öllu
niður. Hann hefur í ríkum mæli sogað til sín framfær-
endur heimilanna, sem þá vinna ekki lengur verk sín á
heimilunum eða í nágrenni þeirra. Afleiðingin verður sú,
að samband þeirra við fjölskylduna minnkar að mun. Og
svo þegar jafnvel mæðurnar fara líka að stunda iðnaðar-
eða framleiðslustörf utan heimilis, verður uppeldisgildi
margra heimila aðeins svipur hjá sjón, miðað við það,
sem áður var.
Jafnvel hugsunarháttur fólks og venjur hafa breytzt.
Trúarbrögðin veita ekki almennt þann stuðning og þá
handleiðslu, sem þau fyrr létu í té, og ýmsar siðareglur
eru lítils virtar. Mörgum virðist ótakmarkað frelsi
vera æðstu gæði lífsins, æðsta takmarkið. En þeir góðu
menn mega ekki gleyma, að frelsi fylgir ábyrgð, og að
ábyrgðin vex með auknu frelsi. Það er vissulega athyglis-
vert, að ábyrgðin getur reynzt svo þung, að menn leggi
hana á herðar eins leiðtoga og beygi sig algjörlega undir
vilja hans. Viljaleysi og ótti við ábyrgð getur sundrað
grundvelli lýðræðisins.
Og breytingarnar verða á enn víðara sviði, viðfangs-
efni og vandamál lífsins enn samtvinnaðri, og vaxandi
kröfur gerðar til siðlegs og félagslegs þroska þegnanna.
Með hinni miklu iðnvæðingu verðum við mennirnir sí-
fellt háðari hver öðrum. Tæknin dregur mjög úr öllum
landfræðilegum fjarlægðum, og þetta hefur þær afleið-
ingar, að vandamál fjarlægra þjóða hafa aukin áhrif hjá
okkur. Misskilningur og rangsleitni geta valdið árekstr-
um, sem ógna öllum Jarðarbúum.
Á meðan hin ytri, efnislega þróun hefur gjörbreytt